SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Síða 35
innan um renglurnar á
pöllunum, líkt og Jean
Paul Gaultier gerði
nýlega með popp-
stjörnuna Beth Ditto
og Chanel gerði með
„yfirvigtarmódelið“
Crystal Renn – sem
var í stærð 16 þegar
mest lét. Heim-
ildum ber
ekki saman
hver stærð-
in er í dag,
einhver
staðar á
bilinu 4 – 8 í
bandariskum
stærðum. Í öllu
falli sýna nýjar
myndir sem birtust í
tískutímaritinu
Harpers Bazaar að
hún hefur
grennst svo um
munar, og því
varla hægt að
tala um að
hún sé í yf-
irvigt lengur,
hafi hún nokk-
urn tíman verið það í raun.
Þrýstnar línur vinsælli en áður
Það er þó meira en að segja það að koma
stærri tískufatnaði á markað. Jafnvel
þótt þrýstnar konur segist vilja kaupa
sér tískufatnað er staðreyndin sú að þær
eru ekki miklar eyðsluklær. Þrátt fyrir
að stærsti hluti kvenna tilheyri hinum
svokallaða „yfirvigtarmarkaði“ er hann
aðeins um 17% af þeim 107 milljörðum
dollara sem konur eyða í föt árlega.
Linda segir erfitt að meta hvort það sé
vegna takmarkaðs framboðs eða lítils
áhuga konunnar. „Maður hefur alveg
upplifað að þegar maður er í þyngri
kantinum er ekki eins gaman að klæða
sig upp á og kaupa sér föt. Ég get alveg
tekið undir að það þurfi meira af svona
fatnaði inn á markaðinn, en á hinn bóg-
inn eru kannski ekki þær konur með
mestu delluna fyrir fötum.“
Helst er því veðjað á að bústnar konur
leggi peninga í fylgihluti á borð við skó
og handtöskur. Þetta virðist þó smám
saman vera að breytast. Hátískuversl-
unin Saks Fifth Avenue í New York
greindi frá því í haust að hún myndi
bjóða til sölu fatnað í yfirstærðum frá
tískurisum á borð við Oscar de la Renta,
Elie Tahari, Fendi, Armani, Dolce &
Gabbana og Donna Karan. Jafnvel Karl
Lagerfeld, sem glímdi eitt sinn sjálfur
við offitu og hefur verið þekktur fyrir
harða gagnrýni á vaxtarlag fólks í stærri
kantinum, virðist vera að snúast hugur.
Renn var ekki aðeins ein af sýning-
arstúlkum hans á tískusýningu í haust
heldur var hún fengin til að leika í aug-
lýsingaherferð fyrir enduropnun Cha-
nel-verslunarinnar í Soho í New York.
Linda bendir líka á að hin íturvaxna
söngkona Beth Ditto sé ákveðin tísku-
fyrirmynd. „Hún hefur gaman af því að
klæða sig upp á og hefur verið á for-
síðum tískutímaritanna. Auðvitað vant-
ar svona fyrirmyndir líka því það hefur
lengi þótt ljótt að vera feitur. Þetta hef-
ur að gera með þær fyrirmyndir sem
fólk hefur.“
Hún bætir því við að markaðurinn
virðist vera að átta sig á því að hann tapi
peningum á því að búa ekki til föt fyrir
konur í yfirstærðum. „Síðastliðin tvö ár
hafa fyrirsætur í svokölluðum yfirstærð-
um – sem í raun eru ekkert sérstaklega
stórar – verið áberandi, svo þrýstnar
línur virðast vera að verða vinsælli en
áður. Það er farið að þykja aðeins flott-
ara að vera með kvenlíkama, sem lengi
hefur bara þótt flott í klámbransanum.“
Ef til vill er þetta rétt. Kannski nær
boðskapur Renn um líkamsstærðir á
endanum eyrum þeirra sem ráða í
tískuheiminum, en í viðtali nýlega sagði
hún einfaldlega: „Fegurðin er ekki
buxnastærð.“
Beth Ditto hefur komið fram á tískusýningum Chanel.
Karl Lagerfeld hampar gjarnan Ditto.
Reuters
Renn flokkast
varla lengur sem
fyrirsæta í
yfirstærð.
Beth Ditto sem sýningarstúlka fyrir Jean Paul Gaultier.
Renn á pallinum fyrir Jean Paul Gaultier.
Chrystal Renn átti góða endurkomu
sem fyrirsæta í svokallaðri yfirstærð.
’
Sýningarstelp-
urnar eru vissu-
lega nánast eins
og geimverur í vext-
inum en þær geta
næstum farið í ljót föt
og þau verða flott. Það
er það sem verið er að
borga fyrir.“
Ditto vakti at-
hygli á kvik-
myndahátíð-
inni í Cannes.