SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Page 18
18 6. febrúar 2011
Þ
ví er lofað í kynningartexta frá Borg-
arleikhúsinu að Nýdönsk mæti áhorf-
endum á nýjan hátt í návígi leikhússins
og getur undirrituð vottað um það (og
sömuleiðis meðfylgjandi myndir) eftir að hafa litið
inn á æfingu. Eins og margir vita eru góðir sagna-
menn í sveitinni og líka leikarar og þarna lifna
sögurnar við.
Jón Ólafsson, sagnameistari og hljómborðsleik-
ari, upplýsir að hugmyndin að sýningunni komi
frá hljómsveitinni sjálfri sem bar þetta undir leik-
hússtjórann Magnús Geir Þórðarson. Hann var
„meira en til í að leggja okkur lið og fara í samstarf
með sýninguna. Hann er enda dyggur aðdáandi
hljómsveitarinnar frá því hann var í MR.“
Sýningin er sambland af leiksýningu og tón-
leikum. „Við kjósum að kalla þetta tónleik í
tveimur þáttum,“ segir Jón en sýningin er sam-
bland af leiknum atriðum, hreyfilist og tónlist
hljómsveitarinnar auk þess sem eftirhermum
bregður einnig fyrir. Uppröðun atriða er sí-
breytileg. Eins og Jón segir er nóg af gamanmálum
í sýningunni en vitaskuld á tónlist hljómsveit-
arinnar stærstan þátt enda af nógu að taka.
Sveitin fékk Gunnar Helgason til liðs við sig til
að koma sýningunni saman og hefur samstarfið
verið „feikigott enda vissu meðlimir sveitarinnar
að hverju þeir gengu í þeim efnum. Skipulagður,
skemmtilegur og óhræddur við að tjá skoðanir
sínar. Nákvæmlega það sem við þurfum,“ upp-
lýsir Jón.
Aðdáendum er bent á að aðeins sjö sýningar eru
fyrirhugaðar á Nýdönsk í nánd og verða þær allar
á Litla sviði Borgarleikhússins í febrúar.
Leikfimibræðurnir Kaffi (Björn Jörundur) og Konni (Daníel Ágúst) í miðri
æfingu. Þeir hafa starfað með hléum í yfir 20 ár.
Tónleikur í
tveimur þáttum
Bak við tjöldin
Áhorfendur fá að sjá eina ástsælustu hljómsveit landsins í
nýju ljósi í sýningunni Nýdönsk í nánd sem frumsýnd
verður í Borgarleikhúsinu á miðvikudaginn. Tónlistin er í
fyrirrúmi en tilþrif liðsmanna í hreyfilist eiga ekki síður
eftir að heilla landann.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is
Hinn skrautlegi og hárprúði Rokk Harðarson kynnir eitt og annað sem
fram fer á sviðinu en hann er fyrrum Elvis-eftirherma.
Ólafur Hólm og Ingi Skúlason eru undirstöðurnar sem byggt er á.