SunnudagsMogginn - 07.08.2011, Page 44
44 7. ágúst 2011
Það er eitthvað heillandi við veröld sem var. Saga stórvelda einsog
Býsanveldisins og Austurríkis-Ungverjalands sem gnæfðu yfir ná-
grönnum sínum áður en þau hrundu og voru þurrkuð út af yfirborði
jarðar er lokkandi. Sjálfsævisaga Stefáns Zweig, sem einmitt heitir
Veröld sem var, lýsir austurrísk-ungverska keisaradæminu og lífinu
í Vín með svo melankólískri fegurð að hún er enn
vinsæl í dag. Verk ungverska höfundarins Miklós
Bánffy sem komu út á fyrri hluta síðustu aldar eru
farin að vekja þónokkra athygli í bókmennta-
hringjum Vesturlanda en þau fjalla einmitt líka um
Austurríki-Ungverjaland rétt fyrir hrun veldisins.
Öfugt við Zweig var Bánffy embættismaður og að-
alsmaður sem var um tíma utanríkisráðherra Ung-
verjalands, aðeins þremur árum eftir að stórveldið
Austurríki-Ungverjaland hafði verið brotið niður í smáeindir eftir
ósigur sinn í fyrri heimsstyrjöldinni. Hann hafði setið á þingi stór-
veldisins í um tuttugu ár áður en það var liðað í sundur. Eftir að
kommúnistar náðu völdum í Ungverjalandi og Rúmeníu eftir seinni
heimsstyrjöld áttu verk Bánffy litla möguleika. Því þótt hann hefði
barist gegn stuðningi Ungverja og Rúmena við nasista þá var hann
aðalsmaður og fyrirlitinn sem slíkur af kommúnistum. Fyrsta þýð-
ing á verkum hans á ensku var ekki gefin út fyrr en árið 1999. Hann
skrifaði mörg leikrit um ævina og smásögur en frægastur er hann
fyrir svokallaða Transylvaníu-trílógíu sem stundum er einnig nefnd
Skrifað á vegginn. Bækurnar þrjár nefnast; They Were Counted,
They Were Found Wanting and They Were Divided. Trílógían kom
út á árunum frá 1934 - 1940. Sögurnar lýsa því hvernig austurrísk-
ungverska keisaradæminu hnignar, og stöðnun þess; þær lýsa dauð-
daga stórveldis.
Einum 59 árum eftir að síðasti hluti trílógíunnar
kom út í Ungverjalandi kom hún fyrst út á ensku
og síðan þá hafa verið að birtast lofsamlegir dómar í
blöðum um bækur hans. The Daily Telegraph, The
Scotsman, The New Statesman, The Guardian, öll
tala blöðin um hann sem meistara og af slíkri gleði
yfir að hafa fundið jafn magnaðan höfund sem hef-
ur verið óþekktur utan Ungverjalands til þessa.
Tóninum í bókum hans er lýst sem harmrænum en
ekki bitrum, þótt hann hafi haft allan rétt til þess
að vera bitur. Ekki aðeins komst hann til æðstu
metorða í ríki sem var liðað sundur og horfði uppá þær hörmungar
sem fyrri og seinni heimstyrjaldirnar færðu löndum hans. Óðalsetur
ættar hans í Transylvaníu varð fyrir loftárás af bandamönnum sem
hann hafði þó frekar viljað að land sitt fylkti sér á bakvið, það var
líka rænt af nasistum og brennt til grunna sem refsing fyrir mót-
spyrnu hans við stefnu Hitlers og síðan voru rústirnar og lendurnar
teknar af honum af kommúnistum og honum meinað að fara yfir til
Ungverjalands þegar búið var að færa landamæri Rúmeníu yfir hans
lendur. Það er magnað að hann hafi lifað án biturðar.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Gleymdur meistari
Miklós
Bánffy
Eymundsson
1. Frelsarinn – Jo Nesbö
2. Íslenskur fuglavísir – Jóhann Óli
Hilmarsson
3. Það sem aldrei gerist – Anne
Holt
4. Einn dagur – David Nicholls
5. Ófreskjan – Roslund & Hellst-
röm
6. Hefndargyðjan – Sara Blædel
7. 10 árum yngri á 10 vikum – Þor-
björg Hafsteinsdóttir
8. Ég man þig – Yrsa Sigurð-
ardóttir
9. Nemesis – Jo Nesbö
10. Skindauði – Thomas Enger
New York Times
1. The Help – Kathryn Stockett
2. Portrait of a Spy – Daniel Silva
3. A Dance With Dragons –
George R.R. Matin
4. Now You See Her – James Pat-
terson og Michael Ledwidge
5. Split Second – Catherine Coul-
ter
6. Happy Birthday – Danielle Steel
7. A Game of Thrones – George
R.R. Martin
8. The Black Echo – Michael Con-
nelly
9. The Confession – John Gris-
ham
10. Then Came You – Jennifer
Weiner
Waterstone’s
1. The Final Curtsey – Margaret
Rhodes
2. Ghost Story – Jim Butcher
3. Sky Sports Football Yearbook
2011-2012 – Jack Rollin
4. The Short Second Life of Bree
Tanner – Stephenie Meyer
5. Worth Dying For – Lee Child
6. Mini Shopaholic – Sophie Kin-
sella
7. Breaking Dawn – Stephenie
Meyer
8. Baby Be Mine – Paige Toon
9. The Girl Who Kicked the Hor-
nets’ Nest – Stieg Larsson
10. The Power of Six – Pittacus
Lore
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar,
Bókabúðinni Eskju, Bókabúðinni Hamraborg, Bókabúðinni Iðu, Bóka-
búðinni við höfnina Stykkishólmi, Bóksölustúdenta, Bónus, Hag-
kaupum, Kaupási, N1, Office 1, Pennanum-Eymundssyni og Sam-
kaupum. Rannsóknasetur verslunarinnar annast söfnun upplýsinga
fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda.
J
ohn Green gaf út sína fyrstu bók árið
2005 og hún fékk mjög góðar viðtökur og
seldist afskaplega vel. Green sem er frek-
ar ungur höfundur, fæddur árið 1977,
gekk í Indian Springs School þar sem hann var
í heimavist. Byggir hann þessa fyrstu bók sína,
sem nefnist Looking for Alaska, á þessari
reynslu sinni. Hún fjallar um ungan strák, Mi-
les Hartley, sem fer að heiman og í heimavist.
Foreldrar hans halda handa honum kveðju-
veislu en verða fyrir vonbrigðum þegar aðeins
tveir koma í veisluna. En Miles sjálfur er ekki
vonsvikinn, hann hefur þegar lært að búast
ekki við neinu. Hann hefur gert lokaorð Ra-
belais að sínum: Ég leita þess stórkostlega sem
kannski er.
Í heimavistinni kynnist hann herbergisfélaga
sínum, Chip, sem er kallaður ofurstinn. Ofurst-
inn gefur Miles uppnefnið Patti, þótt Miles sé
hvorki lágur né digur. Ofurstinn kynnir hann
fyrir vinkonu sinni, Alaska Young og verða þau
þrjú vinir. Patti verður fyrir stríðni og er hent í
stöðuvatnið, líklegast fyrir þær sakir einar að
þekkja Ofurstann, af gengi innan skólans. Þá
byrjar einskonar stríð í strákapörum milli þess-
ara gengja á heimavistinni. Meðan á þessu
stendur verður Patti ástfanginn af Alaska en þar
sem hún er að deita sér eldri strák, metur Patti
stöðuna sem vonlausa. Hann fer því að deita
aðra stelpu en er stöðugt að hugsa um Alösku.
Þau læra að drekka í heimavistinni og fara í
sannleikann og kontór og ýmislegt misjafnt
kemur í ljós úr fortíð þeirra. Eitt kvöldið verð-
ur óvænt atvik tengt Alösku sem leiðir til þess
að Patti og Ofurstinn fara að rannsaka meira
hegðun hennar og ástæður hegðunarinnar.
Bókinni er skipt í tvo kafla; Fyrir og Eftir.
Einsog heyra má er ekki um unglingasögu að
ræða, heldur frekar einhverskonar millistig,
Green skrifar bækur fyrir það fólk sem er rétt
við það að verða fullorðið eða nýorðið fullorðið.
Looking for Alaska varð mjög vinsæl í Banda-
ríkjunum og fékk hann Michael L. Printz verð-
launin fyrir bókina, sem eru afhent af Sam-
bandi bandarískra bókasafna. Frásagnarstílnum
og aðalsöguhetju bókarinnar hefur oft verið líkt
við stílinn og aðalhetju Catcher in the Rye eftir
J.D. Salinger. Búið er að selja kvikmyndaréttinn
á bókinni og mun bíómynd verða gerð eftir
henni á næsta ári.
Eftir árangurinn með sína fyrstu bók kom
strax önnur út eftir hann ári seinna, An
Abundance of Katherines. Árið 2008 kom síðan
Paper Towns, árið 2010 kom Will Grayson, Will
Grayson út og núna í ár kom nýjasta bókin
hans út; The Fault in Our Stars.
Bók númer tvö sem naut jafnvel enn meiri
vinsælda, var Abundance of Katherines sem
fjallar um 17 ára strák, Colin Singleton, sem er
með þráhyggju um anagram. En anagram er
orð sem er myndað með því að raða stöfum
annars orðs upp á nýtt. Þegar sagan hefst er
þunglyndi farið að hrjá hann, því þótt hann
haldi ennþá status undrabarns í sínu litla sam-
félagi er hann ennþá mjög langt frá því að
verða einhver snillingur. Ofan á það að hann er
ekki enn orðinn snillingur einsog hann óskar
sér helst, þá er kærastan hans Katherine nýbú-
in að segja honum upp. En Katherine er reynd-
ar nítjánda í röð kærasta hans sem allar hafa
heitið Katherine. Þar sem grunnskólanum er
lokið og sumarið framundan áður en fram-
haldsskólinn byrjar telur eini vinur hans, Hass-
an Harbish, hann á að fara í ferð á bíl yfir sum-
arið. Þar lenda þeir í ýmsum ævintýrum sem
unglingar vilja lenda í, mörg þeirra tengd
stúlkum, önnur tengd verkefnum sem sér-
kunnátta þeirra hjálpar þeim við að leysa.
John Green er hér að svara fyrispurnum á kynningu á nýjustu bók sinni í Minneapolis í Bandaríkjunum.
Stríð í strákapörum
Ungir fullorðnir er markhópur lesenda sem John Green
hefur sótt inn í af miklum krafti í Bandaríkjunum, hann
þykir skrifa auðveldar bækur með góðri persónusköpun
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is