SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Side 24

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Side 24
24 6. febrúar 2011 G ummi, mig langar að kaupa mér svona plötumyndavél þegar ég verð gamall karl. Það hlýtur að vera gaman að taka myndir á svona græju. Mig langar að taka myndir af ísjökum á Grænlandi, filman er svo flott. Það gætu orðið frábærar myndir í svarthvítu ef jakarnir verða ekki allir bráðnaðir áður. „Af hverju þarftu að vera orðinn gamall karl til þess? Gerðu það bara strax, hérna fáðu þessa lánaða og prófaðu bara og hættu svo þessu röfli.“ Gummi rétti mér þessa forláta Linhof-myndavél með risastórum blaðfilmum. Ég kann ekkert á þetta dót. „Þú gerir bara svona og svona og svo svona, snýrð þessu við og skrúfar út belginn. Gleymdu ekki að stinga stálplötunni fyrst í vélina áður en þú skiptir um filmu eftir hverja mynd. Og svo bara svona og svona og tekur mynd. Ertu með? Náðir þú þessu?“ Ha, já, ekkert mál, svaraði ég. Ég heyrði ekki orð af því sem Gummi sagði, þau fóru inn um annað eyrað og út um hitt, ég var svo spenntur að prófa að taka myndir á þessa súper- græju. Ég vildi ekki láta Guðmund sjá að ég skildi ekkert af því sem hann sagði, ég ákvað að finna bara út úr þessu á eftir. „Svona drífðu þig af stað, ég sé þig bara á morgun eða hinn, svo framkallar þú þetta hjá mér,“ sagði Guðmundur. Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari er algjör eðal- drengur og einn best geymdi snillingur Íslands. Hann er alltaf tilbúinn að miðla af þekkingu sinni sem virðist vera endalaus. Guðmundur getur gosið eins og eldfjall ef honum mislíkar eitthvað og þá er nú gaman að honum, en gosið stendur yfirleitt stutt. Svo stutt að það næðist ekki einu sinni á mynd. Svo koma skemmtilegar sögur af fólki og lífinu í landinu. Það er alltaf gaman að heimsækja Guðmund. Það hefur aldrei borið skugga á okkar vinskap sama hvað ég ríf mikinn kjaft eða skil oft eftir viljandi skítug fingraför á afturendanum á alsberu hvítu gifsstytt- unni sem liggur á borðinu hans. Guðmundur hefur lúmskt gaman af uppátækinu, en ég sé stundum að hann nennir ekki að mála stöðugt yfir fingraförin með hvítri málningu. Ég var ekkert að draga að prófa þessa myndavél, vildi ekki hafa hana lengi ef Guðmundur þyrfti að nota hana. Ég keyrði með suðurströndinni og undir Eyjaföllin, það var snjómugga í lofti og föl yfir öllu en klettarnir skinu í gegn. Ég mundaði fínu vélina hans Guð- mundar og reyndi að finna út hvernig hún virkaði. Þetta var nú ekkert sérlega flókið en samt þarf að hugsa um það sem maður er að gera. Það er oft þannig í vinnunni að maður hugsar ekkert sértaklega út í tæknihliðina á sínum eigin vélum, hlutirnir gerast bara einhvern veginn eins og maður vill að þeir gerist. Ég byrjaði að æfa mig á vélina en ætlaði ekki að taka mynd fyrr en ég kæmi að þeirri mynd sem ég vildi ná, hún átti að koma til mín. Ég varð að spara filmurnar, átti bara 6 filmublöð. Ég hef aldrei unnið í lottóinu, alla vega ekki svo ég viti. Ég hef nefnilega aldrei gáð að því hvort ég hafi verið heppinn og unnið. En stundum er maður heppinn þegar kemur að því að ná mynd sem maður verður sáttur við. Allt í einu undir fjöllunum glitti í hvítan hest undir svörtum steini. Snjómuggan leið áfram í stórum flyksum, vindurinn var hægur og allt í góðu lagi að taka mynd á þessa viðkvæmu plötumyndavél. Nú þurfti að hafa hraðar hendur og ég bölvaði sjálfum mér fyrir að hafa ekki haft meiri þolinmæði til að hlusta á Guðmund þegar hann sýndi mér hvernig ætti að nota vélina. Þrífóturinn út, mynda- vélin gerð klár og belgurinn dreginn út. Gera svona og svona og svo svona og taka mynd. Ég smellti af mynd og áttaði mig um leið að ég hafði ekki gert Í óravíddum innra rýmis alheimssnjó- muggunnar Það er ekki á hverjum degi sem brim, fjall og hvítur hestur renna saman á mynd. Það gerðist þó þegar ég fékk forláta plötumyndavél lánaða hjá Guðmundi Ingólfssyni. Sagan bak við myndina Ragnar Axelsson rax@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.