Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 39

Skólablaðið - 01.12.1964, Blaðsíða 39
- 101 - ferðataskan brúna stóð asamt öðrum farangri, spölkorn frá gröfinni, nam þar staðar ( með þriggja metra löngum bremsuförum ), greip töskuna hægri hendi, fór hlaupum hvíandi til baka, gat með naumindum stöðvað sig a sprettin- um fremst á grafarbarmi ^ fjögurra metra löng bremsuför ), hof töskuna a loft heljarþunga, opnaði vinstri hendi og hvolfdi innihaldinu yfir gröfina. Engan ( nema máski dulvisan eða draumspakan ) hefði órað fyrir afleiðing- um þessa verknaðar, úrslitavopns ekkj- unnar: tröllaukinn gnýr fyllti loftið, rót komst á jörðu og gufustrokur stóð upp úr gröfinni og huldi og varð Engilhreinn ekki seður um hríð, en ættingjar hrukku frá 1 skelfingu og hörfuðu burt frá gröf- inni, allir utan gamla konan, er stóð keik á grafarbarmi ( varð með naumind- um greind gegnum eiminn ) og fylgdist með hamförunum, sem, þótt ohugnanleg- ar væru, þoldu ekki nokkurn samanburð við þær, er urðu, þegar gröfin upplaukst og með þvú að svo var malum hattað og ættingjarnir orðnir ýmsu vanir eftir ævintyri næturinnar, jöfnuðu þeir sig þvá skjótar eftir skrekkinn og var ekki jafn- vel laust við að þeir væru ögn sneypu- legir ( þar sem þeir höfðu runnið af hólmi, meðan ekkjan stóð otrauð í eld- inum ), er þeir byrjuðu að tynast til baka; máttu þeir nú augum líta það, sem gamla konan hafði geymt í tösku sinni svo vel og lofað engum að sja, svo og vegsummerki. Gröfin var barmafull af guðsorðabók- um af ýmsu tagi, biblíuútgáfum frá upp- hafi prentlistar, sálmabókum og bækling- um sértrúarflokka, þarna voru kynstur fágætra bóka, mætti til gamans bókfróð- um nefna gott safn þýðinga Guðbrands biskups, svo sem Speculum poenitentiæ ( l6ll), Syndakeðjuna ( 1609 ), Fimmtán líkpredikanir ( 1598 ), Huggunarbækling ( 1576 ), Eina áminningu og undirvúsun á þessum háskasamlegu eymdartímum ( 1595 ), allar prentaðar á HÓlum, Nockrer psalmar, eftir Kolbein Gríms- son, var þarna, gott eintak, ennfremur eina þekkta eintakið af Margarita theo- logica eftir Franciscus ( Hólum, 1620 ) og margt fleira, en upp úr hrúgunni stóð úfið höfuð Engilhreins ( var það eitt sjáanlegt af vominum ) og hafi það verið illmannlegt áður en gamla konan tók þessa rögg á sig, var það þó sem reifabarns samanborið við þann óhugnað, er nu stóð af andlitinu, myrkvuðu og ægiljótu; virtist þó hafa fullkomið vald yfir ser og með beinlínis djöfullegri ró tók Benedikt svo til orða : sko þið frat- naglar röskuðuð ro minni sem er heilög hegningarvert athæfi skilst mer heimilis- helgi látinna ku lögvernduð og það eitt var sjáið þið nægileg ástæða spesjal að - gerða sko alls oviðkomandi mmum hug- vitsamlegu hrekkjum herna það var grín hahahahahaha sko ætlaði þo svona fyrir góðmennsku að lofa ykkur að sleppa ja fyrsta brot sko svo nennti eg lika ekki að gera pkkur það til geðs að láta pkkur koma mer úr jafnvægi sko en nú nu haf- ið þið sjáið þið gengið fulllangt gáfaða fólk sko nu er þess enginn kostur að sleppa heill á hufi og þá er bara að segja fallegt bless við heiminn kviðið engu sko ég á góða að og þetta þetta er ekkert próblem það gerist eitthvað sögu- legt á eftir sjáið þið til það verður ekki fult partíið það ahahahahahahahaha, og naumast hafði Engilhreinn Benedikt Frið- sveinn Illugason fyrr lokið ræðu sinni, en djöfulgangurinn hófst á nýjaleik, hálfu magnaðri en nokkru sinni fyrr, skruðningar heyrðust x fjarska og nu var ekkert gaman lengur, enginn vafi lek a þvú, hvað var á ferðinni : hin illu öfl, er til síh höfðu fældan Friðsvein, voru á leiðinni til hans, með ofsahraða, að frelsa hann úr voðanum, guðsorðagryfj- unni. Ættingjarnir ótta stóðu ærðir, horfðu á skriðnandi jörðina, heyrðu gnýinn fyll- andi loftið, skruðninga, skerandi skelf- ingarvein, brakandi snark, fundu steikj- andi hitann, sáu skyndilega eldtungu teygja sig hátt, hátt 1 loft ( ó allar bækurnar ) UPP °g lengur biðu þeir ekki boðanna, en spyrntu við fótum, geltu snöggt og spruttu af stað, frávita, slogu hælum við hnakka ( er þvú ekki að leyna, að ekkjan hljóp langtum hraðast ), hnjótandi um lima- lausa búka og búklausa limi, en skelfing- in rak á fætur og voru horfnir 1 ryk- mekki, hver 1 sína átt ut 1 buskann. Vindur gnauðaði, að baki sér heyrði sviphreinn, tignarlegur, haleitur og allt hitt kaupsýslumaður, harma rúnum rist- ur, móðurbróðir, þvers og kruss, en festa og einurð skein úr hverjum drætti, ómennskar kvalastunur íbua neðribyggða,

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.