Morgunblaðið - 18.05.2010, Page 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2010
✝ Ólafur Guð-björnsson fæddist
í Reykjavík 19. ágúst
1925. Hann lést á St.
Jósefsspítala í Hafn-
arfirði 2. maí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Guðbjörn
Ásmundsson frá
Sveinskoti á Álfta-
nesi, f. 27. júní 1893,
d. 19. júlí 1966, og
Kristbjörg Jónsdóttir
sem fædd var á
Krókshúsum á
Rauðasandi 11. jan-
úar 1898, d. 7. mars 1977. Systkini
Ólafs voru Ragnar Hafsteinn, f.
1917, d. 2008, Jón Ágúst, f. 1923, d.
2000, Ásmundur, f. 1926, Sigríður,
f. 1927, d. 2009, Ingibjörg, f. 1929,
d. 2008, og Guðmundur Vestmann,
f. 1938.
Ólafur kvæntist árið 1955 Gyðu
Einarsdóttur sem fæddist í Reykja-
vík 21. nóvember 1928. Hún lést
15. september 2006. Foreldrar
hennar voru Einar Einarsson,
málarameistari og kaupmaður á
Vegamótum á Seltjarnarnesi, f
1892, d. 1945, og Anna Pálína
Loftsdóttir, húsmóðir, f. 1900, d.
2000.
Börn Gyðu og Ólafs eru: Guð-
björn Steinþór, sjómaður, f. 1956,
Anna Elísabet, lögreglumaður og
þroskaþjálfi, f. 1958, gift Kristjáni
Sigurmundssyni, forstöðumanni,
börn þeirra eru Ólafur Halldór, f.
1977, og Edda, f. 1995, og eiga þau
eitt barnabarn. Ólafur Rúnar, kjöt-
iðnaðarmeistari, f. 1961, kvæntur
Oddnýju Kristinsdóttur, húsmóður,
börn þeirra eru Alma Rún, f. 1982,
Eva Dögg, f. 1984, og Gyða Björk,
f. 1993, og eiga þau þrjú barna-
börn. Helgi Þór, matreiðslumeist-
ari, f. 1962, kvæntur Ingibjörgu
Jóhannesdóttur hárgreiðslumeist-
ara, börn þeirra eru
Jón Axel, f. 1993, og
Andri Geir, f. 1995.
Sonur Ólafs frá fyrri
sambúð er Jóhann
Valgarð, bókbindari,
f. 1948, hann var
kvæntur Ragnheiði
Ólöfu Pálsdóttur, d.
2007, fósturbörn
hans eru fimm. Móðir
Jóhanns var Jóna V.
Hansen, f. 1925, d.
1996. Sonur Gyðu er
Einar Örn Krist-
insson, bankastarfs-
maður, f. 1949, kvæntur Áslaugu
Stefánsdóttur, lífeindafræðingi,
börn þeirra eru Anna Margrét, f.
1975, og Kolbrún, f. 1990, og eiga
þau þrjú barnabörn.
Ólafur ólst upp í Reykjavík og
bjó þar fram til ársins 1960. Um
áratugaskeið bjuggu Ólafur og
Gyða á Akureyri. Eftir það fluttu
þau á Seltjarnarnes og síðustu
þrjátíu árin bjuggu þau í Hafn-
arfirði. Ólafur bjó þar síðustu ævi-
ár sín eftir að Gyða féll frá.
Ólafur hóf störf á veitingahúsum
sem ungur maður og lauk sveins-
prófi árið 1946. Fékk síðan réttindi
sem framreiðslumeistari árið 1951.
Starfði hann við ýmis framreiðslu-
störf til ársins 1974. Vann lengi vel
á Hótel Borg og einnig til margra
ára í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri.
Á stríðsárunum var hann í sigl-
ingum á millilandaskipum. Á tím-
um strandferðaskipanna unnu
bæði Ólafur og Gyða til sjós, hann
sem þjónn og hún sem þerna, en
það var einmitt um borð í Esjunni
sem þau kynntust fyrst. Um tutt-
ugu ára skeið starfaði Ólafur í ál-
verinu í Straumsvík við ýmis störf.
Útför Ólafs fer fram frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í dag, 18.
maí 2010, og hefst athöfnin kl. 15.
Farinn ertu Óli minn
eilífðar til sólarlanda
vinskap nú við þökkum þinn,
þú varst alltaf nærgætinn
hvers manns leysa vildir vanda.
Gyða kæra konan þín
kærleiksrík og sposk á stundum
glæddi allra sálarsýn
sönn og mikið fyrir grín,
í henni við fjársjóð fundum.
Loks þið hafið landi náð
lifið upp hin gömlu kynni,
Lausnarinn í lengd og bráð
leiði ykkur af sinni náð
endalaust í eilífðinni.
(Bj.Þ.)
Með þessum ljóðlínum kveðjum
við kæran vin með þakklæti og
virðingu og biðjum honum góðrar
heimkomu.
Aðstandendum vottum við inni-
lega samúð.
Minning Óla og Gyðu lifir í
hjörtum okkar.
Kristín og Rúnar.
En ástin er björt sem barnsins trú,
hún blikar í ljóssins geimi,
og fjarlægð og nálægð, fyrr og nú,
oss finnst þar í eining streymi.
Frá heli til lífs hún byggir brú
og bindur oss öðrum heimi.
Þegar ég minnist tengdaföður
míns, Ólafs Guðbjörnssonar, finnst
mér vel við hæfi að vísa í þetta er-
indi úr sálmi Einars Benediktsson-
ar „Hvað bindur vorn hug við
heimsins glaum“. Ást Óla til
manna og dýra var barnslega ein-
læg og hann lifði fyrir líðandi
stund.
Ég kynntist Óla þegar við Anna
Lísa, einkadóttir hans, bundust
heitböndum í byrjun níunda ára-
tugarins. Allar götur síðan hefur
engan skugga borið á okkar sam-
ferð. Ólafur var ákaflega fé-
lagslyndur maður og gæddur
leiftrandi frásagnargleði. Þá var
hann annálað snyrtimenni og hafði
yndi af því að klæða sig upp. Hann
ljómaði þegar hann sýndi manni
hvað hann hafði gert góð kaup á
buxum og stökum jökkum á ein-
hverri útsölunni, engu skipti þótt
hann ætti mörg pör fyrir í fata-
skápnum.
Óli var lærður framreiðslumeist-
ari og hafði yndi af að þjóna öðrum
af kurteisi og umburðarlyndi. Það
einkenndi öll hans hlutverk í lífinu,
hvort sem um var að ræða fag-
manninn, föðurinn, afann eða eig-
inmanninn, hann var þjónn fram í
fingurgóma. Hann elskaði börnin
sín og barnabörnin áttu, hvert og
eitt, sinn stað hjá afa sínum. En
mest áberandi var ást hans til
Gyðu, eiginkonu sinnar. Hann bar
hana alla tíð á höndum sér og ást
hans til hennar náði út fyrir gröf
og dauða. Óli syrgði Gyðu sína
ákaflega og heiðraði minningu
hennar með blómum, bænum og
kertaljósum hvern einasta dag eft-
ir lát hennar í september 2006. Nú
hefur ástin byggt brú milli lífs og
dauða og Gyða og Óli saman komin
í öðrum heimi. Blessuð sé minning
þeirra beggja.
Kristján Sigurmundsson.
Kær vinur okkar, hann Óli henn-
ar Gyðu, eins og við nefndum hann,
er dáinn. Margt kemur upp í huga
manns, þegar litið er til liðinna ára.
Oft fórum við með þeim hjónum í
útilegur og sumarbústaðaferðir, þá
var alltaf glatt á hjalla. Óli kom öll-
um í gott skap með sinni léttu
lund. Hann vinur okkar var þjónn
af guðs náð, enda lærði hann til
þjóns. Nú er hann Óli kominn til
hennar Gyðu sinnar, sem honum
þótti svo vænt um.
Blessuð sé minning um góðan
dreng. Innilegar samúðarkveðjur.
Helga Valgerður
(Vala) og Pétur.
Ólafur Guðbjörnssonsem með sinni hrjúfu, sterku oghlýju framkomu lét ávallt skoðanir
sínar skýrt í ljós.
Eitt var Gísli búinn að biðja mig
um áður en hann lést sem ég var
byrjuð á en á eftir að fullvinna og
það var að mála myndir frá okkar
heillastað – Heiðardal. Síðastliðið
sumar sat ég úti og horfði yfir
þennan fallegasta stað á jarðríki.
Ég velti fyrir mér hvernig ég gæti
fangað þetta einstaka umhverfi í
myndum sem ég málaði og minntist
um leið þess tíma sem við áttum
þarna fjölskyldurnar tvær. Við út-
komu myndanna var ég ekki sátt
og held áfram að reyna, en minn-
ingarnar var ég mjög sátt við. Því-
lík gjöf Heiðardalsárin voru og for-
réttindi sem við fengum fyrir
tilstilli Gísla og föður míns. Hve
lánsöm við afkomendur þeirra er-
um að hafa fengið að alast upp með
og kynnast slíkum heiðursmönn-
um. Fyrir það verður aldrei nægi-
lega þakkað. Þeir voru einstakir
menn, einstakir vinir og þeirra er
og verður sárt saknað.
Valgerður Hauksdóttir.
rekstri og vildi fremur styðjast við
eldri gildi eins og hann hafði lært hjá
föður sínum og afa. Skúli myndaði
sterk tengsl við sína viðskiptamenn
og birgja. Hann var virtur hjá Polaris
fyrir þátttöku sína í prófunum á nýj-
um módelum og kom með ýmsar til-
lögur til úrbóta, m.a. fyrir nýjan drif-
búnað á sexhjól, sem er nú
staðalbúnaður á öllum slíkum Polaris-
hjólum.
Kynni okkar Skúla urðu náin á ár-
unum 14 sem við vorum samstarfs-
menn og svo aftur, þegar örlögin hög-
uðu því svo að við urðum sameigendur
að Bræðrunum Ormsson í október
2008 eftir að félagið skipti aftur um
eigendur. Skúli varð þá stærsti hlut-
hafinn, en með okkur var Einar Þór
Magnússon, sem starfaði við fyrir-
tækið frá 2003. Það var ekki erfitt að
velja hópinn. Skúli var þar fyrstur – í
raun sjálfkjörinn.
Skúli sagði stundum að hann væri
ekki mikill pappírsmaður, en hann
gæti selt. Með tímanum varð Skúli vel
læs á rekstrar- og efnahagsreikninga
og þær stærðir í rekstri, sem mestu
máli skipta, þegar dæmi þarf að
ganga upp.
Skúla verður best lýst sem ljúflingi
og hreinskilnum manni, sem vildi
allra götu greiða. Einlægni, kappsemi
og vinnusemi eru orð, sem lýsa við-
horfi hans og vinnulagi. Tiltrú á verk-
efnin var mikilvæg og kraftarnir voru
aldrei sparaðir. Hann var vinur vina
sinna og vinmargur. Einstök hæfni
hans til að ná góðu sambandi við er-
lenda viðskiptamenn lýsir honum vel.
Hreinn og beinn, með íslenska gest-
risni og Ísland á matseðlinum. Mat-
arboð heima eða sleðaferð kunnu allir
að meta.
Við Halla sendum fjölskyldunni,
Bergrósu, Ásdísi, Ingibjörgu, Gumma
og Karli, okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Megi orðspor góðs drengs
lifa með ykkur um langa framtíð.
Andrés B. Sigurðsson,
Hallgunnur Skaptason.
Ég kynntist Skúla fyrir rúmum 10
árum þegar ég og Ásdís urðum góðar
vinkonur. Skúli var hávaxinn og
stundum grimmur á svipinn sem
gerði það að verkum að við vinkonur
Ásdísar vorum til að byrja með svolít-
ið hræddar við hann. Það leið hins
vegar ekki á löngu þar til ég kynntist
þessum góða og trausta manni og þá
var hræðslan fljótlega úr sögunni.
Skúli féll frá of snemma og án neins
fyrirvara en margar minningar sitja
eftir, meðal annars óteljandi mörg
matarboð í Bugðutanganum, veislur,
ferðir, hversdagslegt spjall og heim-
sóknir í sveitina hjá fjölskyldunni,
Stíflisdal, þar sem Skúli undi sér vel.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Megi minningin um góðan mann
lifa í huga okkar allra.
Anna Sigga Lúðvíksdóttir.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
andaðist þriðjudaginn 11. maí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn
19. maí kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalar-
heimilið Höfða.
Guðríður Halldóra Halldórsdóttir,
Haukur Halldórsson, Hrafnhildur Hannibalsdóttir,
Magnús Davíð Ingólfsson
og ömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
DÓRA SKÚLADÓTTIR,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn
15. maí.
Útför hinnar látnu fer fram frá Seljakirkju mánu-
daginn 31. maí kl. 13.00.
Jón B. Sveinsson,
Sveinn Ragnar Jónsson, Elín B. Haraldsdóttir,
Rakel Jónsdóttir, Birkir Leósson,
Ólöf Rut Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GARÐAR ÓLI ARNKELSSON,
Gullsmára 9,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 14. maí.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
21. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Axelína María Garðarsdóttir, Gunnar Böðvarsson,
Kristrún Lilja Garðarsdóttir, Viðar Sigurðsson,
Erla Björk Garðarsdóttir, Kristinn Steingrímsson,
Arna Kristín Garðarsdóttir, Gunnar Stefánsson,
Garðar Már Garðarsson, Linda Ingólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug vegna
fráfalls systur okkar og frænku,
EYDÍSAR EYÞÓRSDÓTTUR.
Guðmundur Pétursson,
Ingibjörg Eyþórsdóttir,
Sigríður Eyþórsdóttir,
Þórður Eyþórsson,
Guðríður Lillý Guðbjörnsdóttir
og systkinabörn.
✝
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
INGUNN ÁRNADÓTTIR
kennari,
til heimilis
Aflagranda 40,
lést þriðjudaginn 11. maí.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn
25. maí kl. 13.00.
Gunnvör Sverrisdóttir, Grétar Sigurgeirsson,
Sigurbjörg Sverrisdóttir, Árni Baldursson,
Arndís Inga Sverrisdóttir, Jóhannes Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabarn.