Skólablaðið - 01.12.1962, Blaðsíða 13
105 -
Bakkabræður.
íslendingarnir V. L. og Hafsteinn
Kristinssonur, hafa eytt vetrinum við
að "yrkja" klám og níð hvor um annan.
Nú er málum svo komið, að V. L. hefur
heppnazt að berja saman kvið-ling um
Hafstein Kristinsson, sem birtist í þessu
blaði, ef Júníus lofar.
Ráðist á lftilmagnann.
Þáttur einn hér í blaðinu olli undir-
rituðum sálarkvölum x txu mínútur sam-
fleytt. Astæðan er sú, að stórmenni
úr Þingeyjarsýslu, lýsir þar á smekk-
legan hátt frati á undirritaðan.
Þáttur þessi er annars vegar hól um
ritstjóra fyrir vel unnin störf, en hins
vegar gagnrýni um SKÖLABLAÐIÐ eftir
séníið Heimi Pálsson Þingeying.
Þáttur þessi er allur bráðfyndinn og
sérkennilegur, og er mönnum eindregið
ráðlagt að lesa hann, þrátt fyrir að
höfundur hefur ritað fullt nafn sitt
undir.
öskar þátturinn honum gleðilegra
jóla, í von um að hann megi aldrei loft
skorta.
öréttlæti.
QUID NOVI hefur hlerað, að jóla-
gleðinefnd ætli sér að gera Njálu ódauð-
lega á jólagleðinni. Þykir ýmsum sem
nefndin hafi gengið all hastarlega fram
hjá Njáli frægari mönnum, og að nær
hefði verið að skreyta einhverja áhrifa-
meiri sögu, t.d. Tryggva sögu Karls-
sonar eða Hauks sögu Hendersonar.
Enn er txmi fyrir nefndina að sjá sig
um hönd.
Anægjulegt er að sjá, hversu vel
Helgi formaður stendur vel í stöðu sinni.
Sagt er, að hann sé þegar búinn að setja
nýtt met í spörkun. Er þetta ef til vill
skiljanlegt, þegar þess er gætt, að í
nefnd með Helga eru nokkur nafntoguð
ljúfmenni, sem ekki mega vamm sitt
vita, svo sem Askell Kérúlf o. fl.
Ennfremur vill þátturinn koma því á
framfæri til þeirra, sem ekki vitað það
nú þegar, að Tþaka er starfrækt okkar
vegna en ekki vegna einhverra annarra.
Þráinn