Morgunblaðið - 01.04.2010, Síða 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
Sporin voru þung
þegar við fylgdum
nafna mínum til graf-
ar á dögunum. Hann var fæddur á
Eskifirði 7. ágúst 1925 – steinsnari
sunnar en þar sem ég varð til átta
árum síðar, að eigin sögn sonur
Gilsa í bankanum – og fór frá okk-
ur þann 13. þ.m. Þar fór vænn vin-
ur.
Flugstjóraferill nafna var far-
sæll; honum hlekktist aldrei á.
Þegar flotinn var uppfærður úr
stimpilvélum í þotuhreyfla var
nafni einn af fáum flugstjórum
okkar til að verða uppfærður sam-
Ingvar Þorgilsson
✝ Ingvar Þorgils-son, flugstjóri,
fæddist á Eskifirði 7.
ágúst 1928. Hann
andaðist á hjúkr-
unarheimilinu Sunnu-
hlíð í Kópavogi 13.
mars 2010.
Útför Ingvars fór
fram frá Kópavogs-
kirkju 23. mars 2010.
tímis. Hann talaði um
sálmana – spurninga-
og svaralista flug-
stjóra og flugmanna –
sem kyrja þurfti fyrir
flugtak og eftir lend-
ingu. Ekki mátti
hreyfa vélar eða fara
frá borði fyrr en síð-
ustu versin höfðu ver-
ið kveðin.
Leiðir okkar lágu
fyrst saman í Darm-
stadt 1956, þar sem
ég var við nám. Þar
bjó nafni með fjöl-
skyldu sinni – Ingu, Ágústínu
þriggja ára og Haraldi spánýjum –
en Þorgils varð til síðar. Börnin
hétu eftir ömmum sínum og öfum
eins og hefðin bauð og þetta var
fallegt íslenskt heimili. Nafni flaug
klunnalegum skrúfuþotum fyrir
LTU og síðar Cargolux. Þær voru
enskar, uppfærðar í Kanada og
búnar fjórum túrbínum með fjög-
urra blaða skrúfum, fimm metra í
þvermál. Gyro-krafturinn sem
heldur skopparakringlu lóðréttri
gerði að skrúfurnar vildu fara
beint; ekki mátti taka krappar
beygjur því þá gátu þær brotnað
af.
Konfúsíus taldi lífið vera röð af
tilviljunum. Ég rakst inn á bar á
hóteli í Singapúr, þar sem töluð var
íslenska við næsta borð. Þar sat
nafni, með Ellu Pálma ásamt fleir-
um sem fengið höfðu far til Austur-
landa fjær. Nafni var á leið til
Hong Kong – og ég líka; önnur til-
viljun – og úr varð að ég flaug með.
Í Hong Kong blés að austan og
varð nafni að koma inn til lend-
ingar yfir Kowloon. Kai Tak-flug-
völlurinn var barn síns tíma;
brautin lá í austur frá háhýsa-
hverfi, sem í var rás fyrir aðflug.
Við enda rásarinnar var kröpp
beygja inn á brautina, sem flug-
vélin okkar rétt gat náð. Í flugvél-
inni var stór snúður í rafal, en
brautin var stutt og til að nýta
hana alla varð nafni að setja flug-
vélina niður við brautarendann.
Annars gat snúðurinn komið fram
í til okkar. Við flugum um rásina
þröngu þar sem þvottur kín-
verskra húsmæðra hékk á snúrum
á svölunum, en allt fór vel og
nafni notaði alla brautina til að
hemla.
Þegar síðasta versið var á enda
spurði nafni íbygginn hvort þvott-
ur myndi hafa flækst í skrúfunum.
Ég taldi svo ekki vera. Síðar sagði
hann mér oft sögur af svona ferð-
um. Gamansamar frásagnir hans
einkenndust af að ávallt var
grunnt á alvörunni. Þetta var
meðfæddur eiginleiki sem þróað-
ist í starfi, en því lauk á farsælan
hátt – áfallalaust. Menn eins og
nafni eru ekki búnir til lengur.
Við kvöddum nafna minn í
hinsta sinn í Kópavogskirkju þann
23. mars sl. og hittum Ingu, börn-
in og barnabörnin í Perlunni að
athöfn lokinni. Það voru ljúfir
endurfundir þótt tilefnið væri
annað en við hefðum kosið. Fjöl-
skyldan heldur tryggð við hefðir
og ég á enn nafna í henni þótt sá
sem ég þekkti best og virti mest
sé farinn. Hugur okkar er hjá
þeim sem eftir lifa.
Kærar kveðjur frá
Önnu og Ingvari.
✝ Karl SvanholtBjörgvinsson var
fæddur í Krossavík í
Þistilfirði 9. apríl
1921. Hann lést á
Vistheimilinu Nausti
á Þórshöfn 8. mars
2010. Karl var sonur
hjónanna Kristmundu
Þorbjargar Guð-
mundsdóttur, f. 12.
ágúst 1892, d. 27. júní
1972, og Björgvins
Þórarinssonar,
Krossavík, Þistilfirði,
f. 1. júní 1890, d. 3.
janúar 1979. Karl var fjórði í röð
ellefu systkina en þau eru: Þór-
halla Svanholt Björgvinsdóttir, f.
23. janúar 1916, d. 18. mars 1996,
sambýlismaður Sveinn Kristinn
Nikulásson, f. 25. september 1912,
d. 25. apríl 1988. Þau áttu fimm
syni. Ragnar Þórlaugur Svanholt
Björgvinsson, f. 11. október 1917,
d. 30. ágúst 1979, sambýliskona
Kristín Einarsdóttir, f. 22. desem-
1. nóvember 1934. Þau eiga fjögur
börn og Guðmundur einn son af
fyrra sambandi. Kristín Sigríður
Svanholt Björgvinsdóttir, f. 13.
nóvember 1930, sambýlismaður
Hreiðar Friðgeirsson, f. 7. sept-
ember 1910, d. 2. desember 1964.
Þau áttu fjórar dætur og Kristín
einn son af síðara sambandi. Þyri
Ragnheiður Svanholt Björgvins-
dóttir, f. 15. janúar 1932, maki
Högni Felixson, f. 29. október 1931.
Þau eiga fjögur börn. Elsa Herdís
Svanholt Björgvinsdóttir, f. 29. maí
1933, maki Elí Bergmann Jónsson,
f. 15. desember 1935. Þau eiga eina
dóttur.
Sambýliskona Karls var Júlíana
Ingilín Gunnarsdóttir frá Kúðá í
Þistilfirði, f. 27. nóvember 1934, d.
11. júní 1990. Þeim varð ekki barna
auðið. Karl ólst upp í Krossavík og
tók ungur við búi foreldra sinna,
Karl og Júlíana bjuggu í sambýli
með foreldrum Karls í Krossavík.
Hann brá búi 1995. Hann flutti til
Raufarhafnar þar sem hann hélt
heimili með bróðursyni sínum
Svani Elvari. Árið 2002 flutti hann
á Dvalarheimilið Naust á Þórshöfn
og naut þar góðrar umönnunar.
Útför Karls fór fram frá Sval-
barðskirkju í Þistilfirði 20. mars
2010.
ber 1908, d. 17. maí
2001. Þau áttu tvö
börn. Þormóður Karl
Svanholt Björg-
vinsson, f. 1919, d.
1921. Hólmfríður
Guðmunda Svanholt
Björgvinsdóttir, f. 7.
desember 1922 maki
Gísli Gíslason, f. 18.
apríl 1910, d. 15. jan-
úar 1969. Þau eign-
uðust fjögur börn.
Sigurður Svanholt
Björgvinsson, f. 16.
apríl 1925, d. 16. apr-
íl 2008, maki Jónína Kristín Að-
alsteinsdóttir, f. 22. maí 1925, d. 28.
ágúst 2006. Þau áttu sjö börn og
Kristín tvo syni af fyrra sambandi.
Níels Pétur Bergþór Svanholt
Björgvinsson, f. 10. ágúst 1926,
maki Ágústa Þórey Haraldsdóttir,
f. 28. október 1929. Þau eiga þrjár
dætur. Halldór Guðmundur Svan-
holt Björgvinsson, f. 6. febrúar
1928, maki Helga Jóhannsdóttir, f.
Látinn er í hárri elli ljúflingurinn
Kalli í Krossavík. Mér til gamans set
ég á blað nokkrar endurminningar
frá samskiptum okkar. Það byrjaði
haustið 1955 þegar „farskólinn í Þist-
ilfirði“ var í Krossavík allt frá vet-
urnóttum til jóla. Í neðri bænum var
kennt og þangað voru tekin tvö að-
komubörn. Í efribæ bjó kennarinn
hálfa önnina auk þriggja aðkomu-
barna. Þrjú heimabörn í efribæ sóttu
skólann. Það munu hafa verið 8 börn
við námið í þessar 8 vikur sem Óli á
Gunnarsstöðum kenndi í stofunni hjá
Kristmundu og fór vel um okkur. Því
til sanninda má geta þess að við sem
ekki áttum heima í Víkunum fórum
aldrei heim um helgar. En tvisvar fór
ég á sunnudögum í Kollavík, annað
sinnið líka í Borgir. Heimilisfólkið í
Björgvinsbæ var svo elskulegt við
mig 10 ára strákinn sem var í fyrsta
sinn að fara að heiman, Kristmunda
trúði mér fyrir hafragrautarsuðunni
meðan hún var að sækja slátrið í
kjallarann, Júlla smitaði mann af
áhuga fyrir að læra markaskrána og
mest og oftast hélt maður sig nálægt
Kalla sem hló svo skemmtilega.
Margt var það sem ég, krakkinn,
dáðist að hjá Kalla, t.d. þegar hann
fór „í gegnum sjálfan sig“ á dyrager-
iktinu sem var bara 2 cm á breidd.
Þegar skólavistinni lauk í Krossa-
vík liðu 15 ár sem leið mín lá ekki
þangað og hitti Kalla sjaldan. En
þegar ég fékk ásetningsmanns-starf-
ið í Svalbarðshreppi endurnýjaðist
vinskapurinn. Svo skemmtilega vildi
til er ég fór í fyrstu ásetningsferð
mína út í víkur að Karl bóndi var að
halda upp á fimmtugsafmæli sitt og
gestir fyrir er ég kom, ekki margir en
nógu margir til að væri spilafært.
Það var nú gott því fátt var hægt að
gera Kalla betra en bjóða honum að
spilaborði, hann var líka góður
bridge-maður, þar notaðist honum
hæfileikinn að geta reiknað í hugan-
um. Því var það ósanngjarnt að aug-
un skyldu bregðast svona algjörlega
þegar gamli bóndinn var hættur að
búa afskekkt og hafði alla aðstöðu til
að spila. Eitt af mörgu góðu með
Kalla voru saltfiskviðskiptin í haust-
ásetningnum. Það voru þó nokkur
heimili sem pöntuðu orðið 20 eða 30
kg pakka af verkuðum saltfiski. Um-
sögn Gríms á Syðra-Álandi er mér
minnisstæð þegar ég innti eftir hvort
ætti að taka fisk fyrir hans bæ: „Auð-
vitað ef hann fæst, hann er eins og
allt sem Kalli gerir, svo vandað og
snyrtilegt.“
Björgvin faðir Karls var „fínsmið-
ur“. Umtalað var hvað hann var
vandur að efni þegar hann byggði
hús og frægir eru rokkarnir sem
Björgvin smíðaði. Eplin falla oftast
nærri eikinni, synirnir voru allir
smiðir og sumir að ævistarfi. Það var
fleira en fiskurinn sem bar vitni um
gott handbragð. Girðingarstaurarnir
úr Krossavík voru eftirsótt gæða-
framleiðsla. Einu hlassi ók ég til
Björns í Sandfellshaga, það var ekki
leiðinlegt að afhenda þá vöru. Þegar
Kalli var smáhnokki, lítillega byrjað-
ur að tala, spurði presturinn: „Hvað
ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn
stór?“ og Kalli svaraði: „Ætli ég verði
ekki prestur eða kaffiteinn.“ Þetta
fór ekki eftir en hlutverkið hans
Kalla var samfélaginu jafngott þótt
engan bæri hann embættisbúning-
inn.
Stefán Eggertsson.
Karl Svanholt
Björgvinsson
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐLAUGAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
áður Ásvegi 16.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar
A-3, fyrir góða umönnun.
Ólöf Einarsdóttir, Bogi Þórðarson,
Sigurlaug Einarsdóttir,
Erna Einarsdóttir, Bergþór Einarsson,
Einar Örn Einarsson, Hulda Sólborg Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Einlægar þakkir til ykkar kæru ættingjar og vinir
sem sýnduð samúð og hlýhug vegna andláts
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
HULDU ÞORSTEINSDÓTTUR
píanókennara,
áður til heimilis
Nesvegi 76,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Valgerðar Jónsdóttur, hjúkrunarfræðings og
starfsfólks hennar á deild 3-B á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka
umönnun og hlýju.
Lára K. Guðmundsdóttir,
Guðrún Edda Guðmundsdóttir, Finnbogi Rútur Hálfdanarson,
Emil Gunnar Guðmundsson,
Þórunn Hulda Guðmundsdóttir, Bjarni Lárusson,
Hulda Birna Guðmundsdóttir,
Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir, Óskar Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
PÉTUR EYSTEINN STEFÁNSSON,
Hraunbæ 8,
lést á Landspítala Landakoti föstudaginn 26. mars.
Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn
8. apríl kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórhalla Björgvinsdóttir,
Ólafur B. Pétursson, Bjarney Sif Ólafsdóttir,
Stefán Víðir Martin, Maria Irena Martin.
✝
Elskulegur sonur okkar, faðir, tengdafaðir, afi,
sambýlismaður og bróðir,
GYLFI GUNNARSSON
rafeindavirkjameistari,
lést mánudaginn 29. mars.
Útförin verður auglýst síðar.
Elsa Árnadóttir, Magnús Ragnarsson,
Haukur Gylfason, Margrét M. Olsen,
Bríet Alda Hauksdóttir Olsen,
Guðrún Sigurðardóttir,
Valgerður Gunnarsdóttir,
Guðjón G. Magnússon,
Auður S. Magnúsdóttir, Kristinn Sigurðsson,
Ragna J. Magnúsdóttir, Jón Bjarni Geirsson.
✝
Ástkær eiginmaður, besti vinur, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og tengdasonur,
JÓN INGVI SVEINSSON,
Skarðshlíð 17,
Akureyri,
lést á heimili sínu föstudaginn 26. mars.
Útför hans fer fram frá Hvítasunnukirkjunni
Akureyri þriðjudaginn 6. apríl kl. 14.00.
Jarþrúður Sveinsdóttir,
Pétur Á. Jónsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Margrét S. Jónsdóttir, Arnar Þorbjörnsson,
Sveinn Kr. Jónsson,
Aðalgeir A. Jónsson, Inga S. Arnardóttir,
barnabörn, langafadrengur,
Aðalheiður Björgvinsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Minningargreinar