Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1972, Page 49

Skólablaðið - 01.02.1972, Page 49
r Maðurinn er ábyrgur gerða sinna.og hann verður að vita, að svo sé, annars tekur ekkert við nema dauðinn. Hér er um að ræða nauðsyn sjálfs mannlífsins, forsendu alls mannlegs lifs, allrar manniegrar breytni. Siðrænir dómar eiga rétt á sér, þvf að ákvarðanir mannsins ráða athöfn- um hans og siðgæðisdómarnir verða að vera vitaðar orsakir og leiðarljós ákvarðananna. Einstaklingurinn verður að skynja sig sem þjóðfélagslega veru, er hefur ábyrgð gagnvart öðrum einstaklingum þjóðfélagsins. Að svo miklu leyti, sem maðurinn skapar sögu sfna sjálfur og breytir heiminum vitandi vits um afleiðingár athafna sinna, láta hugmyndir hans um rétt og rangt til sfn taka f þróuninni. Þannig verður "hugsjón að efnislegum veruleika, þegar hun nær tökum á fjöldanum", eins og Marx orðaði það. Frelsið er ekki frelsi undan löggengi, það er frekar á vissan hátt innsýn f þetta löggengi. Frelsið felst að nokkru f þvf, að við þekkjum lögmái hins hiutverulega heims sem og þá þætti innra með okkur sjálfum, er áhrif hafa á gerðir okkar. Það felst einnig f þvf, að við þekkjum og ger- um okkur grein fyrir afleiðingum gerða okkar að það, sem verður, sé vitað og viljað f okkur sjálfum, að við vitum, hvernig hið liðna felur f sér hið ókomna, vfsindaleg þekking er þvf nauðsynleg forsenda frelsisins. Þannig verður vituð afleiðing ákvörðunarinnar jafnframt ein af orsökum hennar, ákvörðunin verður frjáls, þegar við skynjum, að við erum sjálf löggjafar og skapendur atburðarrásarinnar. Og þvf auðveldar sem við eig- um með að skapa sögu okkar, vera löggjafar okkar eigin Iffs, þvf frjálsari erum við. En sú ópersónulega tækniveröld, sem nú umlykur okkur, hindr- ar þetta sköpunarstarf, gerir okkur undirgefin lögmáium, er við sem ein- staklingar getum engin áhrif haft á og skynjum okkur þvf ófrjálsa. Gestur ölafsson 133 MitiVMin rfþr land okVar Af bls. 14. viðvfkjandi hernum er fáránlegt, - það eru lygar og áróðursbragð, - upp- spuni frá rótum. fsland yrði aldrei varið nema með styrjöld og gæti slfkt orðið dýrkeypt spaug. Herstöðin hefur engan varnarmátt, enda er hún ekki hér til að verja okkur fslendinga, þvf hvaða heilvita manni dettur f hug, að Bandarfkjamenn láti hag okkar sig einhverju skipta. Það hefur þvf míður bæði sýnt sig og sannað, að þar skiptir ekkert máii nema þeirra eigin hagsmunir og hika þeir ekki við að myrða heila þjóð, ef þvf er að skipta. f þorskastrfðinu, þegar einni "vinaþjóðinni" varð það á að haldast hér uppi vopnavald og yfirgangur, þá reyndust bæði varnarsamningurinn og Natoaðild Iftils virði, - þá urðum við einir að standa f strfði, þrátt fyrir alla þá aðstoð og allt það verndarblaður, sem fest er á blað f Natosáttmálanum. A Suðurnesjum hefur herinn sprengt upp húsaleigu, þar grær herstöðin eins og iílgresi f vanræktum jurtagarði, illgresi, sem við eigum að taka okkur saman um að reyta.- Það er augljóst mál, að Bandarfkjamenn ætla sér að gleypa hverja fs- lenzka sál og hafa nú þegar náð f sárgrætilega margar. Við höfum fylkt okkur um arðræningja og kúgara, við höfum látið þjáningar annarra okkur engu skipta, en varpt eggjum fyrir blóðþyrsta og peningasjúka djöfla. Eg skil ekki blindni fólks f þessum efnum, skil ekki hversu mjög hefur tekizt að breyta manndómi margra, hvernig sjálfstæðishvatir þeirra virðast afmáðar með öllu. Afleiðing hersetunnar er glötun heið- arleika, frelsis, sjálfstæðis og þjóðernis, hún er djöfullinn sjálfur. A Suðurnesjum eru mörg sjávarútvegsþorp og þar er auðvelt fyrir okkur að byggja upp fullvinnslu sjávarafurða, sem skapaði næga atvixmu. Það er svo sannarlega tfmi til kominn að amerfska auðvaldið hætti að græða á fslenzkum verkalýð. - Við fslendingar einir höfum rétt til að ráða þessu landi og byggja það. Enn höfum við tækifæri og skulum þvf neyta allra krafta til að koma hernum burt. - VINNUM AFTUR LAND OKKAR OR HÖNDUM AMERISKS AUÐVALDS. Unnur S. Bragadóttir

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.