Morgunblaðið - 01.04.2010, Síða 40

Morgunblaðið - 01.04.2010, Síða 40
FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 91. DAGUR ÁRSINS 2010 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 1. Svíi dó þegar hann féll ofan í … 2. Fólki vísað af Bröttufönn 3. Ótrúleg uppákoma í Króatíu 4. Öruggur sigur Íslands í Króatíu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm verður með tvenna tónleika um páskana. Þeir fyrri verða á Ak- ureyri í kvöld en þeir síðari í Reykja- vík á laugardaginn. Er þetta til að kynna nýja plötu, Retaliate, en Benni spilar sjaldan á Íslandi þar eð hann er búsettur í Skotlandi. Benni Hemm Hemm með tvenna tónleika  „Þetta er ein- faldlega of langt gengið,“ segir Hjálmar H. Ragn- arsson, rektor Listaháskóla Ís- lands, um loka- verkefni þriggja myndlistarnema í áfanganum „Gjörningar og vídeólist“ en í því sést nakin kona í búri hlaupa í hlaupahjóli á meðan jakkafataklæddir menn hrópa að henni svívirðingar. »32 „Einfaldlega of langt gengið,“ segir rektor  Leikfélagið Aurora í Berkley, Kali- forníu, kynnir með stolti á vefsíðu sinni að það verði fyrst bandarískra leikfélaga til að setja upp leikgerð Gísla Arnar Garðarssonar og breska leikstjórans David Farr á Hamskiptum Kafka. Er leikgerðinni lýst sem æsilegri og utangarðs en leikstjórn vestra verður í hönd- um Mark Jackson. Hefj- ast sýningar í ágúst. Hamskipti Vestur- ports til Kaliforníu SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 5-13 m/s og dálítil él N-lands, en léttskýjað syðra. Frost 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum N-lands. Sums staðar frostlaust S-lands yfir hádaginn. VEÐUR Íslensku landsliðskonunum í knattspyrnu tókst ekki það ætlunarverk sitt að vinna stórsigur á Króötum í undankeppni HM í gær. Þær sigruðu þó 3:0 og snúa heim úr ferðinni til Serbíu og Króatíu með sex stig og sex mörk skoruð, gegn engu. „Við vildum að sjálf- sögðu vinna með meiri mun en ég er ánægður með sig- urinn,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson. »4-5 Sóttu sex stig á Balkanskagann Guðjón Valur Sigurðsson, lands- liðsmaður í handknattleik og fyrirliði þýska 1. deildar liðsins Rhein-Neckar Löwen, stefnir á endurkomu í lok þessa mánaðar en hann gekkst undir aðgerð á hné í Þýskalandi hinn 11. febr- úar. „Ég gæti náð síðustu leikj- unum í deildinni og verið með í átta liða úrslitum Meistaradeild- arinnar ef við kom- ust þang- að,“ sagði Guðjón. »1 Guðjón stefnir á end- urkomu í lok apríl Haukar biðu lægri hlut fyrir HK í 19. umferð úrvalsdeildar karla í hand- knattleik í gærkvöld. Þeir fréttu hins vegar í hálfleik að þeir væru búnir að vinna deildina þar sem Akureyri hafði þá tapað leik sínum gegn Val. Grótta vann Stjörnuna í miklum fallslag á Seltjarnarnesi og FH sigraði Framara í Safamýrinni. Allt um leikina í gær- kvöld. »2-3 Haukar unnu deildina þrátt fyrir tap gegn HK ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is KATTAVINAFÉLAGIÐ og Katta- ræktarfélag Íslands, Kynjakettir, efna í dag til fjölskylduskemmtunar í sýningaraðstöðu síðarnefnda félags- ins í Miðhrauni 2 í Hafnarfirði, þar sem áður var verslunin Just 4 Kids. Þar verður keppt í kattasmölun og fyrst til að ríða á vaðið verða tveir þingmenn Vinstri grænna; þau Ög- mundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, sem til þessa hafa til- heyrt „órólegu deildinni“ innan VG. Kattholt mun leggja til ketti í smölunina en svæði á sýningargólf- inu verður girt af fyrir keppnina. Þeir sem ná að smala köttunum inn í afmarkað hólf á skemmstum tíma fara með sigur af hólmi. Vegleg verðlaun verða í boði fyrir þrjú efstu sætin. Aðgangur að skemmtuninni er ókeypis en hins vegar geta áhorf- endur heitið á keppendur og mun all- ur ágóði renna óskiptur til starfsem- innar í Kattholti. Styrkja gott málefni Að sögn Sigríðar Heiðberg, for- manns Kattavinafélagsins, og Mar- teins Tausen, formanns Kynjakatta, var megintilefni þessarar skemmt- unar þau ummæli Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra um síð- ustu helgi að það að smala saman meirihluta á Alþingi væri eins og að smala köttum. „Við teljum að það sé vel hægt að smala köttum saman og sjálfsagt að gefa fólki færi á því, um leið og það getur styrkt gott málefni í leiðinni,“ sagði Sigríður við Morgunblaðið er hún gaf þingmönnunum, sem ætla að hefja leikinn í dag, góð ráð við smöl- unina í Kattholti í gær. Þar sem þau byrja keppnina fannst Sigríði rétt að þau fengju smáforskot, til að kynn- ast köttunum betur sem á að smala í dag. Ögmundur og Guðfríður Lilja sögðust sammála Sigríði um að vel væri hægt að smala köttum saman, ekki síst ef vel væri farið að þeim. „Svo er þetta líka ágætt tækifæri til að styrkja það góða starf sem fer fram hér í Kattholti,“ sagði Ög- mundur og undir það tók Guðfríður Lilja, sem mætti með ungan son sinn, Harald Áss, og sýndi hann líka efnilega takta við smölunina. Kattasmölunin hefst kl. 11 í dag og fer sem fyrr segir hún fram í Mið- hrauni 2 í Garðabæ, við hliðina á versluninni Dýraríkinu. Aðgangur er ókeypis á meðan húsrúm leyfir en Kynjakettir hafa síðustu árin verið þar með kattasýningar. Þykir hús- næðið því afar hentugt fyrir keppn- ina. „Vel hægt að smala köttum“ Efnt til keppni í kattasmölun í Garðabæ í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Kattasmölun Ögmundur Jónasson með köttinn Mosa í fanginu í Kattholti í gær en Rósa vildi frekar vera hjá Sigríði Heiðberg en hjá mæðginunum Guðfríði Lilju og Haraldi Áss Liljusyni sem þó sýndi efnilega takta með aðra ketti. www.mbl.is/sjonvarp Keppa í kattasmölun í dag Formaður Kynjakatta, Marteinn Tausen, telur að íslenski hús- kötturinn sé hentugastur til smölunar og undir það tekur Sigríður í Kattholti, húskötturinn sé almennt hlýðnari en ræktaðir kettir. Enda ætlar Sigríður fyrst og fremst að mæta með hús- ketti til keppninnar í dag. Af nógu er að taka þar sem að- sóknin í Kattholt hefur verið mikil í vetur. Húskötturinn hefur fylgt mannskepnunni frá örófi alda. Þó að kettir séu í eðli sínu rán- dýr, og veiði sér til matar, eru þeir vinsælustu gæludýrin hér á landi sem annars staðar. Talið er að kettir á Íslandi skipti tug- þúsundum en katta- rækt hefur einnig vaxið fiskur um hrygg. Fyrir áhugasama um kattasmölun má benda á vef Kattholts en þar má m.a. sjá myndband er sýnir bandaríska kattahirða að smala stærð- arinnar hjörð. TENGLAR ... . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . www.kattholt.is Íslenski húskötturinn hentugastur í smölun Á föstudag (föstudagurinn langi) Norðvestlæg átt, 8-15 m/s, hvassast V-lands. Snjó- koma eða él V- og N-lands, en annars bjart veður. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst. Á laugardag Norðvestlæg átt, 13-18 m/s á annesjum NV-lands, en annars víða 5-13. Snjókoma á N-landi, en annars úrkomulítið og víða bjart S- og A-lands. Hiti breytist lítið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.