Morgunblaðið - 01.04.2010, Side 8
8 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
Eiður Guðnason, fyrrverandi ráð-herra, skrifar fróðlega pistla um
málfar í fjölmiðlum og einnig mola
úr dægurumræðunni. Hann hefur
fundið óþægilega margar ambögur í
MBL að undanförnu og verða menn
hér á bæ að bæta ráð sitt.
En nýlegafjallaði Eiður
um samskiptin
við Bandaríkin að
gefnu tilefni.
Minnti hann á að
enn væri óskipað
í sendiherrastöðu
þeirra hér þótt
hálft ár væri liðið frá því að sá síð-
asti fór og settur forstöðumaður þar
í forsvari:
Og öðru vísi mér áður brá. Í sendi-ráðinu er enginn varnarmála-
fulltrúi. Varnarmálafulltrúi banda-
ríska sendiráðsins á Íslandi er í
bandaríska sendiráðinu í Osló ! Síð-
asti sendiherra Bandaríkjanna á Ís-
landi var Carol van Voorst. Hún fór
héðan á fyrrihluta árs 2009 eftir for-
dæmislausa sneypuför til Bessa-
staða, en henni hafði verið tilkynnt
að sæma ætti hana fálkaorðunni og
hefur hún verið búin að fá samþykki
bandaríska utanríkisráðuneytisins
til að mega þiggja orðuna. Skömmu
áður en hún og maður hennar
renndu í hlað á Bessastöðum var
hringt í bíl þeirra frá forsetaemb-
ættinu og sagt að sendiherrann
fengi enga fálkaorðu Þetta væri allt
misskilningur. Allt í plati. Slík fram-
koma þjóðhöfðingja við sendiherra,
sem er að kveðja, hlýtur að vera
einsdæmi í sögu diplómatískra sam-
skipta og er auðvitað fáheyrður
dónaskapur. Sagt var í fréttum að
bandaríski sendiherrann hefði skilið
forseta vorn á þann veg að þeir einir
fengju fálkaorðuna, „sem hennar
væru verðir“. Aldrei hefur fengist
fullnægjandi skýring á þessari fá-
ránlegu uppákomu. Hún var okkur
til háborinnar skammar.“
Þetta var þörf upprifjun hjá Eiði.Alþingismenn ættu að óska eftir
fullnægjandi skýringum á máli sem
bersýnilega skaðar þjóðina.
Eiður Guðnason
Óupplýst klúður
Veður víða um heim 31.3., kl. 18.00
Reykjavík -1 léttskýjað
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri -4 skýjað
Egilsstaðir -4 skýjað
Kirkjubæjarkl. -1 léttskýjað
Nuuk -1 léttskýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 3 skúrir
Kaupmannahöfn 9 skýjað
Stokkhólmur 3 þoka
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 3 léttskýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 4 skýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 7 léttskýjað
París 10 léttskýjað
Amsterdam 7 skúrir
Hamborg 12 skýjað
Berlín 11 alskýjað
Vín 9 alskýjað
Moskva 10 skýjað
Algarve 17 skýjað
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 15 heiðskírt
Róm 14 léttskýjað
Aþena 19 léttskýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 8 alskýjað
New York 11 alskýjað
Chicago 18 skýjað
Orlando 21 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
1. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:46 20:19
ÍSAFJÖRÐUR 6:46 20:28
SIGLUFJÖRÐUR 6:29 20:11
DJÚPIVOGUR 6:14 19:49
Hvað er verið að bjóða út?
Fjórar stangir eru leyfðar í Orm-
arsá. Áin er 38 km löng, þar af eru
17 km laxgengir. Um 230 laxar
veiddust þar á síðasta ári.
Hvaða aðstaða er við ána?
Nýlegt veiðihús er hjá Arn-
arþúfufossi. Þar geta átta gist
með góðu móti.
Hvert fer arðurinn?
Fjórtán jarðir eiga land að Orm-
arsá og fleiri en einn eigandi er að
sumum þeirra.
S&S
FRÉTTASKÝRING
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
HÓPUR stangveiðimanna undir
forystu Arhurs Bogasonar, for-
manns Landssambands smábáta-
eigenda, átti hæsta tilboð í leigu
Ormarsár á Melrakkasléttu. Takist
samningar mun leigan hækka um
63% frá því sem nú er og hefur hún
þó tvöfaldast á tveimur árum vegna
gengisbreytinga.
Svisslendingarnir Ursula og
Ralph Doppler hafa haft Ormarsá á
leigu frá árinu 1995. Þau leigja
einnig Deildará sem sömu jarðir
eiga að hluta. Núverandi samn-
ingar um báðar árnar renna út í
haust.
Hylurinn fullur af fiski
Samningarnir eru gerðir í sviss-
neskum frönkum og því hafa tekjur
veiðiréttareigenda tvöfaldast í ís-
lenskum krónum á tveimur árum.
Samningurinn við Veiðifélag Orm-
arsár skilar eigendum hennar um
9,5 milljónum á ári. Doppler óskaði
eftir því að leiguverðið yrði lækkað
niður í 6,5 milljónir. Því hafnaði
stjórn Veiðifélagsins, vildi halda
sama arði og helst að verðbæta
hann. „Þau hafa staðið við allt sitt
en það samdist ekki um framhaldið.
Við vildum því láta reyna á mark-
aðinn,“ segir Höskuldur Þor-
steinsson, bóndi á Höfða og for-
maður veiðifélagsins.
Lítið hefur verið um útboð á ám
og óvissa í samningum vegna efna-
hagsþrenginga í þjóðfélaginu.
Veiðifélagið renndi því agninu blint
í vatnið. Hylurinn reyndist fullur af
fiski. Sautján tilboð bárust.
Tólf til fjórtán manna hópur
stangveiðimanna undir forystu
Arthurs Bogasonar bauðst til að
borga um 15 milljónir á ári fyrir
ána. Nokkrir úr hópnum þekkja vel
til svæðisins frá því stangveiði-
félagið Flugan á Akureyri var með
ána á leigu, áður en Doppler tók
við. Þeir munu ætla að skipta veiði-
dögunum á milli sín og ef til vill
bjóða eða selja vinum daga. Al-
mennir stangveiðimenn munu því
ekki geta keypt þar veiðileyfi, ekki
frekar en verið hefur undanfarin
fimmtán ár.
Fleiri af hæstu tilboðum voru frá
stangveiðihópum en fyrirtæki sem
selja veiðileyfi voru með miðlungs
tilboð.
Stjórn Veiðifélags Deildarár hef-
ur beðið átekta. Jóhann Hólm-
grímsson, formaður þess, segir að
núverandi leigutaki hafi rétt til að
ganga inn í hæsta tilboð. Reiknar
hann með að áhuginn sem kom
fram þegar Ormarsá var auglýst
leiði til þess að Deildará verði einn-
ig boðin út.
Morgunblaðið/Einar Falur
Við veiðar Veiði hefur ekki verið stunduð stíft í Ormarsá en nú getur orðið breyting á því. Myndin er tekin í Dölum.
Vilja greiða 63% hærri
leigu en Svisslendingarnir
Gamlir kunningjar Ormarsár á
Melrakkasléttu vilja endurnýja
kynni sín við ána. Þeir eru í
stangveiðimannahópi sem bauð
hæst í leigu árinnar.
Mikill áhugi kom fram þegar Ormarsá á Melrakkasléttu var auglýst til leigu