Morgunblaðið - 01.04.2010, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.04.2010, Qupperneq 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HUMARINN ÞINN, HERRA MINN „MATARGESTUR RÆÐST Á AÐALRÉTT MEÐ PIPARSTAUK AÐ VOPNI“ ÉG GET EKKI FARIÐ Á ÞENNAN VEITINGASTAÐ FRAMAR ÉG FÉKK „A“ Í EINKUNN! ÞETTA ER FYRSTI STAFURINN Í MILLINAFNI SKÓLASTJÓRANS ANSANS! ÉG SEM VAR SVO ÁNÆGÐUR SJÁÐU BARA! KENNARINN GAF MÉR „A“ Í EINKUNN! ÉG ER HRÆDDUR UM AÐ BÁTURINN ÞINN SÉ EKKI ALVEG TILBÚINN. ÉG ER AÐ BÍÐA EFTIR VARAHLUT. GETUR ÞÚ KOMIÐ Í NÆSTU VIKU? ÆTLI ÞAÐ EKKI HVAR ER BÁTURINN HANS? ÉG HEF EKKI SÉÐ HANN HANN SÖKK ÁÐUR EN ÉG KOMST Í AÐ GERA VIÐ HANN ÉG ER AÐ BÍÐA EFTIR KRANA TIL AÐ DRAGA HANN AFTUR UPP ÚFF ÞETTA FER ALVEG POTTÞÉTT Á YOUTUBE ÉG Á AÐ MÆTA FYRIR RÉTT Í DAG HVERNIG LÍÐUR ÞÉR? ÉG ER FREKAR ÖRUGG MEÐ MIG, EN MAÐUR VEIT ALDREI HVAÐ GETUR GERST ÉG HRINGI Í ÞIG ÞEGAR ÞETTA ER BÚIÐ ÉG SKAL TRYGGJA AÐ SÍMINN SÉ Í LAGI EF SKE KYNNI AÐ ÞÚ FÁIR BARA EITT SÍMTAL ÞÚ ÁTT ENNÞÁ VINI SEM STYÐJA ÞIG EINS OG HVERN? MARÍA LOPEZ STYÐUR ÞIG ENNÞÁ ...KÓNGULÓAR- MAÐURINN ER ENGINN GLÆPA- MAÐUR. ÉG ER VISS UM AÐ HANN HAFÐI GÓÐA ÁSTÆÐU FYRIR ÞVÍ SEM HANN GERÐI EN HÚN HELDUR LÍKA AÐ ÞESSI GERVI-KÓNGULÓARMAÐUR SÉ ÉG Þjóðarskútan í kaf ÞAÐ er víst ekki nóg að auðmenn þessa lands hafi arðrænt okkur. Þessi vinnu- sama þjóð hefur verið arðrænd frá því að ég man eftir mér, – fædd 1947. En þessir menn og konur þurfa ekki gera mér skil verka sinna, þau gera það síðar meir og öðrum öflum. En í ofanálag þarf svo að búa við stjórnvöld sem mér sýnist ætla að sigla skútunni endanlega í kaf. Þetta eru stjórnvöld sem stjórna með hótunum, og nú er ég að tala um sjávarútveginn, sem þau krefja um að koma að samningaborðinu, ella verði málefni hans sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta sýnir hversu vanmáttug þessi stjórnvöld eru. Hverjir hafa haldið þjóðinni uppi og skapað mestan gjaldeyri? Jú, sjómenn og bændur, sem reka undirstöðuatvinnuvegina. Og nú í þessari kreppu, að ætla að hrófla við sjávarútvegi, það er ekki stjórnkænska. Það má gera breytingar síðar. Menn skulu ekki gleyma að flot- inn getur siglt á önnur mið og landað í öðrum höfnum í öðrum löndum. Stjórnvöld eiga ekki skipin. Já, Ólína, Dagur B. Eggertsson, Jóhanna og Jón Bjarnason, þið ætlið kannski að sækja fiskinn, – þið viljið kannski útiveru í Barentshafi í 3 mán- uði í senn, en ef ekki, þá skuluð þið hætta að vanvirða sjómenn og bændur sem hafa og munu brauðfæða okkur enn um langa hríð. Við lifum ekki bara á nýsköpun. Takið heldur til höndum í kringum sjálf ykkur, eins og til dæmis „litlu sál- irnar“ sem þiggja sendiherralaun, en eru ekki í því starfi, og það er heldur ekki ástæða til að sendi- herrar séu á launum til æviloka. En, jú, það eru víst nokkuð margir á ríkisjötunni. Og hvernig ætlið þið að hafa það svona gott, nema sjávarútvegur, bændur og annað vinnandi fólk skaffi ykkur peninga? Steypið nú ekki undan ykkur, og í guðanna bænum, það er löngu búið að finna upp hjólið. Stefanía Jónasdóttir. Ást er… … að vona að hún beri sama hug til þín. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Karl af Laugaveginum orti:Hafðu það ekki eftir mér en ein er konan væna, sem hefur allt á hornum sér og hreytir í vinstri græna. Og enn kvað karlinn: Á Austurvelli fljótt ég fann þó færi að vora í bænum að kattafárið mæðir mann, mjálm í vinstri grænum. Á skírdag er við hæfi að rifja upp Heilræði skáldsins prestlærða Hall- gríms Péturssonar, sem eiga alltaf við: Ungum er það allra best að óttast Guð sinn herra. Þeim mun viskan veitast mest og virðing aldrei þverra. Hafðu hvorki háð né spott, hugsa um ræðu mína elska Guð, og gerðu gott. Geym vel æru þína. Foreldrum þínum þéna af dyggð. Það má gæfu veita. Varast þeim að veita styggð, viljir þú gott barn heita. Hugsa um það helst og fremst, sem heiðurinn má næra. Aldrei sá til æru kemst, sem ekkert gott vill læra. Lærður er í lyndi glaður, lof ber hann hjá þjóðum. Hinn er ei nema hálfur maður, sem hafnar siðum góðum. Oft er sá í orðum nýtur, sem iðkar menntun kæra. En þursinn heimskur þegja hlýtur, sem þrjóskast við að læra. Vertu dyggur, trúr og tryggur, tungu geymdu þína, við engan styggur né í orðum hryggur, athuga ræðu mína. Lítillátur, ljúfur og kátur, leik þér ei úr máta. Varast spjátur, hæðni, hlátur. Heimskir menn sig státa. Víst ávallt þeim vana halt: Vinna, lesa, iðja. Umfram allt þú ætíð skalt elska Guð og biðja. Sigurður Jónsson tannlæknir mætti venju samkvæmt með vísu dagsins í Sundhöllina í gærmorgun og dugar það fyllilega sem leiðrétt- ing vegna Vísnahorns þriðjudags- ins: Inni í Mogga margur fær með sitt vísnablaður; í Vísnahorni var ég í gær að vísu rangfeðraður. Vísnahorn pebl@mbl.is Af heilræðum og köttum Bridsfélag Akureyrar Nú er lokið næstsíðasta aðalmóti Bridsfélags Akureyrar sem er Hall- dórsmótið. Mótið er hraðsveitakeppni þar sem bæði er reiknað sem Board-a- Match og sem impar. Eftir frábæra frammistöðu öll kvöldin var það sveit Unu Sveins- dóttur sem fékk stærstu páskaegg- in þó að sveit Sagaplast hafi nartað í hælana með því að vinna allar við- ureignir síðasta kvöldið. Með henni voru Jón Sverrisson, Hjalti Berg- mann og Gissur Jónasson. Una Sveinsdóttir 171 Sagaplast 166 Stefán Vilhjálmsson 156 Old Boy 141 Öll úrslit á bridge.is. Næsta þriðjudag hefst Alfreðs- mótið sem er þriggja kvölda imp- atvímenningur þar sem pör eru einnig dregin saman í sveitir. Best er að láta Víði keppnisstjóra vita af þátttöku í síma 8977628. Að lokum má minna að Kjör- dæmamótið nálgast, svo áhugasöm- um er bent á að láta Frímann vita í síma 8678744 fljótlega. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 30. mars var spilað á 20 borðum. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S Oliver Kristóferss. – Magnús Oddsson 402 Ólafur Ingvars. – Sigurberg Elentínuss. 398 Örn Einarss. – Birgir Ísleifsson 379 Ragnar Björnsson – Pétur Antonsson 359 A/V Sigrún Pétursd. – Guðrún Jörgensen 415 Knútur Björnss. – Birgir Sigurðsson 409 Ásgrímur Aðalsteinss. - Stefán Ólafss. 370 Katarínus Jónsson – Haukur Guðmss. 345 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.