SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 47

SunnudagsMogginn - 06.02.2011, Blaðsíða 47
6. febrúar 2011 47 F agur og tilkomumikill út- skurður umlykur drykkjarhorn frá 17. öld með Adam og Evu við skilningstré góðs og ills. Þar er einnig krossfestingarmynd og í sama belti hinum megin er skorin mynd af Guðslambinu og á horninu er skorin áletrunin Guðvelkomnir góðir vinir, gleðjist. Drykkjarhornið er eitt hinna listilega útskornu horna Þjóðminjasafns Íslands, en í safninu eru varðveitt horn frá 15. til 19. aldar. Á safnanótt þann 11. febrúar verður opnuð áhugaverð sýning í Bogasal safnsins á merkum drykkjar- hornum. Það fer vel á því á þorra. Á heiðnum tíma voru vetrarsólstöður hátíðartími, þótt fátt sé vitað um veislu- siði fyrir kristni. Ekki eru til á Íslandi fornleifar, sem tengja má jólasiðum á þeim tíma. En drykkjarhorn eru hluti af norrænum menningararfi og tengjast veislum og siðum norrænnar menningar fyrir og eftir kristni. Vitað er að haldin voru jól á Norðurlöndum löngu fyrir kristna tíð. Lítið er hins vegar vitað um það hvernig jól voru haldin á heiðnum tíma, að öðru leyti en því að norrænir menn gerðu sér dagamun í mat og drykk, drukku minni úr drykkjar- hornum, fögnuðu hækkandi sól og not- uðu heitið jól um veisluhöldin. Forn nor- ræn drykkjarhorn frá því fyrir kristni eru vitnisburður um hátíðarhöld og minn- isdrykkju. Engin drykkjarhorn hafa varðveist á Íslandi frá fyrstu öldum byggðar, en elstu drykkjarhornin eru frá kristnum tíma. Íslensk drykkjarhorn frá miðöldum eru einstök í norrænu og alþjóðlegu sam- hengi. Þau eru vitnisburður um listfengi útskurðarmeistara fyrri alda, en mynstr- in sem þau prýða eru í rómönskum stíl og þekja yfirborð hornanna. Athyglisvert er að útskurðarhefðin er eldri en sjálf hornin, svo sem almennt á við um ís- lenskan útskurð fyrri alda. Merkar rann- sóknir norska listfræðingsins dr. Ellen Marie Magerøy og annarra sérfræðinga á útskurði og íslenskum drykkjarhornum hafa varpað ljósi á einstakt gildi þeirra. Það sem gerir íslensk miðaldahorn sér- stæð er að þau eru alskreytt myndum, sum skreytt jurtamynstri og oft er hag- anlega skorið svonefnt höfðaletur, í belti sem umlykja hornin. Höfðaletur er ís- lensk leturgerð, sem tíðkaðist lengi í út- skurði í tré og horn. Áletranir eru ýmist tilvitnanir í Biblíutexta eða veraldlegar vísur. Athyglisvert er að samsvörun er í jurtaskrauti á útskornum hornum og myndskreytingum handrita. Auk tilvitn- ana í Biblíuna, eru dæmi um drykkju- og gleðivísur. Á einu hornanna er áletrunin Drekkið varlega og á öðru horni er þessi vísa: Gott er að drekka það góða öl, gleður það mannsins líf, meðan að enginn bruggar böl, né byrjar kíf. Íslensku drykkjarhornin eru varðveitt víða um Evrópu, en þau voru lengi eft- irsóttir söfnunargripir erlendra ferða- langa vegna hins fagra handverks. Flest hornanna eru varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands, en önnur eru varðveitt í erlend- um söfnum eða eru í eigu einstaklinga. Á síðustu árum hafa merk útskorin horn borist Þjóðminjasafni Íslands, sem mikill fengur er að. Önnur komu í safnið fyrir og eftir aldamótin 1900 og sum voru afhent Íslendingum á Alþingishátíð- inni árið 1930. Vinafélag Þjóðminja- safnsins, Minjar og saga, færði safn- inu fagurt horn árið 2003 í tilefni af 140 ára afmæli safnsins. Það er frá 18. öld með jurtamynstri og var keypt í Danmörku þar sem það hafði áður verið í einkaeign. Þjóðminjasafn- ið keypti afar mikilvægt horn af norskum safnara árið 2005, hið merka Maríuhorn frá 16. öld. Á Maríuhorninu er fallega út- skorið jurtaskraut, sem er listilega vel gert og áletrunin AUE MARIA. Þá hafa safninu borist yngri horn, meðal annars eitt frá Svíþjóð með afhendingu hinna 800 gripa sem Norræna safnið í Stokk- hólmi afhenti safninu til framtíðar- varðveislu árið 2007. Þessi horn hafa sannarlega auðgað safnkost Þjóðminja- safns Íslands. Á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins eru fjögur miðaldahorn til sýnis sem vert er að skoða í samhengi við þau horn sem verða til sýnis í Bogasalnum í febrúar. Þá mun safngestum gefast tækifæri til að virða fyrir sér öll þau miðaldahorn sem varðveitt eru á Íslandi ásamt þremur merkum hornum sem Þjóðminjasafn Dana hefur af velvilja lánað safninu. Kærkomið er að geta nú boðið Íslend- ingum og gestum þeirra að kynnast hin- um fagra menningararfi útskorinna drykkjarhorna á væntanlegri sýningu safnsins og sérstakri sýningarbók sem kemur út af því tilefni. Hornin og mynd- mál þeirra er mikið augnayndi og er áhugavert að virða fyrir sér fagurlega skreytt yfirborð hornanna. Ég tek mér í munn áletrunina á einu fegursta drykkjarhorninu og býð gesti guð- velkomna í safnið og að gleðjast yfir handverki og listfengi þeirra sem skáld- uðu í hornin og þeim menningararfi sem í drykkjarhornunum er fólginn. Nánari upplýsingar á www.thjod- minjasafn.is. Sýningin „Verið guð- velkomnir góðir vinir, gleðjist! Íslensk útskorin horn“ verður opnuð í Bogasal safnsins á safnanótt þann 11. febrúar nk. „Guðvelkomnir góðir vinir, gleðjist“ Fögur og tilkomumikil útskorin krossfest- ingarmynd á Fagnaðarhorninu frá 17. öld. ’ Íslensk drykkjarhorn frá miðöldum eru einstök í norrænu og alþjóðlegu samhengi. Þau eru vitnisburður um list- fengi útskurðarmeistara fyrri alda, en mynstrin sem þau prýða eru í rómönskum stíl og þekja yfirborð horn- anna. Hringahornið frá 1625. Ljósmynd/Þjóðminjasafn Þankar um þjóðminjar Margrét Hallgrímsdóttir margret@thjodminjasafn.is F róðari menn um hross eru líklega vandfundnari en Ingimar Sveins- son á Hvanneyri. Hann hefur nú sent frá sér alhliða upplýsinga- og fræðirit um hesta sem hann hefur unnið að í mörg ár og er meðal annars byggt á kennsluefni sínu í hrossarækt við Bændaskólann á Hvanneyri. Bókin fjallar um flest það sem fólk sem umgengst hesta eða hefur áhuga á þeim þarf að vita. Hann byrjar á byrjuninni, á uppruna hestsins og fer þar í hestakyn víða um heim, þá er sérkafli um íslenska hestinn og eftir það kemur fróðleikur um fóðrun hrossa, meðferð, frjósemi, uppeldi, tamningu og þjálf- un og margt margt fleira. Bókinni lýkur á kafla um hvernig á að velja sér hest við hæfi. Þetta er bók sem byggist ekki á neinni tilfinningasemi eða nýjustu tískustraumum í tamningu eða fóðrun. Þetta eru hrossafræði af skyn- semi. Ingimar býr að mikilli þekkingu og reynslu og hefur áratugum saman viðað að sér fróðleik um hesta og hestahald og eru efnistök hans skýr og aðgengileg. Það þarf ekki að lesa þessa bók frá upphafi til enda frekar en maður vill, eins og með góða fræðibók er hægt að fletta henni upp hvar sem er og finna það sem maður vill fræðast um hverju sinni. Bók- in er virkilega vel umbrotin, eiguleg og aðgengileg, textinn er brotinn upp með stuttum köflum, myndum, töflum og römmum. Ingimar ritar afskaplega vand- að mál sem heldur lesandanum föngnum, hann nær meira að segja að gera fóður- þarfir hrossa áhugaverða lesningu. Ekki skemma heldur fyrir sögur sem koma inn á milli af reiðhrossum höf- undar eða öðru og brjóta upp kaflana. Ingimar ber mikla virðingu fyrir hestinum en gerir hann samt ekki að ofdekruðu gæludýri, hann ber virð- ingu fyrir hegðun hans, gerð og sjálf- stæði og vinnur með hann af miklu næmi og skrifar um hann af miklu næmi svo virkilega ánægjulegt er að lesa. Hrossafræði Ingimars er bók sem allir þeir sem eiga hesta, hafa áhuga á hestum eða eru með hross í hagagöngu ættu að eiga. Fáir eru jafn mikill fróðleiks- brunnur um íslenska hestinn og Ingimar og það er öðrum áhugamönnum um ís- lenska hestinn í nútíð og framtíð ómet- anlegt að hann hafi sett hrossafræði sín í eina bók fyrir þá til að njóta og læra af. Hrossafræði af skynsemi Bækur Hrossafræði Ingimars: Alhliða upplýsinga- og fræðirit um hesta bbbbb Fræðibók Eftir Ingimar Sveinsson Uppheimar 2010 Ingveldur Geirsdóttir Ingimar Sveinsson gefur hrossum sínum á Hvanneyri. Morgunblaðið/Eggert

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.