SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Síða 39
6. febrúar 2011 39
H
ún er sannarlega með höfuðið fullt
af hugmyndum vinkona mín sem
kennir sig við bókstafinn J og er
höfundur bókarinnar góðu sem ég
minntist á í síðasta pistli, The Sensuous Wom-
an. Hún hefur ráð undir rifi hverju og telur
upp og kennir hvorki meira né minna en tíu
æfingar sem konur skuli tileinka sér til að auka
sitt frygðarnæmi. Meðal annars með því að
leggjast klæðalaus upp í rúm og bera smyrsl á
sinn kropp: „Láttu þá munaðarkennd sem
hendur þínar vekja, þegar þær gæla mjúklega
við hvert leiti, laut og afkima líkama þíns,
seytla um hverja taug. Þá fyrst, þegar þú metur
óviðjafnanleika þíns eigin líkama, verður þú
þess umkomin að gefa sjálfa þig skilyrðislaust í
ástaratlotum og kynmökum.“
Nákvæmar tunguæfingar sem hún mælir með
eru líka athygliverðar. Fetta, bretta og teygja
skal tungu eftir kúnstarinnar reglum til að gera
hana sterka og lipra, svo hún hafi úthald í
heitum leik. Gera skal tunguæfingar þessar 25
sinnum á dag.
Sjálfsfróun fær að sjálfsögðu heilan kafla í
bókinni, enda engin leið fyrir konu að komast
að því hvar og hvernig hún vill láta snerta sig
ef hún hefur ekki sjálf kannað sín innstu rök.
Og merkilegt nokk, gáfaðar
konur telur hún hafa öðrum
fremur vit á því að fróa sér:
„Vel gefnar konur iðka oft
sjálfsfróun svo að kveður,
vegna þess að þær hafa komizt
að raun um að hún opnar
þeim hlið frygðarinnar;
styrkir kynfæravöðv-
ana og eykur fjað-
urmagn þeirra.“
Nokkrar aðferðir
sjálfsfróunar kennir
hún ýtarlega í bókinni,
m.a með vélrænni að-
stoð, með handfjötlun,
vatnsfróun o.fl.
En óvenjulegasta og
tæknilegasta aðferðin
til sjálfsfróunar sem
hún hefur heyrt getið
„er í því fólgin að þú fyllir sjálfvirku þvotta-
vélina þína af þvotti, ræsir hana og þrýstir
síðan lífbeininu svo fast að hurðinni, að
átökin og titringurinn innan hennar berist
rétta boðleið um sköpin og veki þar til-
hlýðileg viðbrögð“. Sérlega myndræn lýs-
ing og ánægjulegt fyrir þá sem umgangast
heimilistæki mikið að vita hvernig breyta
má þeim í fjölnota fýsnatól.
Heimilistækjaorgía
Stigið í vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
’
Þrýstir
síðan líf-
beininu
svo fast að
hurðinni, að
átökin og titr-
ingurinn innan
hennar berist
rétta boðleið.
Charlie karlinn Sheen er steinhættur að botna í fjölmiðlum þessa heims.
Meðan Egyptaland er í ljósum logum virðast sumir fjölmiðlar vestanhafs
hafa meiri áhuga á einkalífi hans. „Egyptaland er við það að brenna til
kaldra kola en allt sem þið hafið áhuga á er bullið í mér. Það er aumk-
unarvert. Skamm, skamm, skamm,“ sagði kappinn fullum hálsi í samtali
við sjónvarpsstöðina E! Sem fyrr á aumingja Sheen ekki sjö dagana
sæla. Hann batt ungur trúss sitt við Bakkus og fyrir skemmstu var hann
fluttur á sjúkrahús í annarlegu ástandi, að sögn sjónarvotta. Ekki fékkst
hann þó til að upplýsa E! frekar um það mál. „Ég mun ekki ræða um
þessa hluti opinberlega svo lengi sem ég lifi.“
Sheen skammar fjölmiðla
Leikaranum knáa Charlie Sheen er greinilega ekki alls varnað.
Reuters
Kínversk fangelsismálayfirvöld
hafa fundið nýja leið til að refsa
föngum fyrir glæpi sína: Að þvo
fætur ættingja sinna. Með brotum
sínum kalla glæpamenn vitaskuld
skömm yfir sína nánustu og yf-
irvöld í Jialing-fangelsinu í efndu til
allsherjar þvottadags í vikunni, þar
sem 150 fangar lauguðu fætur um
450 ættingja sinna í vatni.
„Þetta er gamall siður hérna í
Kína sem við ákváðum að end-
urvekja,“ sagði talsmaður fangels-
isins. „Þetta fær fangana til að
hugsa um glæpi sína og afleiðingar þeirra. Dagurinn
var tilfinningaþrunginn og gestum var boðið að kaupa
ljósmynd til minja um uppátækið.“
Fótabað í fangelsi
Hreinir fætur.
ingaári. Þar nefndi hún að breyta
yrði stjórn fiskveiða og leggja á
veiðileyfagjald, skoða aðild að
ESB, breyta skattkerfinu, spara í
ríkisrekstri og fækka ráðu-
neytum. Ekki er ofsagt að sam-
hljómur sé meðal þeirra atriða
sem þarna eru nefnd og viðfangs-
efna núverandi ríkisstjórnar.
Eftir efnahagshrunið haustið
2008 breyttust viðhorf í íslenskri
pólitík. Samfylking og VG tóku höndum saman um stjórn-
arsamstarf og Jóhanna Sigurðardóttir varð forsætisráð-
herra, skv. tillögu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir sem
hætti afskiptum af stjórnmálum vegna veikinda. Segja má
að ferill Jóhönnu sem oddvita ríkisstjórnarinnar hafi
markast mjög af þeim viðfangsefnum sem ríkisstjórnin
hefur þurft að glíma við. Eftir hrikalega atburði líka
hruninu hefur þurft að grípa til margvíslegra ráðstafana
sem margar hafa ekki verið til vinsælda fallnar. Og í sum-
um efnum hafa ríkisstjórninni verið mislagðar hendur, svo
sem í kosningum til stjórnlagaþings sem Hæstiréttur ógilti
á dögunum. Viðbrögð Jóhönnu þá voru harkaleg eins og
sást á frægri Morgunblaðsmynd.
Er Jóhanna rétt kona á réttum stað og tíma og vel að
embætti komin? Um slíkt getur aðeins sagan dæmt. Hitt er
rétt að hafa í huga að 1994 nefndi Jóhanna að hugsanlega
kæmi til greina að ráðherrar afsöluðu sér þingmennsku og
jafnvel að forsætisráðherra yrði kosinn beint sem hún hef-
ur ekki nefnt eftir að hún sjálf komst á tindinn.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Jafnvel að for-
sætisráðherra
yrði kosinn
beint sem hún hefur
ekki nefnt eftir að
hún sjálf komst á
tindinn.
–– Meira fyrir lesendur
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku og förðun
föstudaginn 18. febrúar 2011.
Í Tísku og förðun verður fjallað
um tískuna vorið 2011 í förðun,
snyrtingu og fatnaði, fylgihlutir
auk umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 14. febrúar.
MEÐAL EFNIS:
Förðunarvörur.
Förðrun.
Húðin,krem og meðferð.
Snyrting.
Neglur.
Kventíska.
Herratíska.
Fylgihlutir.
Skartgripir.
Það heitasta í tísku fyrir
árshátíðirnar.
Hvað verður í tísku á vor-
mánuðum.
Tíska & Förðun
sérblað