Morgunblaðið - 01.04.2010, Page 32
32 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2010
Tvíeykið Saga&Magga, þ.e.
danslistamennirnir Margrét
Bjarnadóttir og Saga Sigurðar-
dóttir, halda til Uppsala í næstu
viku þar sem þær munu koma
fram á árlegu tónlistar- og per-
formansfestivali, TUPP, í Borg-
arleikhúsi Uppsala. Heið-
ursgestur hátíðarinnar í ár er
bandaríska listakonan Laurie
Anderson en hún mun flytja nýtt
verk eftir sig, „Delusion“. Eftir
frumflutning á því verki, 7. apríl,
munu Margrét og Saga flytja
verk sitt „PRETTY BASSIC“,
sviðsett hljóðverk fyrir tvo flytj-
endur og tvo rafmagnsbassa, sem
þær sömdu með tónlistarmann-
inum Úlfi Hanssyni.
Saga&Magga kæla
niður eftir Anderson
Fólk
ÞRÍR nemendur á lokaári í myndlistardeild við
Listaháskóla Íslands hafa verið ávítaðir af rekt-
or skólans, Hjálmari H. Ragnarssyni, fyrir gjörn-
ing sem þeir tóku upp á myndband sem var loka-
verkefni þeirra í áfanganum „Gjörningar og
vídeólist“. Ástæða ávítunarinnar er sú að á
myndbandinu sést nakin kona í búri (einn nem-
enda) hlaupa í hlaupahjóli svipuðu því sem
hamstrar hafa oft í búrum sínum, en jakkafata-
klæddir menn standa fyrir utan búrið og hrópa
að henni svívirðingar. Alexander Douglas Guð-
mundsson, einn myndlistarnemanna þriggja,
segir að með verkinu hafi hópurinn viljað benda
á kúgun og niðurlægingu kvenna frá örófi alda.
„Erum við karlmenn ekki svín, viljum við ekki
helst hafa konur lokaðar inni í búrum, að þær
dansi súludans fyrir okkur?“ sagði Alexander í
samtali við blaðamann í gær. Þessu yrði að
breyta. „Þetta er hápólitískt verk, póstmódern-
ísk en jafnframt existensíalísk ádeila á klisju-
kenndar birtingarmyndir karlmennsku og kven-
leika, sýnir hvernig femínismanum er nauðgað á
tímum McDonald’s og sojalatte í götumáli.“
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor LHÍ, vildi sem
minnst segja um ástæður þess að nemendurnir
voru ávítaðir fyrir verkið, en vildi þó að fram
kæmi að skólinn liði ekki slíka niðurlægingu á
konum og kvenlíkamanum. „Þetta er einfaldlega
of langt gengið,“ segir Hjálmar. Myndbandið var
sett á YouTube í gær en fjarlægt af stjórnendum
síðunnar klukkustund síðar. Það má hins vegar
sjá á eftirfarandi vefslóð: mbl.is/myndband.
Nakin kona í búri veldur uppnámi
Öskur Úr myndbandi nemendanna.
Hljómsveitakeppnin Þorska-
stríðið 2010 er hafin og er nú
haldin í þriðja skipti. Árið 2008
sendu rúmlega 100 hljómsveitir
lög til keppni og í fyrra voru þær
135. Í ár verður eingöngu tekið
við lögum með íslenskum texta og
er það gert til að hvetja hljóm-
sveitir sem syngja á ensku til að
prófa sig áfram á íslensku. Hljóm-
sveitir þurfa að senda inn minnst
tvö lög en í mesta lagi fjögur lög.
Verðlaunin eru ekki af verri end-
anum, stúdíótímar til að fullklára
þrjú lög sem Þorskur (Cod Music)
mun sjá um að markaðssetja, árs-
birgðir af þorskalýsi og flugferð
fyrir sigurbandið til Færeyja þar
sem það mun koma fram á G festi-
val, 15.-17. júlí. Opið verður fyrir
innsendingar á lögum til 24. apríl
og verður sigurvegarinn kynntur í
beinni á Rás 2 föstudaginn 30.
apríl. Þeir sem hafa hug á þátt-
töku kíki á thorskur.is.
Aðeins lög á íslensku í
Þorskastríðinu í ár
Rekstri Café Cultura við Hverf-
isgötu hefur verið hætt og skv.
heimildum blaðsins er óljóst hvern-
ig framtíðarskipan verður þar á
bæ. Djassklúbburinn Múlinn heldur
tónleika þar í kvöld en óljóst er
hvort framhald verður á tónleikum
klúbbsins í kjallara Café Cultura.
Múlinn er samstarfsverkefni FÍH
og Jazzvakningar og heitir í höf-
uðið á Jóni Múla Árnasyni.
Í fyrrasumar voru gerðar end-
urbætur á kjallaranum þannig að
mun rýmra varð um gesti en ná-
lægð engu að síður mikil við tónlist-
arflytjendur, alvöru djassklúbbs-
stemning.
Í kvöld verður leikin tónlist alt-
saxófónleikarans Charlie Parker í
tilefni af því að hann hefði orðið ní-
ræður á árinu.
Rekstri Café Cultura
hætt og Múlinn í óvissu
Eftir Matthías Árna Ingimarsson
matthiasarni@mbl.is
ÞAÐ verður af nægu að taka á Ísa-
firði þessa páskana líkt og und-
anfarin ár. Ekki
nóg með að skíða-
vikan sé í fullu
fjöri heldur fyllist
bærinn af tónlist-
arfólki og -unn-
endum nú um
helgina, þegar
tónlistarhátíðin
Aldrei fór ég suð-
ur fer fram.
Blaðamaður náði í
skottið á Krist-
jáni Frey Halldóssyni, einum af
skipuleggjendum hátíðarinnar, þar
sem hann þeyttist um Ísarfjarðarbæ
og hengdi upp plaköt ásamt Mugison
til að minna á hátíðarhöldin og spurði
hverng gengið hefði að skipuleggja
hátíðina í ár og við hverju gestir
mættu búast.
„Þetta hefur verið erfið og löng
fæðing og það heyrðust sögusagnir
um að ekki yrði af hátíðinni í ár“ seg-
ir Kristján. Litlu munaði að hátíðin í
ár yrði blásin af sökum þess að ekki
var á lausu húsnæði fyrir tónleika-
haldið. Biluð, stórvirk vinnuvél sem
vantaði varahluti í var að stríða
skipuleggjendum að sögn Kristjáns
en KNH vertakar gerðust svo al-
mennilegir að lána húsnæði sitt aftur
þetta árið, þannig að vélinni hefur
verið ýtt út í horn og fortjaldi slegið
upp fyrir framan húsið svo allir kom-
ist nú örugglega inn. „Heimamenn
eru allir í svo góðu stuði fyrir hátíð-
ina og erum við því KNH afar þakk-
látir fyrir að hafa reddað þessu.“
Tónlist fyrir alla
Á heimasíðu hátíðarinnar segir að
húsið hafi verið stuðmælt og mælst
1.200 Travolt sem sé vel yfir því stuð-
marki sem hátíðin krefst.
Líkt og undanfarin ár mun dag-
skrá hátíðarinnar höfða til allra ald-
urshópa og ættu allir að geta fundið
tónlist við sitt hæfi enda breiddin
mikil. Má segja að á hátíðinni megi
finna sneiðmynd af íslensku tónlist-
arlífi því í ár troða upp tónlistarmenn
á borð við Rúnar Þór, Ólöfu Arnalds
og Sigríði Thorlacius í bland við
hljómsveitir eins og Hudson Wayne,
Diktu, Geirfuglana og Bróður Svart-
úlfs. Búist er við mun fleiri gestum í
ár en hin fyrri ár. Gistirými á Ísafirði
er fullbókað og leita gestir því til ná-
lægra bæjarfélaga, en Kristján hefur
heyrt af því að gestir séu komnir með
með gistingu allt til Þingeyrar og
annarra staða í Dýrafirðinum. „Fólk
verður bara að ákveða um áramótin
hvort það ætlar að koma eða ekki því
íbúafjöldi bæjarins tvölfaldast í
skíðavikunni og það sama má segja
um Aldrei fór ég suður.“
Lyftistöng fyrir tónlistarlífið
Kristján segir hátíðina hafa verið
mikla lyftistöng fyrir tónlistarlífið í
bænum, þá sér í lagi hjá yngri kyn-
slóðinni. Gott dæmi um það er rapp-
arinn Trausti Már Ísaksen, öðru
nafni MC Isaksen, sem kemur fram á
hátíðinni í ár. Trausti Már er nýflutt-
ur frá Ísafirði og aðeins 10 ára gam-
all. Það er ekki algengt að svo ungir
rapparar komi fram á stórri tónlist-
arhátíð. „Við stuðlum að mjög góðu
tónlistaruppeldi fyrir krakkana
hérna fyrir vestan. Það er ekkert
sjálfgefið að hingað komi rjómi ís-
lensku tónlistarsenunnar og spili.
Þetta gerir það að verkum að hér
sprettur upp tónlistarfólk, þannig við
þurfum engu að kvíða hérna fyrir
vestan hvað varðar tónlistina.“
Samhliða hátíðinni verður svo
haldin lítil tónlisarbransaráðstefna
þar sem tónlistarfólk kemur saman
og ræðir málin, um allt frá STEF-
gjöldum til markaðssetningar á tón-
list á netinu.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Gulir hanskar Dr. Spock að gera það sem þeir gera best á Aldrei fór ég suður á síðasta ári, að trylla lýðinn með polkarokki eins og þeim einum er lagið.
1.200 Travolta stuð
Gestir byrja að bóka gistingu um áramótin fyrir tónlistarhátíðina Aldrei fór
ég suður Litlu munaði að hátíðin yrði blásin af í ár, að sögn skipuleggjanda
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Aldrei fór ég suður fer fram um helgina. Fram
koma Ólöf Arnalds, Bloodgroup, Urmull, Dikta, Hjaltalín, Bróðir Svartúlfs,
Lára Rúnars, Pollapönk, Mið-Ísland, Lay Low, Sigríður Thorlacius, Morð-
ingjarnir, Hudson Wayne, Sólinn frá Sandgerði, Rúnar Þór, Geirfuglarnir,
Ingó og Veðurguðirnir, Biggibix, Orphic Oxtra, Skúli hinn mennski,
Stjörnuryk, MC Isaksen, Klikkhausarnir, Hjálmar, Rúnar Þóris, Mugison,
Yxna, Tom Hannay, Ugly Alex, Jitney, Korter í þrjú, Biogen, Drengjakór-
inn Konráð, Sesar A, BlazRoca og DJ Kocoon, Nine Elevens, Óminn-
ishegrar og Baunirnar. Auk þess munu Reykjavik!, Morðingjarnir og Mið-
Ísland verða með skemmtun á Krúsinni á skírdag. Fyrir þá sem ekki kom-
ast vestur í ár verður hægt að fylgjast með hátíðinni á www.aldrei.is
Morgunblaðið/ Halldór Sveinbjörnsson
Aldrei 2008 Fullt út úr skemmu á tónleikum með Mugison.
Veislan hefst annað kvöld
Kristján Freyr
Halldórsson