SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 43

SunnudagsMogginn - 09.01.2011, Blaðsíða 43
9. janúar 2011 43 ureyri er varðveitt gott safn ljósmynda með áherslu á norðlenskt myndefni. Nýlega bárust Minjasafninu á Akureyri safninu glerplötur ljósmyndarans Bárðar Sigurðssonar, sem fæddur var 1872 , og starfaði í byrjun 20. aldar. Bárður var Þingeyingur og veita ljósmyndir hans innsýn í sveitalíf á Norðurlandi á 19.-20. öld með raunsönnum myndum úr nær- umhverfi ljósmyndarans. Plötusafn Bárð- ar Sigurðssonar hafði verið í fórum Eð- varðs Sigurgeirssonar ljósmyndara á Akureyri í áratugi. Safn Bárðar hefur verið lítt þekkt til þessa, en það hefur að geyma mannamyndir, og þjóðlífs- og stað- armyndir. Athygli vekur að mannlífs- og náttúrumyndir skipa í raun hærri sess en mannamyndirnar, sem skapar Bárði ákveðna sérstöðu. Bárður var áhuga- ljósmyndari, sem hafði myndavélina meðferðis í lífi og starfi, en einnig at- vinnumaður á sínu sviði. Ljósmyndir Bárðar endurspegla veruleika sveitunga hans. Þar má sjá karla við slátt, fjölskyldur við borðhald, baðstofulíf, spariklædd börn, konur á íslenskum búningum, fólk á ferð og stórbrotnar myndir af landslagi Norðurlands. Áhugavert er að virða fyrir sér útlit fólks, fatnað, húsbúnað, atburði og umhverfi svo eitthvað sé nefnt. Bárður hefur fangað einstök augnablik í lífi sam- ferðamanna sinna, og nýtur þar trausts þeirra sem hann ljósmyndaði. Myndir Bárðar eru fyrir vikið raunsannar, lausar við tilgerð og ómetanlegar heimildir um íslenskt bændasamfélag. Það gefur mynd- um hans einstakt gildi. Segja má að eng- inn ljósmyndari annar hér á landi hafi komist nær íslenskri sveitamenningu og Bárður enda tilheyrði hann þeim veru- leika sem hann myndaði. Þjóðminjasafn Íslands, Minjasafnið á Akureyri sem er eigandi myndanna og Safnhúsið á Húsavík, safnið í hans heimasveit, taka nú höndum saman og efna til sameiginlegrar sýningar á ljós- myndum Bárðar Sigurðssonar. Söfnin gefa af því tilefni út vandaða bók þar sem fjallað er um lífshlaup og ævistarf Bárðar Sigurðsson með greinum frá söfnunum þremur og fjölmörgum myndum ljósmyndarans. Sýningin verður fyrst opnuð í Myndasal Þjóð- minjasafns Íslands þann 29. janúar. og þegar líður á árið verður hún í Minja- safninu á Akureyri og Safnahúsinu á Húsavík. Það er Þjóðminjasafni Íslands mikilsvert sem höfuðsafni þjóðarinnar að eiga í góðri samvinnu við söfnin á landsbyggðinni og stuðla að því að veita aðgang að þeirri auðlind sem fólginn er í söfnunum. Með sýningu á ljósmyndum Bárðar Sigurðssonar bjóða söfnin þrjú safngestum að kynnast einum merkasta ljósmyndara fyrri tíma og þeim þjóð- arararfi sem fólginn er í myndum hans. Sjá nánar: http://www.thjodminja- safn.is/minjar-og-rannsoknir/ ljosmyndasafn-islands/ ’ Segja má að eng- inn ljósmyndari annar hér á landi hafi komist nær ís- lenskri sveitamenningu en Bárður Sigurðsson enda tilheyrði hann þeim veruleika sem hann myndaði. Við slátt í Dragsey hjá Haganesi í Mývatnssveit 1908 . Talið frá vinstri, Kristján Helgason, óþekktur og Helgi Jónsson bóndi í Haganesi. Ljósmynd/Bárður Sigurðsson bronsi, baðherbergisflísum; líka prjón- aður skúlptúr. „Ég horfi á málverkin og þau gefa mér hugmynd um efnivið í skúlptúrinn. Eitt verka Kjarvals sem ég vísa í heitir Mosi við Vífilsfell, þetta er mynd af víðáttumiklu hrauni sem ég geri úr gólfefnagúmmíi með gulum flögum í. Það gefur svolitla mosatilfinningu. Sum verkin eru nokkuð bókstafleg, til dæmis gifsverk sem ég málaði með bleki en það vísar í blekteikningu af fjalli. Önnur eru meira abstrakt.“ Hvað varð um póstmódernismann? Stefán útskrifaðist frá Myndlistar- og handíðaskóla Íslands árið 1992 og lauk MFA-gráðu við School og Visual Arts í New York árið 1994. Hann hefur lengi unnið út frá listaverkum annarra. Höfðu póstmódernískar kenningar um endurvinnslu áhrif á þá þróun? „Ég hugsa það,“ svarar hann. „Þegar ég var í skóla var mikil umræða í gangi um endalok listarinnar. Og hvað þá? spurðu menn. Mér fannst einn mögu- leikinn vera þessi; fyrst búið væri að gera allt, þá gerði ég verkin bara aftur. Þetta er því einhvers konar svar við umræðu sem var sterk þegar ég var að byrja í myndlistinni, og má alveg tengja póst-módernískum fræðum. Svo er spurning hvað hefur orðið um þennan póstmódernisma,“ segir Stefán og brosir. Í íslenskri myndlist hefur málverkið „átt“ landslagsmyndina og Stefán segir að með þessum þrívíddarverkum, spyrji hann hvort hann sem skúlptúr- isti geti ekki eignast einhverja sneið af þeirri köku. „Getur landslagsmynd ekki verið þrívíð alveg eins og tvívíð?“ spyr hann og segist ekki vera einn í þeim pæl- ingum, nefnir sem dæmi fleiri skúlp- túrista: Kristin E. Hrafnsson, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Katrínu Sigurð- ardóttur, og jafnvel Helga Þorgils. „Þessi verk eru engin óvirðing við landslagið eða Kjarval, alls ekki,“ segir hann. Verk Kjarvals séu bara sinn efni- viður, rétt eins og landslagið, sem Kjarval horfði á sem „frumáhorfandi“, var hans efniviður. „Ég hef stundum hugsað um frum- myndakenningu Platóns, sem þoldi ekki listina því hann sagði að allir hlutir í kringum okkur væru eft- irmyndir af frummyndum, og svo kemur listamaður og gerir eftirmynd af eftirmyndinni. Það fannst honum orð- ið afskaplega útvatnað. Ég er síðan kominn enn einu skrefi lengra og far- inn að gera eftirmynd af eftirmynd af eftirmynd. Ég er ekkert sammála Platón, enda segja þessi verk mín að eftirmyndin sé jafn merkileg frummynd og sú frum- mynd sem Kjarval vann með. Ég nota málverkin rétt eins og Kjarval notaði náttúruna á sínum tíma,“ segir Stefán. Hann verður með listamannsspjall á sýningunni í á morgun, sunnudag, kl.15.Stefán við verkið Kjarvali III (Frá Þingvöllum, Botnssúlur). „Ég nota málverkin rétt eins og Kjarval notaði náttúruna á sínum tíma,“ segir hann um nálgun sína í sköpuninni. Morgunblaðið/Golli ’ Ég er ekkert sammála Platón, enda segja þessi verk mín að eftirmyndin sé jafn merkileg frummynd og sú frummynd sem Kjarval vann með.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.