SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Qupperneq 6

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Qupperneq 6
6 6. febrúar 2011 Georg W. Bush lagði fram tillögu sína um breytingu á stjórnarskránni sem kvæði á um bann við hjónabandi sam- kynhneigðra í andstöðu við Dick Cheney árið 2004. Mary dóttir Cheneys er sam- kynhneigð og kom afstaða hans skýrt fram í kosningabaráttunni fyrir forseta- kosningarnar sama ár. „Frelsi merkir frelsi fyrir alla,“ sagði hann t.a.m. á fundi í Mississippi, þar sem dóttir hans var meðal gesta úti í sal, en hún vann öt- ullega að framboði föður síns. „Fólk ætti því að hafa frelsi til að vera í hvers konar samböndum sem það kýs,“ hélt faðir hennar áfram. Cheney lá undir gagnrýni vegna þessa, ekki síst frá hinu íhaldssama Fjölskyldurannsóknarráði (Family Rese- arch Council) en forseti þess lét hafa eftir sér að hann ætti erfitt með að ímynda sér að varaforsetinn myndi taka aðra afstöðu en ríkisstjórnin í málum er vörðuðu skatta eða varnir landsins. „Margir kjósendur sem styðja fjölskylduna líta svo á að verndun hefðbundins hjónabands sé mikilvægara málefni en efnahagur lands- ins eða atvinnusköpun.“ Talsmenn the Human Rights Campaign sögðu þetta hins vegar sýna hversu sterk andstaða væri við tillögu Bush, jafnvel innan hans eigin flokks. Vann að varaforsetaframboði föður síns Mary Cheney ræðir hér við föður sinn á kosningafundi en hún tók virkan þátt í kosningabaráttu hans árið 2004. S amkynhneigðir í Bandaríkjunum hafa löngum barist fyrir rétti til að ganga í hjónaband við mikla andstöðu, ekki síst hjá Repú- blikanaflokknum. Nú hefur þeim borist liðsauki úr óvæntri átt því Barbara Bush, dóttir George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur í auglýsingu sem var frumsýnd á vefnum á mánudag stigið fram og hvatt til þess að hjónabönd samkynhneigðra verði leyfð. Faðir hennar hefur hins vegar alla tíð barist hatrammlega gegn slíkum rétt- indum samkynhneigðra og lagði meðal annars til árið 2004 að bandarísku stjórnarskránni yrði breytt þannig að hún bannaði fylkjum Bandaríkjanna að lögleiða hjónabönd fólks af sama kyni. Sú breyting hlaut hins vegar ekki brautar- gengi meðal þingmanna svo ákvörð- unarvaldið liggur enn hjá hverju fylki fyrir sig. Ákalli Barböru Bush um að samkyn- hneigðum verði gert kleift að ganga í hjónaband er einmitt ætlað að ná eyrum þeirra sem ráða ríkjum í New York-fylki, en frumvarpi þess efnis var hafnað árið 2009. Auglýsingin er hluti herferðar samtaka sem berjast fyrir réttindum samkynhneigðra og kalla sig The Human Rights Campaign. Í upptökunni segir Barbara Bush að um sé að ræða spurningu um sanngirni og jafnrétti. „Allir eiga að hafa rétt á að ganga að eiga þann sem þeir elska,“ segir hún og endar á því að hvetja fólk til að leggja baráttunni lið. Dætur Cheneys og McCains á sama máli Þetta er ekki í fyrsta sinn sem barn leið- toga í fremstu röð í Repúblikanaflokkn- um mælir fyrir hjónaböndum samkyn- hneigðra. Eins og New York Times rifjar upp hef- ur Meghan McCain, dóttir Johns McCa- ins, forsetaframbjóðanda repúblikana ár- ið 2008, talað fyrir lögleiðingu þeirra, þrátt fyrir andstöðu föður síns. Sömu- leiðis hefur Mary Cheney, dóttir Dicks Cheneys fyrrverandi varaforseta, barist kröftuglega fyrir þessum réttindum, enda sjálf samkynhneigð. Það eru þó ekki aðeins börn þessara foringja sem hafa lagt málefninu lið, heldur einnig eiginkonur þeirra, þótt með misjöfnum hætti sé. Þannig sagði Laura Bush í sjónvarpsviðtali við Larry King á síðasta ári að þó að margir líti svo á að hjónabandið eigi að vera milli karls og konu væri hún þeirrar skoðunar að þegar pör hefðu helgað sig hvort öðru og elskuðu hvort annað ættu þau að hafa sömu réttindi og aðrir. Frú McCain hefur látið hafa eftir sér að það sé óheilbrigt fyrir þá sem tilheyra pólítískum fjöl- skyldum að breiða yfir ágreining um fé- lagsleg réttindi, aðeins til að viðhalda ímynd af samheldni. Barbara Bush, sem er 29 ára, hefur sett á laggirnar sjálfboðahóp sem einbeitir sér að heilbrigði jarðarinnar en hún talar hins vegar afar sjaldan um málefni sem varða amerísk stjórnmál. Því meiri at- hygli vekur það þegar hún lætur til sín taka á þeim vettvangi. Tjáir sig sjaldan um bandarísk stjórnmál Fjölskylda hennar hefur verið treg til að ræða við blaðamenn um þátttöku hennar í baráttunni nú fyrir réttindum samkyn- hneigðra. Laura Bush hafnaði viðtals- beiðni New York Times og sagði tals- maður hennar að hún hefði ekkert að segja um málið. Tvíburasystir Barböru, Jenna Bush Hager sem er fréttaritari fyrir Today, hefur heldur ekki rætt málið opinberlega. Samtökin sem standa fyrir herferðinni stefna á að sýna auglýsinguna á viðhafn- arballi sem haldið er árlega í New York- borg. Talsmenn þeirra segja að auglýs- ingin muni sýna kjörnum fulltrúum og kjósendum í fylkinu að ungt fólk fylgi ekki endilega í fótspor feðra sinna þegar kemur að hugmyndafræði. Óháð því hvaða flokki þeir tilheyri þá trúi ungir Bandaríkjamenn á sanngirni og jafnrétti. Barbara Bush lagði föður sínum iðulega lið í baráttu hans í aðdraganda forsetakosninga. Reuters Ósammála föður sínum forsetanum Barbara Bush vill heimila hjónabönd samkynhneigðra Vikuspegill Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Nánir vinir Barböru Bush segja að hún hafi átt samkynhneigða vini í áraraðir, bæði þegar hún var í Yale háskóla og einnig í New York, þar sem hún býr og hefur starfað innan hönnunarheims- ins. Afstaða hennar í málefnum sam- kynhneigðra kemur þeim því ekki á óvart. Á samkynhneigða vini Barbara Bush í auglýsingunni. ÞORRINN 2 011 Þorrahlaðborð – fyrir 10 eða fleiri – 1.990 kr. á mann www.noatun.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.