SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Page 13

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Page 13
6. febrúar 2011 13 H ún man eftir að hafa sest upp í bílinn og ekið af stað sem leið lá frá Reykjavík til Þorláks- hafnar, þar sem hún átti að mæta í vinnu í Skálanum í hádeginu. Næst man hún eftir sér á gjörgæsludeild Landspítalans tveimur vikum síðar, í gifsumbúðum frá hvirfli til ilja. Þegar hún náði áttum var Valgerður Erla Óskarsdóttir upplýst um að hún hefði lent í alvarlegu bílslysi. Daginn eftir slysið, 18. mars 2007, var eftirfarandi frétt að finna í Morgunblaðinu: „Kona slasaðist alvarlega þegar fólksbíll og jeppi rákust saman á Þrengslavegi á Suðurlandi um hádegisbil í gær. Konan festist í bílnum og tók um eina klukkustund að ná henni úr bílnum. Á þriðja tug björgunarmanna, sjúkraflutningamenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og Slökkviliði Hvera- gerðis og lögreglumenn voru kallaðir til. TF LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var einnig kölluð út og flutti hún konuna á Landspítala – háskólasjúkrahús. Hún er mikið slösuð en með meðvitund.“ Var heppin – mjög heppin „Ég man ekkert eftir slysinu,“ segir Valgerður í samtali við Sunnudagsmoggann, nú tæpum fjórum árum síðar, en hún var aðeins tvítug þegar slysið átti sér stað. „Þegar mér voru sýndar myndir af vettvangi rak ég bara upp stór augu. Hvað ertu að segja, var ég þarna? Mér finnst eins og þetta sé allt önnur manneskja. Ég var með með- vitund mestallan tímann en samt man ég ekki nokkurn skapaðan hlut.“ Þegar téðar myndir, sem Júlíus Sigurjónsson, ljós- myndari Morgunblaðsins, tók á slysstað eru skoðaðar sætir furðu að við Valgerður séum yfirhöfuð að tala sam- an. „Það er rétt,“ segir hún. „Ég var heppin. Mjög hepp- in.“ Slysið varð með þeim hætti að ökumaður pallbíls sem kom úr gagnstæðri átt missti stjórn á bílnum í hálku og skall af fullum þunga framan á Toyota Yaris-bifreið Val- gerðar á röngum vegarhelmingi. Bíllinn snerist í 180 gráður og hafnaði utan vegar. Valgerður sat föst í flak- inu. „Það varð mér til happs að mennirnir sem voru fyrstir á vettvang, Jón Páll Hallgrímsson og Þráinn Fa- restveit, kunnu til verka. Ég náði ekki andanum og þeir brutu sætisbakið til að gera mér kleift að anda, auk þess sem þeir hreinsuðu glerbrot úr munninum á mér. Hann var víst fullur af glerbrotum. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessir menn björguðu lífi mínu.“ Hún hefur hitt þá félaga síðan en vill nota þetta tæki- færi til að ítreka þakklæti sitt. Eins vill hún þakka öllum hinum sem komu að björgun hennar á slysstað. „Það var mikill fjöldi fólks á vettvangi. Nokkrum mánuðum síðar kom ókunnugur maður að máli við mig á Selfossi og tal- aði um að gaman væri að sjá mig svona hressa. Ég mundi auðvitað ekkert eftir manninum en hann hafði verið á slysstaðnum.“ Valgerður kveðst hafa dottið inn og út meðan hún var föst í bílnum. „Í hvert skipti sem ég datt út héldu þeir að ég væri farin en alltaf rankaði ég við mér aftur. Það var hálftíma bið eftir sjúkraliðinu en í það heila var ég í um klukkustund í bílnum.“ Foreldrarnir biðu á spítalanum Fyrrverandi mágur Valgerðar var einn þeirra sem komu að slysinu og kom hann þegar í stað boðum til foreldra Valgerðar, sem búa í Vestmannaeyjum. Þau stukku beint upp í næstu flugvél og voru komin á undan dóttur sinni á spítalann. „Þau fengu að sjá mig áður en ég fór í aðgerð en ég man heldur ekkert eftir því.“ Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að ökumaður pallbíls- ins hafði ekið of hratt og hlaut hann dóm í kjölfarið. „Hann slapp sem betur fer með minniháttar meiðsli og við höfum hist síðan. Hann iðrast gjörða sinna og ég ber engan kala til hans. Þetta bara gerðist.“ Til allrar hamingju sluppu öll helstu líffæri í slysinu en Valgerður mölbrotnaði (sjá mynd hér að ofan). Negla þurfti sum brotanna saman. Í fyrstu óttuðust læknar að taka þyrfti af henni annan fótinn en smám saman jókst blóðflæði fram í fótinn og fyrir vikið slapp hann. Henni var pakkað vandlega inn í gifsumbúðir og næstu tvo mánuðina var ekki um annað að ræða en að liggja kyrr. Það hlýtur að hafa verið leiðinlegur tími. „Nei, ekki svo,“ rifjar Valgerður upp. „Vinir mínir og Valgerður Erla Óskarsdóttir á Þrengslavegi í vikunni, þar sem slysið varð fyrir fjórum árum. „Mér finnst þessi staður vera partur af mér.“ Morgunblaðið/Júlíus Maður lifir ekki svona af einn! Valgerður Erla Óskarsdóttir slasaðist alvarlega í bílslysi á Þrengslavegi fyrir fjórum árum, þá tvítug að aldri. Mildi þykir að hún hafi komist lífs af en Valgerður hefur enn ekki bitið úr nálinni með slysið, er enn að undirgangast aðgerðir vegna beinbrota. Eigi að síður er hún þakklát og horfir björtum augum fram á veginn. Þetta hefði getað farið svo miklu verr. Ljósmyndir: Júlíus Sigurjónsson julius@mbl.is Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Öll rifbein nema tvö Hægri ökkli Bæði hné Hægra læri Hægri mjöðm Vinstri úlnliður Vinstri olnbogi Grafík/Rebekka Líf

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.