Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 18

Skólablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 18
102 Söngur fyrir þá sem vita. Hans Magnús Enzensberger eitthvað verður að gera nú þegar svo mikið er vfst en auðvitað er ekki tfmabært að hefjast handa og auðvitað er of áliðið dags svo mikið er vfst við vitum okkur vel borgið og þannig mun það framvegis verða og það kemur Ifklega ekki að miklu haldi svo mikið er vfst við vitum að okkur er um að kenna og að það er ekki okkar sök ef okkur er um að kenna og að okkar er sökin vegna þeirra staðreyndar að okkur verður ekki um kennt og að við erum drepleið á þvf öllu svo mikið er vfst og að kannski væri það snjöll hugmynd að halda sér saman og að þrátt fyrir allt munum við gaspra svo mikið er vfst og við vitum lfka að raunverulega getum við engum hjálpað og að enginn getur hjálpað okkur og að við erum einstaklega gáfuð og snjöll og okkur er frjálst að velja milli einskis og ekki neins og að við verðum að kryfja það vandamál til mergjar og að við notum tvo sykurmola f teið okkar svo mikið er vfst við vitum ailt um valdbeitfngu og að við erum mjög mótfallin henni og að sfgarettur hafa enn einu sinni hækkað f verði svo mikið er vfst við erum þess meðvituð að þjóðarskútan stefnir uppf boðana og að spár okkar hafa reynzt laukréttar og að þær hafa engum orðið að gagni og að þetta er bara þras svo mikið er vfst að það er alls ekki nógu gott að sætta sig við orðinn hlut og að við munum samt sem áður sætta okkur við þá svo mikið er vfst að það er ekkert nýtt undir sólinni og að lfjfið er dásamlegt og það sé það sem máli skiptir svo mikið er vfst • að við vitum fyrir vfst og að við vitum þetta ágætlega vel svo mikið er vfst svo mikið vitum við að er vfst birgir svan snjéri

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.