SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 6

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 6
6 9. janúar 2011 Það vakti óskipta athygli þegar annar óligarki og Ís- landsvinur, Roman Abramovitsj, keypti enska knatt- spyrnufélagið Chelsea árið 2003. Alisher Usmanov vill ekki vera minni maður og hefur freistað þess að eignast annað sögufrægt félag í Lundúnum, Arsenal. Árið 2007 gerði hann bandalag við fráfarandi varafor- mann stjórnar félagsins, David Dein, sem í reynd hafði stjórnað félaginu um árabil. Usmanov keypti hlut Deins í Arsenal, um 14,5%, gegn því að Dein tæki við formennsku í eignarhaldsfélagi þeirra Far- hads Moshiris, Red and White Holdings. Rök Deins fyrir að fá hina nýju fjárfesta að borðinu voru að auka samkeppnishæfni Arsenal á tímum aukins fjárflæðis í sparkheimum. Hægt og bítandi hefur Usmanov eignast stærri hlut í Arsenal, á nú ríflega fjórðung og stefnir ótrauð- ur á 30% markið, sem gerir honum kleift að gera yf- irtökutilboð. Hann hefur þó mætt miklu andstreymi innan stjórnar félagsins en gamli eigendahópurinn, með demantajöfurinn Danny Fizman í broddi fylk- ingar, hefur spyrnt duglega við fótum og enn sem komið er tekist að halda Úsbekanum utan stjórnar. Í því skyni hafa stjórnarmenn í Arsenal meðal annars bundist bandaríska kaupsýslumanninum Stan Kro- enke traustum böndum. Eigi utanaðkomandi aðili á annað borð að ná yfirráðum í Arsenal vill stjórnin klárlega að það verði Kroenke sem sjálfur á um fjórð- ung í félaginu. Sem sakir standa er járn í járn en í raun hefur ind- versk-ættaða kaupsýslukonan lafði Nina Bracewell- Smith öll spil á hendi. Hún gekk úr stjórninni fyrir tveimur árum og hefur nú áform um að selja hlut sinn í félaginu, tæp 16%. Þá er bara spurning, horfir hún í austur eða vestur? Vill eignast Arsenal Eignast Usmanov Robin van Persie og Cesc Fàbregas? Reuters Nafn hans hefur verið á allra vörumhér heima í vikunni eftir að við-skiptin við Kaupþing fyrir hrunkomust í hámæli. Hann er auðugur, umdeildur og sumir segja alræmdur. En hver er hann þessi kaupsýslumaður frá Úsbekistan, Al- isher Usmanov, sem vermir hundraðasta sæti Forbes-listans yfir ríkustu menn heims og gegnir á heimaslóðum nafninu „harðnaglinn“? Usmanov fæddist í Chust í gamla sov- étlýðveldinu Úsbekistan 9. september 1953 og er því 57 ára gamall. Faðir hans var aðstoð- arsaksóknari landsins og valdamikill sem slík- ur. Sjálfur las Usmanov alþjóðalög í Moskvu. Ekki fór viðskiptaferill hans vel af stað en ár- ið 1980 var Usmanov dæmdur í átta ára fangelsi í Tashkent, höfuðborg Úsbekistans, fyrir fjár- kúgun og svik. Hann sat inni í sex ár eða þang- að til dómstóll í Sovétríkjunum sá sig um hönd og Usmanov var máður út af sakaskrá. Sjálfum þótti honum ekki nóg að gert og barðist áfram til að hreinsa mannorð sitt. Usmanov vann ekki fullnaðarsigur í þeim efnum fyrr en fjórtán ár- um síðar er dómstóll í Úsbekistan úrskurðaði að upprunalegar sakir á hendur honum hefðu verið óréttmætar. Í samtali við The Times í Lundúnum árið 2007 gaf Usmanov í skyn að spuni og deilur innan sovésku leyniþjónustunnar hefðu kostað sig frelsið. „Það tók mig fjórtán ár að hreinsa nafn mitt og sanna að sök var komið á mig. All- an minn starfsferil hef ég staðið andspænis for- dómafullu fólki sem lítur á mig sem staðlaða ímynd þjófsins í austri. Mér drepleiðist að ansa þessum dylgjum. Ekki nóg með að ég hafi aldrei brotið af mér, ég hef alla tíð unnið ærlega og skipað mér á bekk með farsælustu kaupsýslu- mönnum heims, þrátt fyrir að hafa verið lok- aður inni með glæpamönnum í sex ár.“ Mikill hugur var í Usmanov eftir að hann losnaði úr prísundinni og komst hann fljótt í álnir. Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rúss- lands, er sagður hafa velþóknun á honum og Usmanov fyllti flokk óligarka í forsetatíð hans, þ.e. kaupsýslumanna sem fengu að kaupa gömul ríkisfyrirtæki á tombóluverði eftir hrun Sovétríkjanna. Auðgaðist á málmi Usmanov veðjaði á málmiðnað og stofnaði ásamt viðskiptafélaga sínum Vasilij Anisimov félagið Metalloinvest sem nú rekur fjölda fyr- irtækja í greininni. Þar ku hann hafa ávaxtað rúblu sína vel en Usmanov er í hópi tíu um- svifamestu stálframleiðenda í austurvegi. Usmanov hefur einnig haslað sér völl í gas- iðnaði en hann er núna stjórnarformaður fjár- sýsluarms orkurisans Gazprom, valdamesta fyrirtækis Rússlands, sem sagt er beintengt inn í stjórnkerfið. Hlutverk Usmanovs hefur verið að halda utan um stærri og flóknari fjármál Gazprom. Hvað sem það svo þýðir. Af öðrum eignum Usmanovs má nefna sam- steypuna Gallagher Holdings, sem skráð er á Kýpur, og hefur meðal annars fjárfest í nám- um, stáliðnaði, tækni, olíu, gasi, fjölmiðlum og lyfjaiðnaði. Alisher Usmanov er bersýnilega fátt óviðkomandi. Árið 2006 hóf Usmanov að fjárfesta í fjöl- miðlum. Að áeggjan rússneskra stjórnvalda festi hann kaup á dagblaðinu Kommersant, sem áður var í eigu óligarkans Boris Berezov- skys, sem féll sem frægt er í ónáð í Kreml og er nú í útlegð í Bretlandi. Síðar keypti Usmanov líka helmingshlut í rússnesku íþróttastöðinni 7TV og 75% í tónlistarstöðinni MUZ-TV. Árið 2008 keypti Usmanov hlut í rússneska farsímafyrirtækinu MegaFon. Skömmu áður hafði það komist í heimsfréttirnar þegar fyrr- verandi hluthafi, Leoníd Rozhetskín, höfðaði mál í New York á þeim forsendum að hann hefði verið píndur til að selja með hótunum um limlestingar. Í kjölfarið hvarf Rozhetskín með dularfullum hætti og var jafnvel talinn af. Síðar kom í ljós að hann er sprelllifandi í Bandaríkj- unum, þar sem hann nýtur vitnaverndar eftir að hafa ljóstrað upp um „valdamikla menn“ í Rússlandi. Málinu lauk með dómssátt. Usmanov virðist vegna vel, alltént eru eignir hans metnar á 8 til 10 milljarða Bandaríkjadala og persónulegur auður á einn og hálfan millj- arð. Hann er kominn óravegu frá steininum – ætli sá næsti sem hann sest í verði ekki helgur! Grjót- harður nagli Hver er auðkýf- ingurinn Alisher Usmanov? Alisher Usmanov (t.v.) glaður í bragði ásamt öðrum umsvifamiklum kaupsýslumanni í Lundúnum, Roman Abramovitsj. ReutersVikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Alisher Usmanov get- ur verið harður í horn að taka þyki honum að sér vegið. Það fékk Craig Murray, fyrrverandi sendi- herra Breta í Úsbek- istan, að reyna árið 2007. Eftir að hann gagnrýndi Usmanov harðlega á bloggsíðu sinni og kallaði auð- jöfurinn þrjót lokaði vefþjónninn henni og öðrum síðum tengd- um Murray vegna þrýstings frá lög- mönnum Úsbekans. Lét loka bloggsíðu ódýrt alla daga 999kr.kg Verð áður 1998 kr. Grísahryggur, úrbeinaður 50%afsláttur

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.