SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Qupperneq 45
6. febrúar 2011 45
E
ftir síðustu flutninga
fjölskyldunnar hef ég
velt fyrir mér hvaða vit
sé í því að eiga stórt
bókasafn. Ég hugsa enn með
hryllingi til flutningsins á bóka-
hillunum og hinum endalausu
kössum. Spurningin er orðin
áleitnari þar sem ég á nú raflesara
sem ég nota töluvert.
Fyrir nokkrum árum, einmitt í
tengslum við flutninga, ákvað ég
að gefa alla geisladiskana mína.
Um töluvert safn var að ræða. Ég
hlóð þessu öllu niður – fyrir utan
þetta ömurlega drasl með Stone
Temple Pilots – í tölvuna og hef
ekki séð eftir því. Spurningin er:
af hverju get ég ekki farið sömu
rafrænu
leiðina með
bækurnar
mínar?
Eflaust er
það með-
fædd
íhaldssemi
og inn-
prentuð
virðing fyrir
bókum.
Sennilega
skiptir þó
mestu máli
að ég haft
þann sið að
krota at-
hugasemdir
og hug-
myndir á
spássíur og
saurblöð. Bókasafnið mitt er því
minnisvarði um manninn, það er
að segja Örn fortíðarinnar, sem
hefur mótað líf mitt til fram-
búðar. Í dag veit ég lítið um
þennan mann og hvað hann var
að hugsa. Því er töluverður feng-
ur í að hafa aðgengi að bókum
hans. Sennilega er það síðast-
nefnda á endanum ágætis ástæða
til þess að losa sig við safnið.
Það mun ég þó ekki gera. Enda
er ég farinn að sjá hversu mik-
ilvægu hlutverki bókasafnið er
farið að gegna í lífi sonar míns,
sem nú er 15 mánaða gamall.
Hann hefur þegar tekið upp á
hinum þjóðlega sið að borða
bækur. Ef ekkert væri að gert
væri hann löngu búinn að sporð-
renna ljóðasafni W.B Yeats, sem
hann virðist mjög sólginn í.
Einnig hefur hann bókstaflega
rifið í sig kennslubók Pauls
Krugmans um alþjóðahagkerfið
og virðist mjög sáttur við síðustu
bók Martins gamla Wolf, en hann
er sérstaklega hrifinn af gröf-
unum í þeirri bók.
Þræll í
eigin
safni
’
Hann
hefur
nú
þegar tekið
upp á hinum
þjóðlega sið
að borða
bækur. Ef
væri að gert
væri hann
löngu búinn
að sporð-
renna ljóða-
safni W.B
Yeats.
Orðanna
hljóðan
Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
Lesbók
Það eru nokkrar bækur á náttborðinu mínu en
mér gengur misvel að komast í gegnum þær, verð
bara svo syfjuð þegar ég byrja að lesa á kvöldin.
Mér tókst þó að lesa tvær bækur þessi jól, báðar
mjög góðar og um margt líkar þótt ólíkar séu.
Fyrst las ég Hreinsun eftir Sofi Oksanen og síðan
Furðustrandir eftir Arnald Indriðason. Það er
kannski að bera í bakkafullan lækinn að fjalla um
Furðustrandir, eftir alla þá umfjöllun sem hún
hefur fengið. Ég get þó sagt það að mér leist sér-
lega vel á bókina langt fram yfir miðju en þegar ég
kláraði hana eitt kvöldið var ég ekki viss hvort ég
væri enn sömu skoðunar. Ég var lengi hugsi yfir
því hvað breytti þessari afstöðu minni. Hvað ger-
ist í lífi venjulegs fólks þegar farið er að grafa upp
gömul leyndarmál og hverjum er greiði gerður
með því að upplýsa þau? Hverjar eru svo afleið-
ingarnar?
Bókin Hreinsun, sem gerist að mestu í Eist-
landi, fjallar ekki síður um leyndarmál og tengsl
þeirra við ofbeldi. Áhrifarík bók sem heldur
manni gersamlega vakandi, að minnsta kosti mér.
Í báðum þessum bókum er verið að gera upp for-
tíðina og finna svör sem tengjast henni. Skyldu
ekki margar fjölskyldur eiga sér forn leyndarmál
sem ekki eiga að komast upp?
Núna er ég að lesa bókina Ofbeldi eftir Erlu
Kolbrúnu Svavarsdóttur prófessor, sem er
kannski við hæfi eftir tvær skáldsögur þar sem
ofbeldi kemur við sögu. Bókin inniheldur nið-
urstöður íslenskra rannsókna á ofbeldi gagnvart
konum, tíðni þess og hvaða áhrif það hefur á
heilsufar þeirra. Þunglyndi, liðverkir, hjarta- og
æðasjúkdómar, langvarandi verkir, asmi o.fl. eru
sjúkdómar sem eru algengari hjá konum sem
upplifa ofbeldi. Samkvæmt rannsóknum upplifir
ein af hverjum fimm konum ofbeldi á ævi sinni,
andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt. Mér finnst
þetta óhugnanlegar tölur. Ég þekki miklu fleiri en
fimm konur en veit ekki um neina nána mér sem
hefur lent í ofbeldi. Getur það staðist? Kæri les-
andi, hvað með þig?
Lesarinn Sigrún Kristín Barkardóttir hjúkrunarfræðingur
Forn leyndarmál og tengsl
þeirra við ofbeldi
Hreinsun eftir finnsku skáldkon-
una Soki Oksanen er áhrifarík bók
um leyndarmál.
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
KARL KVARAN 17.11. 2010–13.2. 2011
FRÁ UPPHAI TIL ENDA - Sunnudagsleiðsögn kl. 14
í fylgd Bergsveins Þórssonar.
Næst síðasta sýningarhelgi á sýn. Karls Kvaran!
ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010–31.12. 2012
LANDSLAG Í LISTASAFNI - Sýningaropnun lau. 5. feb. kl. 14
Sýning á verkum nem. barna- og unglingadeildar
Myndlistaskólans í Reykjavik
ÞAÐ BLÆÐIR Á MORGUNSÁRINU - 22.1.–13.2. 2011
Jónas E. Svafár
MARENGS veitingastaður á 2. hæð.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“. Sýning um æsku og
lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd
Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs
fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009.
Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
AUGASTAÐIR-BEHIND MY EYES
Ný verk eftir Óla G.
Byggðasafn Reykjanesbæjar:
Völlurinn
Bátasafn Gríms Karlssonar:
100 bátalíkön
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Sýningarsalir
verða lokaðir
til 11. febrúar
Kraum er opin á opnunartíma
safnsins.
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-17.
Garðatorgi 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Listasafn Kópavogs
Gerðarsafn
Ásýnd landsins: Vatnið,
jörðin, hafið og himinninn
Daði Guðbjörnsson, Gunnlaugur Ó.
Scheving, Jóhannes S. Kjarval,
Rúrí, Vilhjálmur Þ. Bergsson
Sýningarstjóri: Guðbergur Bergsson
Sýningin stendur til 20.02.2011
Aðgangur 500 kr.
Ókeypis á miðvikudögum
Safnið er opið kl. 11-17
alla daga nema mánudaga
www.gerdasafn.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ASÍ
Síðasta sýningarhelgi
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
Erkitýpur
og
HILDIGUNNUR BIRGISDÓTTIR
Það verður þeim að list
sem hann leikur
Safnið er opið 13-17
nema mánudaga.
Aðgangur ókeypis.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Þjóð verður til
Menning og samfélag í 1200 ár
Ljósmyndari Mývetninga
Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar
Stoppað í fat
Viðgerðir munir úr safneign
Útskornir kistlar og stokkar - Ljósmyndir Ralph Hannam
Barnaleiðsögn sunnudaginn 6. febrúar kl. 14
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
Þjóðleg fagurfræði
12 listamenn – tvennra tíma
Kaffistofa
leskró - leikkró
OPIÐ: fi.-su. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
8. janúar – 6. febrúar 2011
Brot úr náttúrunni – Eiríkur Smith
1957-1963
Síðasta sýningarhelgi
Laugardag 5. febrúar kl. 14
Klippismiðja fyrir fjölskyldur
8. janúar – 21. febrúar 2011
Kjarvalar – Stefán Jónsson
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis