SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 26

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 26
26 6. febrúar 2011 Þ að var 23. mars á síðasta ári þegar Arnar Pálsson, 37 ára gamall flugvirki hjá Ice- landair, hélt til Moskvu til að vinna fyrir flugfélagið í einn mánuð. Þá voru tvö ár liðin frá því hann tók svo- kölluð týpuréttindi á 757 vélar félagsins og samkvæmt samningi áttu hann og fleiri kollegar hans að fara þrjár ferðir til Rússlands á árinu, mánuð í senn. Þegar Arnar kom til Moskvu kom í ljós að hann hafði fengið vitlausa vega- bréfsáritun; í stað þess að fá áritun sem gerði honum kleift að starfa á VIP- flugvellinum í höfuðborginni, fékk hann túristaáritun. Hann átti því engra annarra kosta völ en að eyða mán- uðinum á litlum flugvelli í Yakutsk. „Starfið felst í því að hafa umsjón með rússneskum flugvirkjum sem sinna vélum sem eru á leigu hjá Ice- landair. Venjulega gengur þetta þannig fyrir sig að maður kemur út og fer viku til Yakutsk á meðan verið er að ganga frá áritunum og þess háttar, en fer svo til Moskvu og er að vinna þar í mán- uð,“ segir Arnar. Hann segir fínt að vera í Moskvu, þar séu menn fleiri saman en hins vegar sé aðeins einn maður frá Icelandair að störfum í Yak- tusk á hverjum tíma og flestum þyki það heldur óspennandi. „Þetta er dálít- ið eins og að vera Palli einn í heim- inum. Þetta er í raun eins og lítið þorp frekar en borg og enginn talar ensku. Maður eyðir miklum tíma á hótelher- berginu, bara að horfa á bíómyndir í fartölvu.“ Framkvæmdi dýrahljóð Arnar gerði þó gott úr hlutunum og var duglegur að fara á pöbbinn og skoða sig um. Í Yakutsk búa rétt undir 300 þúsund manns og að sögn Arnars eru flestir staðir í stuttu göngufæri. Það reyndist þó þrautin þyngri að eiga samskipti við heimamenn og lenti hann m.a. í miklum vandræðum á veitinga- húsum bæjarins. „Á veitingastöðum varð ég bara að benda og reyna að leika einhver dýra- hljóð. Ég fór t.d. eitt skipti á kínversk- an stað og matseðillinn var bara á rúss- nesku og kínversku. Það voru þó myndir líka og ég benti á djúpsteiktar rækjur og eftir að þjónustustúlkan var búin að gera einhverjar handahreyf- ingar út í loftið benti ég bara aftur. Hún hló og kom stuttu síðar með 5 djúpsteiktar rækjur á diski. Þá er það víst þannig að maður þarf líka að panta allt meðlæti með, hrísgrjón, grænmeti og þess háttar.“ Þegar Arnar var búinn að vera tvær vikur í Yakutsk var haldin ferða- mannahelgi á hótelinu þar sem hann dvaldi og komu ferðaskrifstofur og settu þar upp bása. Allt í einu var hann umkringdur fólki sem talaði ensku, mismikla þó. Á bás þar sem seldar voru ferðir til Hawaii, hitti hann tvær stúlk- ur og þær kynntu hann fyrir yfirmann- eskju sinni, konu sem hét María Shis- higin og talaði hún ljómandi góða ensku. Seinna um kvöldið, þegar hann ætlaði að fá sér að borða, var kallað í hann af einum af veitingastöðum hót- elsins og var það maður sem hann kannaðist lítillega við. „Ég vissi alveg hvað þetta kall þýddi. Þessi maður hafði reynt að fá mig í ís- köfun en sat nú og drakk vodka og ég vissi að hann myndi ætlast til þess af mér líka. En ég var latur og nennti ekki í kuldagallann til að fara eitthvað ann- að, þannig að ég ákvað að vera fljótur að borða og panta mér bjór; ef maður er með drykk þá er það afsökun fyrir því að drekka minna af vodka,“ út- skýrir Arnar. Eftir stutta stund kom yfirmann- eskjan á Hawaii-básnum labbandi að borðinu en Arnar tók eftir því að hún horfði stutta stund á hann áður en hún settist við hliðina á honum. „Hún sagði mér seinna að ég hefði setið í sætinu hennar og hún hefði verið að velta því fyrir sér að segja mér að hypja mig í burtu en hætti svo við og ákvað frekar að setjast hjá mér til að geta æft ensk- una sína.“ Arnar og María spjölluðu saman allt kvöldið og sammældust um það að hittast daginn eftir. Þeim kom vel sam- an og á næstu dögum fór María með Arnar um heimaborgina sína og sýndi honum allt sem vert var að sjá. María er mongólsk eins og aðrir íbú- ar Yakutsk og á stóra fjölskyldu en að sögn Arnars er þetta lítið samfélag á rússneskan mælikvarða og mikil sam- heldni og samhugur í fólkinu. Starf Maríu á ferðaskrifstofunni er auka- starfið hennar en aðallega sinnir hún enskukennslu í háskólanum í borginni. Það heillaði Arnar hvað hún var lífs- glöð og óhefðbundin en María upp- ljóstraði því snemma að hún væri dá- lítil andakona, eins og hann fékk fljótt að kynnast. Þegar þau höfðu eytt viku saman var komið að kveðjustund en Arnar sagði að þau myndu hittast þegar hann kæmi aftur í júlí. „Hún sagði bara nei, ég væri ekkert að fara heim og myndi koma strax aftur til hennar. Þegar ég svo kom til Moskvu var búið að loka öllu út af Eyjafjallajökli og ég ekkert á leiðinni úr landi,“ segir Arnar, sem gekk lygilega vel að fá framlengingu á áritunina sína. Á meðan flestir ferða- menn stóðu í ótrúlegu stappi gekk allt í sögu hjá honum; greiðvikinn leigubíl- stjóri kom honum á réttan stað, hjálp- söm stúlka hjálpaði honum með papp- írana og einhverjum skrifstofumanni sem hann kann ekki deili á leist svo vel á hann að hann fékk tíu daga fram- lengingu í stað viku. Innan skamms var hann kominn aftur til Maríu í Yakutsk. Vildi gifast sem fyrst Þegar Arnar snéri aftur settust þau fljótlega niður og játuðu ást sína hvort á öðru. Arnar segist hafa vitað það strax í fyrstu vikunni að það yrði ekki aftur snúið, þau höfðu bæði fundið fyr- ir sterkum tilfinningum hvort til ann- ars. Það kom honum hins vegar á óvart að eftir aðeins vikusamband fór María að tala um hjónaband. Hann komst fljótt að því að hún hafði lengi verið að leita sér að eiginmanni, enda orðin 35 ára gömul en algengt er að konur í Ya- kutsk séu giftar í kringum 25 ára aldur. „Hún hafði farið til spákonu sem Ástfangin á einni viku Hitastigið var rétt farið nið- ur fyrir -50° á celsíus þegar Arthur Palsson kom í heiminn 18. janúar síðastliðinn í Yakutsk í Síberíu. Foreldrar hans kynntust aðeins níu mánuðum áður, þegar Eyja- fjallajökull lokaði flugumferð um Evrópu. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is María teygar þjóðardrykkinn sem er úr hestamjólk og kallast kumis. Yakutsk helgiathöfn. Það boðar gæfu ef eldurinn kviknar við fyrstu tilraun. Útskorið skaft með hrossahárum til að bægja frá illum öndum. Um 150 gestir mættu í brúðkaupsveisluna en María valdi þemað sem var „rautt“. Eftir athöfnina var dúfum sleppt til merkis um bjarta framtíð brúðhjónanna. Brúðkaupið vakti mikla athygli úti.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.