SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 8
8 9. janúar 2011 Fjölmargar fréttir hafa undanfarið borist af því að skrif fólks á Facebook hafi kostað það starfið. Í vikunni sagði Dagens Nyheter frá starfsmanni Volvo, sem missti vinnuna eftir skrif á samskiptasíðuna: „Einn dagur eftir af vikunni á þessum vitlausraspítala,“ ritaði hann. Daginn eftir var hann hættur hjá Volvo. Fram kemur á vef Dagens Nyheter, að maðurinn starfaði hjá Volvo í Skövde en fyrirtækið taldi, að þessi færsla sýndi, að talsvert skorti á trúmennskuna gagnvart fyrirtækinu. Annað eldra dæmi er þegar flugfélagið Virgin Atlantic rak 13 flugliða fyrir að hafa notað Facebook til að gagnrýna öryggismál félags- ins og kalla farþegana „skríl“. Má leiða líkum að því að þetta gefi síðu eins og LinkedIn meira vægi. Með LinkedIn er hægt að halda faglegum samskiptum aðskildum frá óformlegri vinskap en það breytir því auðvitað ekki að fólk þarf að bera ábyrgð á orðum sínum hvar sem það ber niður. Óvarleg skrif geta kostað fólk starfið Tilgangur Mark Zuckerberg með að stofna Facebook var áreiðanlega ekki að fá fólk rekið úr vinnu. Reuters Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Allir þekkja samskiptasíðuna Facebooken sem stendur er það önnur slík síðasem ber nafnið LinkedIn sem sækirhvað mest í sig veðrið. Nýverið upplýsti Jeff Weiner, forstjóri LinkedIn, að notendum síð- unnar fjölgi um einn á hverri einustu sekúndu. Notendur voru um 90 milljónir talsins um áramót- in og fjölgar þeim hraðar en nokkru sinni. Segja má að LinkedIn sé einhvers konar Face- book fagmannsins, síða fyrir starfstengd samskipti og góður vettvangur til að efla tengslanet, sem hugsanlega geti skilað fólki betri störfum. Svo virðist sem fólk vilji halda fag- og starfstengdum þáttum lífs síns aðskildum frá persónulegum áhugamálum og skoðunum sem það viðrar gjarnan á Facebook. Notendur í 200 löndum Fyrirtækið var stofnað í desember 2002 en síðan sjálf fór í loftið í maí 2003. Helmingur notenda LinkedIn býr utan Bandaríkjanna. Notendum fjölgar einna hraðast í löndum á borð við Kína og Brasilíu en þar vex samskiptasíðum almennt hratt fiskur um hrygg. Notendur síðunnar búa í yfir 200 löndum og er síðan til á nokkrum tungumálum, ensku, frönsku, þýsku, ítölsku, portúgölsku og spænsku. Notendur byggja upp tengiliði á LinkedIn á ann- an hátt en á Facebook og segja má að fyrri síðan endurspegli frekar raunheima, þá helst fagleg tengsl. Notendur geta ekki orðið vinir hvers sem er heldur þurfa í raun að sýna fram á tengsl til þess að skapa samband, annaðhvort beint eða í gegnum tengilið. Þannig getur fólk einnig kynnst ein- hverjum í gegnum tengilið sem báðir treysta. Er þetta gert með þessum hætti til að byggja upp traust á milli notenda og verður tengiliðahópurinn því verðmætari. Í gegnum síðuna geta tengiliðir til dæmis mælt með vinum í ákveðin störf. Í ríkjandi árferði eru margir að leita sér að vinnu og eru það ekki síst sérfræðingar sem nýta sér Lin- kedIn. Atvinnuleitendur geta skoðað hvaða fyrir- tæki auglýsa eftir fólki og næsta skref er síðan að kanna hvort einhver tengiliða þeirra geti komið þeim í samband við viðkomandi fyrirtæki. Nokkur góð ráð Mikilvægt er því að vanda sig ef reikningur er stofnaður á síðunni því þarna gildir eins og annars staðar, fyrstu kynni skipta öllu máli. Þarna gildir ekki að vera dularfullur og með dramatískar myndir, eins og getur gengið á Facebook, heldur þarf að gæta þess að prófíllinn búi yfir miklum og nákvæmum upplýsingum með góðum myndum. Þeir sem er alvara með að nýta sér tengsl LinkedIn faglega ættu líka, þegar þeir sjá ástæðu til, að mæla með tengiliðum sínum almennt eða í störf við hæfi. Það segir sig sjálft að þá er líklegra að þeir fái með- mæli til baka. Einnig getur verið gagnlegt að ganga í hópa á síðunni til að auka sýnileika prófílsins og komast í tengsl við fleira fólk því hægt er að senda skilaboð til allra í sama hópi. Ljóst er að samskiptasíður eru komnar til að vera og mikilvægt er að tileinka sér notkunarreglur sem hæfa bæði stað og tíma. Fólk þarf að vera meðvitað um netnotkun sína því tækifærin eru mörg en að sama skapi er hægt að hrasa þeim mun oftar. Jeff Weiner er forstjóri samskiptasíðunnar LinkedIn en hann var áður háttsettur hjá öðru netfyrirtæki, Yahoo! Inc. Facebook fagmannsins Nýr notandi LinkedIn bætist við á hverri sekúndu Vikuspegill Það getur verið erfitt að rata um netheima og að sjálf- sögðu hafa fjölmargir skrifað bækur um LinkedIn nú þegar. Á Amazon birtist langur bóka- listi þegar leitað er undir nafni samskiptasíðunnar. Má þar nefna How to REALLY use Lin- kedIn, LinkedIn for Dummies og I’m on LinkedIn-Now What???: A Guide to Getting the Most Out of LinkedIn. Þessir höfundar hafa að minnsta kosti náð að skapa sér atvinnutækifæri vegna síðunnar. Síðan lítur sakleysislega út en er hreinasti frumskógur, eða því halda fjöldamargir höfundar bóka sem eru leiðarvísar um LinkedIn fram. Bókaflóð fylgir í kjölfarið Við gerum Vínbúðina Skeifunni fallegri og betri Vínbúðin Skeifunni verður lokuð frá og með 10. janúar vegna endurbóta. Opnum fallegri og betri verslun 10. febrúar. Opnum aftur10. febrúar E N N E M M / S ÍA / N M 4 4 9 0 0

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.