SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Side 41
6. febrúar 2011 41
LÁRÉTT
1. Þrjósk og niðurlútir hjá bröttum (11)
8. Lítast í augu þegar slím er skorðað. (7)
9. Nágrannakonan missti granna hjá ljósmóð-
urinni. (7)
11. Daður eftir drykk fyrir ímyndaðan. (9)
12. Sindrar einhvern veginn í restina (7)
13. Dust og tvö rykkorn á skipum. (7)
14. Með ekkert dragist að því sem eyddist. (8)
16. Aðalheiður fær einhvers konar arð eftir Jesús
og þær sem eru úr föstu efni. (12)
19. Sjá belju hlaupa vegna þurrkaðs ávaxtar. (7)
22. Væskill kenndur við ílagstæki sér fugl. (12)
24. Henda litíum í byggingu. (7)
25. Mark var slasaður í íþróttaiðkun. (10)
27. Veiðarfæri fá áfall um hluta sólarhrings. (9)
29. Óbrenndar eru mótaðar í smíði. (7)
30. Móðgaða stofnunin fær grisju (7)
31. Dautt afkvæmi hjá félaga. (6)
32. Negulpipar vegna hverrar krumlu. (10)
LÓÐRÉTT
2. Vant rödd í tortryggni. (9)
3. Herra Logan má rugla á óskiljanlegu tungu-
máli. (9)
4. Í máli má finna útlending. (5)
5. Samhverfir listar. (5)
6. Bandar í kind í útlöndum. (10)
7. Borga kamb sem fer ekki af svæðinu. (10)
8. Rám borði með sjómanni. (6)
10. Mataðir skítuga. (6)
15. Trúmaðurinn spritti ísinn einhvern veginn. (12)
17. Kúgara má rugla vegna grænmetis. (6)
18. Beitarsvæði þar sem gott er að fá sopa við
timburmönnum. (12)
19. Klárar hálfdrepi með dónaskap. (8)
20. Velþekkt fær mat. (7)
21.Víg flækir málið í Ankara og leiðir til annars
lands (9)
23. Slepp ríkisstjórn frá landi sem er varla sjálf-
stætt. (8)
26. Óbundinn fugl er frjálsari. (7)
28. Kvarssteinn fábrotinnar. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum
2, 110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 6. febr-
úar rennur út 10. febrúar. Nafn
vinningshafans birtist í blaðinu
13. febrúar. Heppinn þátttakandi
hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 30.
janúar er Elín Sigurjónsdóttir, Vanabyggð 2f, Akur-
eyri. Hún hlýtur í verðlaun bókina Myrkraverk á
Styles-setri eftir Agöthu Christie. Ugla gefur út.
Krossgátuverðlaun
Björn Þorfinnsson varð skák-
meistari Reykjavíkur í annað
sinn eftir geysispennandi
lokaumferð en fyrir hana var
hann efstur að vinningum
ásamt Hjörvari Steini Grét-
arssyni. Björn vann Hrafn
Loftsson nokkuð örugglega en
Hjörvar tapaði fyrir Sigurbirni
Björnssyni. Um 70 skákmenn
tóku þátt í mótinu en efstu
menn urðu þessir:
1. Björn Þorfinnsson 8 v. (af
9) 2. Sigurbjörn Björnsson 7½
v. 3. Hjörvar Steinn Grét-
arsson 7 v. 4.-5. Gylfi Þór-
hallsson og Guðmundur Gísla-
son 6½.
Björn Þorfinnsson er nú
Reykjavíkurmeistari í annað
sinn. Glöggir menn þykjast sjá
að hann hafi náð að ráða bót á
ýmsum annmörkum sem áður
stóðu honum fyrir þrifum.
Önnur úrslit koma ekki á
óvart. Vert er þó að benda á
góða frammistöðu Hallgerðar
Helgu Þorsteinsdóttur sem
varð í 7.-13. sæti. Guðmundur
Kristinn Lee hækkaði sig mest
á stigum eða um tæplega 50
stig.
Nakamura sigraði í Wijk aan
Zee
Úrslitin í efsta flokki stór-
mótsins í Wijk aan Zee eru
mikill sigur fyrir Bandaríkja-
manninn unga Hikaru Nakam-
ura, sem eins og nafnið bendir
til er af japönskum uppruna.
Hann er einn ötulasti skák-
maðurinn á hinu vinsæla vef-
svæði ICC þar sem hann teflir
jöfnum höndum „bullet“ og
venjulegar hraðskákir. Sigur
hans var afar anngjarn. Magnús
Carlsen deildi 3. sæti með Ar-
onjan. Á lokasprettinum lagði
hann Kramnik að velli með
svörtu. Lokastaðan varð þessi:
1. Nakamura 9 v. (af 13) 2.
Anand 8½ v. 3.-4. Carlsen og
Aronjan 8 v. 5.-6. Vachier
Lagrave og Kramnik 7½ v.
7.-8. Giri og Ponomariov 6½
v. 9.-10. Nepomniachchi og
Wang Hao 6 v. 11.-13. Gric-
huk, Smeets og ĹAmi 4½ v.
14. Alexei Shirov 4 v.
Kortsnoj gefur ekkert eftir
Á opna mótinu í Gíbraltar
beinist athygli manna ekki að-
eins að efsta manni, Vasilij Iv-
anstjúk sem hefur aðeins misst
einn vinning í fyrstu níu um-
ferðunum; Viktor Kortsnoj,
fæddur 23. mars 1931, hlýtur
að teljast besti öldungur allra
tíma. Sem fyrr tekur hann
sigrum með jafnaðargeði en er
dálítið önugur þegar hann
tapar og lætur þá yfirleitt
nokkur vel valin orð falla. Eft-
ir níu umferðir hafði Kortsnoj
unnið þrjár skákir og gert sex
jafntefli. Í 2. umferð vann
hann þriðja stigahæsta kepp-
andann, Ítalann Caruno, sem
er með 2721 elo-stig:
Fabiano Caruno – Viktor
Kortsnoj
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. d3 d6 6. c3 Be7
7. O-O O-O 8. He1 Rd7 9. Be3
Rb6 10. Bb3 Kh8 11. Rbd2 f5
12. Bxb6 cxb6 13. Bd5 g5!
Ekki verður því haldið fram
að það vanti persónuleika í stíl
Kortsnojs sem hikar ekki við
að leggja til atlögu.
14. h3 g4 15. hxg4 fxg4 16.
Rh2 Bg5 17. Rc4 b5 18. Re3
Bxe3
Það er meiri „hraði“ í þess-
um leik en 18. … h5.
19. Hxe3 Df6 20. De1 Re7 21.
f3 Rxd5 22. exd5 Hg8 23. Dg3
gxf3 24. Dxf3 Bf5 25. Hf1 Hg5
26. Kh1 Dh6 27. Hf2 Hag8
Og svartur er með góð færi
eftir g-línunni.
28. He1 Dg6
Enn betra var 28. … Hh5 29.
g3 Dg6 o.s.frv.
29. He3
29. … Bxd3!
Nú strandar 30. Hxd3 á e4
og vinnur.
30. Kg1 e4 31. Dh3 Hxd5 32.
Dd7 Hg5 33. g4 Dh6 34. Hf7
H5g7 35. Hxg7 Hxg7 36. Dd8+
Hg8 37. Db6 Df6 38. Dxb7 Hf8
39. Da7 b4 40. Hh3 Dg7 41.
De3 bxc3 42. bxc3 Dxc3 43.
Hh5 d5 44. g5 Da1+ 45. Kg2
Bf1+ 46. Kg3 De5+
- og hvítur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Björn Þorfinnsson skákmeistari Reykjavíkur 2011
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta