SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 27
9. janúar 2011 27 Ein af fyrstu íslensku byggingunum sem eru umhverfisvottaðar er Snæfellsstofa, gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs við Gunn- arsstaði á Skriðudal. Hönnuðir hennar eru Arkís arkitektar, en þar á bæ hefur töluvert verið unnið með sjálfbærar byggingar enda stofan aðili að Vistbyggðarráði. „Við höfum reynt að mjaka þessari hugsun áfram, bæði í verkefnum okkar sem arkitektar en einnig sem úttektarað- ilar fyrir BREEAM kerfið,“ segir Björn Guðbrandsson sem ásamt kollega sínum Agli Guðmundssyni hefur sótt sér vott- unarréttindi hjá BREEAM, bæði fyrir bygg- ingar og skipulag. „Enn sem komið er hef- ur ekkert skipulag hérlendis farið í gegn um þetta mat svo við vitum en hins vegar eru nokkrar byggingar í ferli,“ útskýrir Eg- ill. „Af þeim er Arkís arkitektar að þrem- ur.“ Ein þeirra er hús Náttúrufræðistofnunar í Urriðaholti í Garðabæ, sem er langt kom- ið, en aðspurður segir Björn mismunandi eftir byggingum í hverju hin vistvæna áhersla er fólgin. „Ef við tökum hús Náttúrufræðistofnunar sem dæmi þá er það hluti af Urriðaholtsskipulaginu sem byggist mjög á umhverfisvænum áherslum meðal annars með tilliti til vatnsbúskapar. T.a.m. er rík áhersla lögð á sjálfbærar ofanvatns- lausnir til að viðhalda lífríkinu í Urr- iðaholtsvatni. Við unnum mikið með sömu áherslur í byggingunni og á lóð hússins, sem endurspeglast m.a. í þakinu sem kem- ur til með að verða gróið, líkt og móinn í kring. Það hægir á niðursigi vatns og eykur hreinsun yfirborðsvatnsins. Þetta tvinnast við það hvernig unnið er með yfirborðs- vatnið niðri á lóðinni sjálfri þannig að vatninu er ekki veitt beint í ræsi heldur í yfirborðsrásum sem stuðla að meiri hreinsun. Það styður aftur lífríkið í nær- liggjandi umhverfi,“ segir Björn. Dálitlir bruðlarar Þá er glerhjúpur utan á húsinu sem gegnir ekki aðeins útlitslegu hlutverki heldur skiptir máli þegar kemur að loftræsting- unni. „Stór hluti hússins er náttúrulega loftræstur og glerhjúpurinn skapar skjól. Þannig má opna glugga í nánast hvaða veðri sem er. Þótt skipulag Urriðaholts hafi ekki verið unnið samkvæmt BREEAM stöðlunum voru sjálfbærar áherslur hafðar að leið- arljósi við hönnun þess, en Arkís var hluti af alþjóðlegum ráðgjafahóp sem vann skipulagið. Egill segir þær áherslur hafa áhrif á allar byggingar sem verði innan skipulagsins, því þær þurfi að laga sig að þessum kröfum. Björn bendir á að fjöldi þátta í hönnun og byggingu mannvirkis geti haft áhrif á vist- kerfið, bæði í stóru samhengi og smáu. „Litið er til þess að lágmarka orkunotkun, efnisval er gaumgæft, og reynt að lágmarka raskið sem viðkomandi bygging veldur á lóðinni og í lífríkinu. Þetta snýst líka að verulegu leyti um innri gæði bygging- arinnar, t.d. hvað varðar birtu og loftræst- ingu og að nota ekki efni sem eru skaðleg fyrir fólk. Auðvitað er mismunandi eftir byggingum hvaða atriði menn leggja mesta áherslu á en allt hefur þetta áhrif á heild- ina.“ Þeir Björn og Egill segja þó mikinn mis- skilning að sjálfbærni þýði að húsin þurfi að vera torfklædd, með sólarsellu, regn- vatnssöfnun og hafa matjurtagarð. „Í flest- um tilfellum snýst þetta um nútíma bygg- ingar sem útlitslega séð eru ekkert frábrugðnar öðrum nútímahúsum,“ segir Björn. „Notendur þeirra upplifa húsið kannski fyrst og fremst sem gæðabygg- ingu. Þetta er síður en svo afturhvarf held- ur miklu frekar hvati til að ýta okkur áfram.“ Grundvallaratriðið er, að sögn Egils, að hægt er að byggja og skipuleggja sam- kvæmt vistvænni hugmyndafræði alls staðar í heiminum, en um leið þarf að laga hugmyndafræðina að viðkomandi landi. „Þetta er nokkuð sem er komið til að vera og mun bara vaxa eftir því sem tíminn líð- ur,“ segir hann og Björn kinkar kolli. „Sú hugsun er kannski svolítið framandi fyrir okkur Íslendinga því við höfum haft allar þessar mikilvægu auðlindir– vatn og vist- væna orku – og kannski vanið okkur á að bruðla svolítið með þær. Hins vegar er að verða vitundarvakning um þetta – fólk er farið að átta sig á því að ekki er hægt að meðhöndla þessar auðlindir eins og þær séu óþrjótandi.“ Horft í baksýnisspegilinn Þeir eru þó sammála um að ekki verði hug- arfarsbreyting á einni nóttu heldur muni hugsun og aðferðir við byggingar breytast smám saman. Að vissu leyti standi íslenski byggingariðnaðurinn á byrjunarreit í þess- um efnum, enda hafi lítið tóm gefist til vistvænna áherslna í byggingarhasar hinna svokölluðu góðærisára. „Sumt af því hús- næði sem þá reis var byggt meira af kappi en forsjá og í dag eru töluverðir gallar að koma fram í þessum húsum. Núna eru menn að horfa í baksýnisspegilinn og sjá hvað hefði mátt gera betur,“ segir Egill. Fyrsta skrefið í því er að huga að skipu- lagi því það gefur tóninn fyrir mannvirkin á skipulagssvæðinu. „Þar þurfum við að taka okkur mest á, einfaldlega vegna þess að við höfum dreift svo mikið úr okkur og farið frjálslega með landið,“ segja þeir. Þar er þó úrbóta von því mörg sveit- arfélög eru farin að huga að þessum vist- vænu skipulagsþáttum að þeirra sögn. Meðal annars hafi Reykjavíkurborg unnið drög að stefnu um vistvæn hverfi og bygg- ingar, en Björn hafi komið að þeirri vinnu. „Það snýst ekki síst um að samfélagið virki sem heild, þ.e.a.s. að byggðin sé blönduð með þjónustu í nágrenninu og að það séu efnahagslegar forsendur fyrir þeirri þjón- ustu. Það dregur úr ferðum fólks til og frá hverfinu,“ segir hann. Egill bætir því við að lög og reglur skyldi ekki neinn til að skipuleggja eða byggja eft- ir vistvænum viðmiðum heldur sé hverjum og einum í sjálfsvald sett að fara þá leið. „Flestir, sem fara inn á þessa braut (og þeim fjölgar ört) velja að vera einhvers staðar í miðjunni, en það þýðir að tekin eru einhver skref í átt að aukinni sjálfbærni. Ef allir færu bara hálfa leið yrði ávinningurinn gríðarlegur.“ En hleypur ekki kapp í menn þegar þeir eru að vinna eftir slíku kerfi – vilja þeir ekki fá tíu á prófinu? „Jú en þá verður viðkomandi að gera það upp við sig hvort hann sé til í það. Það góða er að hann getur valið sjálfur.“ Ef allir færu bara hálfa leið Egill Guðmundsson og Björn Guðbrandsson eru báðir með vottunarréttindi frá BREEAM. Morgunblaðið/Ernir Snæfellsstofa, gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðudal sem Arkís teiknaði er fyrsta íslenska húsið vottað með BREEAM kerfinu. irfært í útboðsferlið hjá þeim þannig að þar séu gerðar kröfur um að um- hverfismálin sé í lagi. Þeir verktakar og fyrirtæki sem eru með stóra al- þjóðlega kúnna standa sig örugglega best að þessu leyti því þá kemur kraf- an að utan. Ég held að þrýstingurinn þurfi alltaf að koma frá sama stað og peningarnir og því hefur haft mikil áhrif að stór neytandi, íslenska ríkið, setti sér stefnu í vistvænum inn- kaupum. Þar með myndaðist þrýst- ingur á byggingariðnaðinn að finna einhver mælanleg kerfi eða aðferð til að meta byggingarnar út frá sjálfbærn- isjónarmiði.“ Frjór jarðvegur Auk þróunar matskerfisins hefur Vist- byggðarráð að markmiði að styðja við rannsóknir og faglega umræðu á þessu sviði. M.a. er fyrirhuguð ráðstefna í vetur þar sem háskólafólk, fagfólk og aðrir munu koma saman og fá yfirsýn yfir þá vinnu sem er í gangi á þessu sviði. Sömuleiðis gæti ráðið gaukað hugmyndum að háskólastúdentum um efni á sviði sjálfbærra bygginga sem þörf er á að rannsaka. „Svo er að stuðla að menntun almennings, þannig að áhugi fólks aukist á „grænum“ að- ferðum og efnum, t.d. þegar það er að byggja eða endurnýja heima hjá sér.“ Þá á ráðið í töluverðri samvinnu við sambærileg félög á Norðurlöndum varðandi viðmið, upplýsingar og að- ferðafræðina sem notuð er til að auka veg vistvænni bygginga og skipulags. Aðspurður segir hann jarðveginn fyrir slíkar breytingar bæði frjóan og góðan. „Fólk er mjög tilbúið sem sést best á því að þó ekkert hafi verið gefið út um að ríkið eða aðrir ætli að nota þennan BREEAM-staðal þá eru nokkrir Íslendingar þegar búnir að fara út á námskeið til að læra vottunina. Í dag eiga 30 íslensk fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög aðild að Vistbyggðaráði. Þau leiða saman hesta sína til að miðla af sinni reynslu eða bara fylgjast með því sem aðrir eru að gera. Núna gefst okkur líka andrými til að hugsa hlut- ina upp á nýtt, því það er lítið að gera í byggingariðnaði. Vonandi munu þeir sem undirbúa sig núna njóta þess þeg- ar allt fer af stað á ný.“ Áhugi á vistvænum byggingum hefur auk- ist til muna, segir Sverrir Bollason. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.