SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Page 43
6. febrúar 2011 43
arnefndarinnar, í danska skálanum, og
tveimur árum síðar sýndu Kristján Guð-
mundsson og Jón Gunnar Árnason. Frá
1984 leigði Ísland af Finnum skála sem
Alvar Aalto hannaði og þar voru settar
upp sýningar á hverjum tvíæringi til árs-
ins 2005, en síðan hafa síðustu tveir
fulltrúar, Steingrímur Eyfjörð og Ragnar
Kjartansson, sýnt í skála sem leigður er
fyrir utan aðalsýningarsvæðið.
Laufey segir að svo virðist sem upp-
haflega hafi verið ákveðið að senda
brautryðjendur, þá Kjarval og Ásmund,
enda mikilvægir listamenn og hefur val-
nefndinni þótt þeir eiga það skilið.
„Þessi sýning er í raun íslenska lista-
sagan í hnotskurn. Fyrst koma braut-
ryðjendur okkar, síðan er tekið stökk að
brautryðjendum abstraktlistarinnar.
Þegar Sigurður Guðmundsson sýnir þá
erum við komin í takt við hina alþjóðlegu
listasögu og eftir það finnst mér að við
séum alltaf í takti við það sem er að ger-
ast,“ segir Laufey.
„Það er ábyrgðarmikið hlutverk að
vera fulltrúi landsins, og margir lista-
mannanna sýna mikið af Íslandi eða
þjóðarsálinni. Náttúran kemur sterk í
gegn hjá sumum, þjóðarsálin hjá öðrum.
Það eru margar hliðar á þessari sýningu –
og svo á þjóðin rétt á að sjá hvað fulltrúar
okkar voru að sýna í Feneyjum.“
Laufey er sammála því sem sagt er,
að Feneyjatvíæringurinn sé „Sýning sýn-
inganna“ og segir mjög mikilvægt að ís-
lenskir listamenn eigi þar fulltrúa.
„Þetta er okkar eina tækifæri til að
eiga opinberlega stefnumót við hinn al-
þjóðlega listaheim,“ segir hún.
’
Það er ábyrgð-
armikið hlutverk að
vera fulltrúi landsins
og margir listamannanna
sýna mikið af Íslandi eða
þjóðarsálinni.
Þorvaldur Skúlason (1906-1984), Haustfugl, 1970. Í einkaeigu.
Jón Gunnar Árnason (1931-1989), Cosmos, 1982. Listasafn Íslands.
Jóhannes S. Kjarval (1885-1972), Hugmynd. Landsbankinn. Kristján Davíðsson (1917), Flæðarmál, 1983-84. Arion banki.
Magnús Pálsson (1929), Flæðarmál (Spi-
aggia), 1976. Listasafn Íslands.