Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.12.1964, Side 28

Skólablaðið - 01.12.1964, Side 28
- 90 - STÆRÐFRÆÐILEGUR HARM LEIKU R með nokkrum aðdraganda t»AÐ var glaðasolskin f koordinata- kerfinu. í 1. fjórðungi lagu nokkrar ynd- isfagrar parabolur og sleiktu sólskinið. Línur þeirra voru ávalar og mjukar, og f fasi þeirra var fegurð vorsins. Feimn- ir díametrar gutu augum til parabólnanna og fóru hjá ser. £ Frosnir differentíalkvótar gengu hægt hjá. Einn þeirra fór til parabólu nokkurrar og hví*siaði að henni: •'Heyrðu ert ekki svaka dýna? " Slíkt og þvílíkt háttalag geðjaðist ekki öðrum kvóta. Varð ófögur orðasenna milli þeirra. Hugðu nærstaddir stórtfðindi f vændum, en kvótarnir voru raunsæir. Það var mikill hiti, og f handalögmáli gátu þeir þiðnað, sem alls ekki mátti henda frosna kvóta. Þeir gengu þvf f átt til keilu einnar. Utan á keilunni var fagurrautt skilti með hvítum stöfum. Á þvf stóð : Drekkið ískalt Hippy, hippy shake. í 2. fjórðungi var verið að halda fund í sólarhitanum. Virðulegur parameter stóð á X-ásnum og hélt ræðu. Þarna var alls konar lýður : Fúnksjónir, diffraðar og ódiffraðar, helmingalxnur, rætur, punktar, radíar og hringar. Paramefrinn sagði : "Háttvirtir kjósend- ur, funksjónir og ferlar I Hugsjon vor er að hliðra kerfinu til hægri. " Hann færði rök fyrir sfnu máli. Þuldi margar formulur, sem sumum virtust glæsilegar öðrum ekki. Er parameterinn hafði lokið máli sínu, stóð upp radfi og sann- aði með nýjum formálum að langbezt væri að hliðra kerfinu til vinstri.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.