SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Qupperneq 39
’
Áætlað er að kvikmyndin
Hobbitinn í leikstjórn Pet-
ers Jacksons verði frum-
sýnd í desember og framhaldið í
desember árið 2013
Justin Timberlake
og Cameron Diaz
endurnýja kynnin
í Bad Teacher.
nýjasta spennumynd Mels Gibsons How I Spent
My Summer Vacation.
Forsaga Apaplánetunnar verður rakin í nýrri
stórmynd, sem sýnd verður í júlí, og í ágúst verða
Strumparnir í þrívídd og Mr. Poppers Penguins,
nýjasta mynd stórleikarans hæfileikaríka Jims
Carreys.
Önnur mynd Adams Sandlers Jack and Jill
verður sýnd í september, en í félagi við hann
verða Al Pacino og Katie Holmes. Þá verður einnig
frumsýnd teiknimynd um Bangsímon.
Í nóvember bregður Mickey Rourke fyrir í
myndinni Immortals, þar sem gríska goðafræðin
er tekin fyrir, og verður það að teljast við hæfi fyr-
ir leikarann sem er ódrepandi, ef ekki ódauðlegur.
Um jólin verður frumsýnd bandaríska útgáfan
af Körlum sem hata konur sem leikstýrt er af Dav-
id Fincher. Daniel Craig verður Mikael Blómkvist
og Rooney Mara í hlutverki Lisbeth Salander. Og
eflaust verða morðgátur leystar í framhaldsmynd
af Sherlock Holmes, en Robert Downey Jr. þótti
takast ágætlega upp í þeirri fyrri.
Loks er það rúsínan í pylsuendanum, en áætlað
er að myndin Hobbitinn í leikstjórn Peters Jack-
sons verði frumsýnd í desember og framhaldið í
desember árið 2013. Báðar myndirnar verða í þrí-
vídd og er kostnaður hálfur milljarður banda-
ríkjadala. Ian McKellan verður áfram í hlutverki
Gandalfs og Andy Serkis sem Gollum, en þeir léku
báðir í stórmyndunum eftir Hringadróttinssögu
Tolkiens.
9. janúar 2011 39
Því fylgir nettur tregi að kveðja ár sem aldrei kemuraftur. Ár sem flaug svona líka hratt hjá, eins og vind-hviða.
Örlítill gustur í stóra samhenginu.
Og það magnast upp um áramót varnarleysið gagnvart
tímans tönn sem nagar hvíldarlaust og vinnur á öllu sem lífs-
anda dregur.
En það er auðvitað eins og hvur önnur tímaeyðsla að súta
það sem við fáum ekki með nokkru móti við ráðið (og hvur
má við tímaeyðslu?)
Gleðjumst frekar yfir því að hafa verið svo gæfusöm að fá
að taka þátt í því ævintýri sem lífið er, eitt árið enn.
Þökkum fyrir alla kossa, knús
og strokur síðasta árs.
Horfum tilhlökkunaraugum
fram á veginn. Glænýtt ár býður
jú upp á óteljandi ný tækifæri ef
við opnum faðm og hjarta fyrir
þeim … Æ, hvílík klisja … en lífið
er hvort eð er ein risastór klisja,
sættum okkur við það. Höldum
áfram að taka þátt í leiknum, lát-
um áramótin vera okkur hvatningu til að hugsa upp á nýtt í
ástarmálunum, snúum hlutum á hvolf, stöndum á höndum
og ögrum viðteknum venjum okkar.
Rífum okkur úr að ofan og látum ferska vinda blása um
berar geirvörturnar, tökum hraustlega í árarnar og róum á ný
mið … (hér er að sjálfsögðu líkingamál á ferð, ekki er verið að
hvetja fólk til að fá útrás fyrir strípihneigð sína á almanna-
færi … en að sjálfsögðu ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu
að fólk striplist sem mest heima hjá sér).
Einhleypir gætu til dæmis sótt nýja samkomustaði, það eitt
getur leitt til nýrra ævintýra. Það er tilvalið í upphafi árs og
æfa sig í því að bregða út af vananum, fara ekki á sama kaffi-
húsið eða barinn og sóttur hefur verið í áraraðir, skella sér
frekar á ólíklegasta staðinn, þann sem þú heldur að þú eigir
ekkert erindi á. Hvur veit hvað rekur á fjörur þar sem síst
skyldi. Í það minnsta er það ævinlega skemmtileg mannlífs-
rannsókn að tékka á nýjum kreðsum.
Einhleypingar ættu líka að fara út fyrir öruggu svæðin sín,
101-búar hafa gott af því að skella sér út á land, mæla út ann-
arra landshluta fljóð og fýra. Ekki laust við að heyrst hafi af
ævintýrum sem enn gerast í slíkum ferðum.
Dreifbýlingar hafa ekki síður gott af því að blanda geði við
þéttbýlinga, sjá hvort þeim líst á eitthvað. Fordómalaus og
opinn hugur er það sem gerir svona ferðalög áhugaverð.
Hjónakorn og pör ættu að skoðað sín sambönd um hver
áramót, fægja og pússa upp á nýtt, rífa sig upp úr hjólförum
vanans. Draga andann djúpt, halda fyrir nefið og stökkva
saman út í sundlaug möguleikanna.
Úr að ofan og
rífum í árar
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
Draga andann djúpt, halda fyrir nefið og stökkva.
’
Það er æv-
inlega
skemmtileg
mannlífsrann-
sókn að tékka á
nýjum kreðsum.
Þær gerast ekki stærri. Teiknimyndasagnahetjan
Tinni labbar inn á hvíta tjaldið með sínu stórkostlega
föruneyti í september.
Steven Spielberg leikstýrir og Peter Jackson fram-
leiðir, en Jackson tekur svo við leikstjórninni í þriðju
myndinni um Tinna, sem frumsýnd verður 2013. Tinni
verður leikinn af Daniel Craig, sem hingað til hefur
verið kunnastur sem James Bond.
Stórmynd um Tinna
stöðvar heims, til dæmis þær bandarísku, sendu fréttatíma sína beint
út frá Íslandi.
Bandaríkjaforseti kom til Íslands 9. október. Sovétleiðtoginn kom
næsta dag og voru þar færri fyrirmenni viðstödd en vera skyldi enda
var verið að setja Alþingi á sama tíma.
Þegar Gorbachev steig út úr flugvél sinni á Keflavíkurflugvelli gekk
Ögmundur Jónasson, þá fréttamaður Sjónvarps, til hans klæddur
ljósum rykfrakka og talaði til Sovétleiðtogans á tungu hans þjóðar.
„Við trúum því, að nú sé stundin komin til að hefjast handa af alvöru
... Við viljum vinna að afvopnun og stefna að því, að kjarnorkuvopn
hafi verið upprætt áður en ný öld gengur í garð,“ sagði Gorbachev í
ávarpi sínu til núverandi innanríkisráðherra.
Í bókinni Þá flaug Hrafninn segir Ingvi Hrafn Jónsson sem á þessum
tíma var fréttastjóri Sjónvarpsins að Sovétmenn hafi greinilega komið
hingað til lands með þeim ásetningi að vinna fjölmiðlastríðið sem
leiðtogafundinum fylgdi. Áleitin spurning sé hvaða fjölmiðlaráðgjafa
þeir hafi haft á sínum snærum. Mikill munur til dæmis hafi verið á
framgöngu Gorbachevs – og ekki síður Raisu eiginkonu hans – og svo
þagnarmúrnum umhverfis Reagan.
„Þetta var þeim mun athyglisverðara þar sem sá sem kunni að nota
sér fjölmiðlana var frá kommúnistaríki en sá sem ekki notaði þá var
hins vegar frá landi sem telja verður vöggu frjálsrar fjölmiðlunar,“
segir Ingvi Hrafn í bók sinni.
Ögmundur Jónasson
’
Sá sem kunni
að nota sér
fjölmiðlana var
frá kommúnistaríki
en hinn sem ekki
notaði þá kom úr
vöggu frjálsrar fjöl-
miðlunar.
Þá er komið að einvíginu sem allir hafa beðið eftir.
Harry Potter glímir við Voldemort í síðustu myndinni
um galdrastrákinn útvalda, seinni hluta Dauðadjásn-
anna. Hún verður frumsýnd hér á landi 15. júlí.
Í þessari mynd snúa Harry, Ron og Hermione aftur í
Hogwartsskóla í leit að helkrossum Voldemorts. Og þá
fer að draga til tíðinda fyrir alvöru.
Potter aftur í skólann