SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Side 40

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Side 40
40 6. febrúar 2011 Lífsstíll Þ að er bæði hagkvæmt og skemmtilegt að baka. Þess vegna ætti maður í raun alltaf að vera að baka. Sérstaklega um helgar því þá hefur mað- ur yfirleitt aðeins meiri tíma. Þá eru líka fleiri á lausu til að koma og njóta þess að borða gúmmulaðið með manni. Löngum hefur maður bakað eplakökur og bökur ýmiskonar. Gott ef það var ekki eitt það fyrsta sem manni var kennt að baka í skólanum í gamla daga. Svona fyrir utan kanilsn- úða og gerbollur. Einfaldur eftirréttur þar sem höfrum, smjöri og sýrópi er skellt yfir epli varð líka vinsælt á há- skólaárunum en stundum hefur nú maður líka gert aðeins veglegri slíka rétti. Nýverið tók ég mig til og bakaði eplaköku eftir leyniuppskrift bróður míns. Þar af leiðandi get ég augljóslega ekki gefið ykkur uppskriftina, les- endur góðir. Heldur ekki ykkur, ætt- ingjum og vinum. Það eina sem ég get gert er að baka kökuna gómsætu fyrir ykkur og borið fram volga með þeyttum rjóma og ískaldri mjólk. Þegar þetta berst í tal er skemmtilegt að velta fyrir sér höf- undarétti að uppskriftum. Þetta er nokkuð sem þjóð- fræðingar læra um að hluta og velta fyrir sér. Höf- undarétt og verndun þjóðlaga og uppskrifta má að vissu leyti bera saman. Á t.d. einhver uppskriftina að íslensku lambalæri með öllu tilheyrandi eða er hún þjóðareign? Þessu getur verið skemmtilegt að velta fyrir sér þó óvíst sé að maður komist að nokkuri niðurstöðu. En nóg um það, því ég ætlaði jú aðallega að nota þennan pistil til að monta mig af bakstursdugnaði mínum. Þannig var að ég ákvað að bjóða vinkonum mín- um til mín í brunch á sunnudaginn. Þess skal getið að þær komu líka með veitingar en ég hrærði og kom í ofn- inn þessari gómsætu eplaköku. Hún var svo góð að við borðuðum meira en helminginn af henni. Okkur til máls- bóta borðar reyndar ein okkar fyrir tvo (nei algjör óþarfi að svelgjast á morgunkaffinu, það er ekki ég). Svo dugði afgangurinn af kökunni handa mér með tebolla yfir lærdómnum. Þannig að þessi baksturshugmynd var í alla staði góð. Það er líka góð hugmynd að baka fyrir þann sem þú ert að stíga í vænginn við. Volg og góð kaka, mjólk og kúr. Nú eða pönnukökur að frönskum hætti með banönum og Nutella. Sannarlega gómsætt og ætti ekki að geta klikkað á góðum vetrardegi! Heima- bakað gómsæti Kanntu brauð að baka, já það kann ég. Margir kannast við söng þennan sem ágætt er að kyrja yfir helgarbakstrinum. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn ’ Þess skal getið að þær komu líka með veitingar en ég hrærði og kom í ofninn þessari góm- sætu eplaköku. Hún var svo góð að við borðuðum meira en helminginn af henni. Í dag þykir ekkert tiltökumál að skella saman svamp- botnum með þeyttum rjóma og niðursoðnum ávöxtum eins og tíðkaðist hér í denn. En þá voru slíkir ávextir má segja munaðarvara og urðu mjög vinsælir þegar þeir fóru að fást hér á landi upp úr seinna stríði. Þá varð líka nokkuð auðveldara fyrir húsmæður landsins að baka eftir að skömmtun á sykri, hveiti og öðrum nauðsynjavörum hafði viðgengist í allmörg ár. Nið- ursoðnir ávextir voru líka notaðir sem fínasti eftirréttur og bornir fyrir gesti með þeyttum rjóma. Svona hefur nú lífið breyst síðan þá. Ávaxtaeftirréttur Niðursoðnir ávextir eru enn vinsælir í dag. Líkt og annar matur geta eftirréttir og kökur verið í dýrari kantinum. Súkku- laðikakan sem borin er fram á ítalska veit- ingastaðnum Mezzaluna á Lebua hótelinu í Bangkok er vonandi góð en hver skammtur kostar litlar 74.000 krónur. Þessi eft- irréttur er settur saman af ótrúlegustu hlutum, æti- legum gulllaufum, kampa- víns-sorbeti gerðu úr kampavíni frá aldamótaárinu 2000 og crème brûlée. Þá er ekki allt upptalið því að fyrir innan gulllaufin má líka finna jarðarberja og súkkulaðimús og súkku- laðikökusneið. Fyrir þá sem vilja frekar ávaxtaeftirrétti mætti þó frekar mæla með Ciragan Palace í Istanbúl. Þar fæst gullkaka soldánsins á aðeins 115.000 krón- ur og ku vera einn besti eftirréttur sem til er í heimi hér. Kokkarnir hljóta að svitna nokkuð við gerð kökunnar (vonandi ekki yfir hana samt) en það tekur 72 klukku- stundir að búa hana til úr fíkjum, apríkósum og perum sem hafa legið í bleyti í rommi í tvö ár. Ofan á blönduna er síðan sett sambland af karamellu, svörtum trufflum og auðvitað gulllaufi til að setja punktinn yfir i-ið. Rándýr kaka soldánsins Þessi kaka er vonandi góð miðað við verðið! Það var alveg á hreinu þegar ég fermd- ist að það skyldi verða kransakaka. Enda elska ég marsipan og þar með allt sem gera má úr því. Kransakökutoppa með súkkulaði, kransakökur og kran- sastangirnar góðu með núggati. Fyrir konunga og forseta Kransakökur þekkjast bæði í Noregi og Danmörku og eru þar helst settar á borð í kringum stórhátíðir, á jólum, í brúðkaupum og af fleiri slíkum til- efnum. Margir hafa spreytt sig sjálfir við kransakökugerð en þær má líka kaupa víða. Misjafnt er hvort fólk skreytir kransakökurnar með marsip- anblómum, konfekti eða öðru góðgæti en hvíti glassúrinn er þó í það minnsta klassískur. Eitt sinn var líka mjög vin- sælt í fermingarveislum að skreyta kök- urnar með Macintosh molum. Kransa- kökur hafa löngum þótt sparilegar og nógu fínar til að gefa konungum og for- setum með kaffinu. Í heimsókn Ólafs Noregskonungs árið 1961 var honum boðin kransakaka og kampavín í Þjóð- leikhúskjallaranum. Friðrik Danakon- ungur fékk kransaköku en hins vegar ekkert kampavín heldur kaffi þegar hann heimsótti landið 1970. Hvort tveggja fékk hins vegar Ronald Reagan í heimsókn hjá Vigdísi Finnbogadóttur á Bessastöðum árið 1989. Það má því með sanni segja að kransakakan sé konunglegt meðlæti, hvort heldur er með kaffi eða kampavíni. Konungleg kransakaka Kransakaka eða kransakökutoppar eru góð með kampavíni. Morgunblaðið/Golli

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.