SunnudagsMogginn - 07.08.2011, Blaðsíða 13
7. ágúst 2011 13
Litirnir í þessu setti eru
áberandi flottir en höf-
uðskrautið gæti orðið til
smá trafala. Þó flott sé.
Það mætti halda að þessi föngulegi hópur fyrirsæta, sem sýnir hér nýj-
asta nýtt í sund og fatatískunni frá Leonisa, sé á leið á kjötkveðjuhátíð.
S
undfötin og nærfötin frá hinu kólumbíska
tískumerki Leonisa eru bæði litrík, kvenleg og
kynþokkafull. Nýafstaðin tískusýning minnti
einna helst á kjötkveðjuhátíð með glæsilegum
búningum og miklu höfuðskrauti sem setti punktinn yfir
i-ið.
Fyrirtækið var stofnað árið 1956 og miðar að því að sjá
um framleiðsluna frá a til ö. Þannig framleiðir fyrirtækið
90% þeirra efna sem notuð eru. Einnig er það þekkt fyrir að
vera fyrsta merkið frá Suður-Ameríku til að sjá sjálft um
dreifingu í 17 öðrum löndum. Forsvarsmönnum fyrirtækisins er
annt um samfélagslega ábyrgð og styðja því við einstaklinga,
samfélög og samtök sem vilja koma viðskiptahugmyndum sín-
um á framfæri.
maria@mbl.is
Spænski tískuhönnuðurinn Ruiz de la
Prada sýndi nýjasta nýtt úr sinni
smiðju á kólumbískum tískusýning-
arpöllum nýlega. Ruiz de la Prada hóf
feril sinn í tískuheiminum árið 1981 en
þá var kvenfatalína hennar kynnt í
Madríd. Í kjölfar góðra viðbragða opn-
aði hún stúdíó í borginni og tók þátt í
tískusýningum í Madríd og Barcelona.
Frá árinu 1991 hefur Ruiz de la Prada
smám saman fært út kvíarnar og hann-
ar nú bæði karlmanns- og kvenfatnað,
skó, snyrtivörur og rúmföt. Verslanir
með hönnun hennar má finna í Madríd,
Barcelona, París, Mílanó, New York,
Oporto og Mallorca. Auk þess er hönn-
un hennar seld í betri tískuhúsum víða
um heim. Á þrítugasta starfsári sínu
virðist Ruiz de la Prada engu hafa
gleymt. Nýjasta hönnun hennar í sund-
fötum ber þess merki og er allt í senn
litrík, fjölbreytt og skemmtileg.
Stundum geta tvenns konar ólík mynstur
farið vel saman eins og sést á þessari
mynd. Sundhettan kórónar útlitið.
Reuters
Þesi blés hlýlegum sumarkossi til við-
staddra ílædd glaðlegu, röndóttu bikiníi.
Röndótt klikkar sjaldnast.
Reuters
Þetta bikinı́ er tilvalið fyrir þær sem vilja
látlausari liti en samt fallegt mynstur.
Krúttulegt á ströndina eða í sundið.
Reuters
Nýjasta nýtt frá
Ruiz de la Prada
Tískusýning í anda
kjötkveðjuhátíðar
Þessar buxur eru mjög krúttlegar og örugg-
lega fínar líka til að sofa í þeim. Brjóstahald-
arinn sér um smá upplyftingu á barminum.
Reuters
Vonandi er þessi ekki í
sjokki yfir að hafa
gleymt sundbuxunum.
Farið eftir þennan sundbol, eða samfasta
bikiní, gæti orðið í skrautlegri kantinum.