Morgunblaðið - 18.05.2010, Qupperneq 25
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Rf3 c5
5. g3 d5 6. cxd5 Rxd5 7. Bd2 Rc6 8. e4
Rf6 9. e5 Rd7 10. a3 Ba5 11. dxc5
Rdxe5 12. Rxe5 Rxe5 13. b4 Bc7 14.
Rb5 Bd7 15. Be2 Rf3+ 16. Bxf3 Bxb5
17. Bc3 Dg5 18. a4 Hd8 19. Dc1 Df5 20.
Bxb7 Bd3 21. De3 0-0 22. Bf3 Bc2 23.
Be2 Dh3 24. b5 e5 25. a5 e4 26. b6 Dg2
27. Hf1 Bb8 28. c6 Hd3 29. Bxd3 Bxd3
30. 0-0-0 Bxf1 31. Dg5 f6
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti í
Sarajevo. Íslenski stórmeistarinn
Hannes Hlífar Stefánsson (2.588) hafði
hvítt gegn króatíska kollega sínum
Ante Saric (2.488). 32. Bxf6! Hxf6 33.
Hd8+ Kf7 34. Hd7+ Ke8 35. Dc5! Bd6
36. c7! Kxd7 37. c8=D+ Ke7 38. Db7+
og svartur gafst upp. Hannes lenti í 24.
sæti með 18 stig af 30 mögulegum en
þrjú stig voru gefin fyrir sigur og eitt
fyrir jafntefli. Frammistaða hans sam-
varaði stigaárangri upp á 2.558.
Hvítur á leik.
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2010
Sudoku
Frumstig
5 9 8
8 2 4
7 5 9 6
4 6 1 2
5 4
9 8 2
7 1 9
2 8 5
4 7 8 9
5 3
1 3 5 6
6 9 3
8
1 9 7 3
8 9
4 7
9 7 3 6
4
4 1 9
6 1
5 9
7 9 6 2 1
3 5 2 7
5 4
5 3
7 4 9
1 6 3 7 9 5 8 4 2
8 2 7 1 6 4 9 3 5
9 4 5 2 8 3 7 1 6
3 9 2 4 5 6 1 8 7
6 8 4 3 7 1 5 2 9
5 7 1 9 2 8 4 6 3
7 5 8 6 4 2 3 9 1
4 1 6 5 3 9 2 7 8
2 3 9 8 1 7 6 5 4
3 9 2 8 4 6 1 7 5
4 6 8 7 5 1 3 2 9
5 1 7 2 9 3 8 6 4
1 5 9 4 3 7 6 8 2
7 2 4 5 6 8 9 3 1
8 3 6 9 1 2 5 4 7
2 7 3 1 8 9 4 5 6
6 4 1 3 2 5 7 9 8
9 8 5 6 7 4 2 1 3
9 7 3 4 2 6 5 1 8
2 1 8 3 5 9 6 7 4
5 4 6 8 1 7 2 3 9
3 5 1 2 9 4 7 8 6
6 9 4 1 7 8 3 2 5
8 2 7 6 3 5 4 9 1
4 6 9 7 8 3 1 5 2
1 3 5 9 4 2 8 6 7
7 8 2 5 6 1 9 4 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 18. maí, 138. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Kreppa hvað? hugsaði Víkverjimeð sér er hann varð ásamt
fjölskyldu sinni að hverfa frá nýja
veitingastað Simma og Jóa, Ham-
borgarafabrikkunni, sökum mann-
mergðar – í þriðja skiptið á skömm-
um tíma. Eitt sinnið var biðin eftir
borði sögð allt að tveir tímar. Fjöldi
fólks hefur greinilega látið sig hafa
það að bíða en stór biðsalur er við
hliðina á veitingastaðnum. Aðrir
sambærilegir staðir í nágrenninu
virðast þó ekki tapa mikið á sam-
keppninni frá þeim félögum því Vík-
verji skundaði með sitt lið á Ruby
Tuesday, eftir að hafa komið að Fa-
brikkunni fullri. Í kjölfarið fylgdi
slatti af fólki sömu leið.
Kannski er eitthvert nýjabrum á
þessu hjá Simma og Jóa en miðað
við undirtektirnar hefðu þeir getað
opnað helmingi stærri stað og stút-
fyllt hann kvöld eftir kvöld.
x x x
Ekki má skilja skrif Víkverja svoað hann sé dögum saman úti að
borða, með úttroðið peningaveski og
nenni ekki að elda. Þannig er það nú
aldeilis ekki, en aðstæður hafa þó
verið þannig undanfarnar vikur að
óvenjumörg tilefni hafa gefist til að
fara á veitingastað og gleðjast á
góðri stund. Síðastliðið föstudags-
kvöld voru tímamót í lífi unglingsins
á heimilinu og hann fékk að velja sér
stað til að borða á. Hann lagði ekki í
Hamborgarafabrikkuna í fjórða
sinnið og varð Eldsmiðjan fyrir val-
inu. Fyrst var farið á Suðurlands-
braut, þar var fullt út að dyrum og
klukkutíma bið. Þaðan var farið á
Laugaveg og sá staður var þéttset-
inn. Ákveðið var að prófa upp-
haflegu Eldsmiðjuna við Bragagötu
og þar var loksins hægt að fá borð.
Ekki eru þetta vísindalegar kann-
anir, eða dýrir veitingastaðir, en
gefa Víkverja vísbendingu um að
fólk leyfir sér nú ýmislegt þrátt fyrir
kreppuna. Kannski er kreppa bara
ekki rétta orðið yfir ástandið. Bak-
slag eða lægð? Nei, það hljómar eitt-
hvað svo skringilega. Höldum okkur
við kreppuna og eyðum þeim litla
pening sem eftir er! Hjól atvinnulífs-
ins stöðvast þá ekki á meðan.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 auðmenn, 8
samtala, 9 gyðja, 10 dý,
11 krús, 13 róin, 15 ann-
álað, 18 dreng, 21 tryllt,
22 skokk, 23 sundfugl-
inn, 24 máttarstólpa.
Lóðrétt | 2 ger, 3 jarða,
4 duglegur, 5 fram-
leiðsluvara, 6 saklaus, 7
lögun, 12 aðferð
14 kyn, 15 ílát, 16 lát-
bragðinu, 17 himingeim-
urinn, 18 litlir, 19
hnykks, 20 þekkt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 strók, 4 flekk, 7 pípar, 8 lyfin, 9 lem, 11 röng,
13 æður, 14 æskir, 15 hrós, 17 alda, 20 ára, 22 leynt, 23
umbun, 24 sytra, 25 staur.
Lóðrétt: 1 sýpur, 2 ræpan, 3 kurl, 4 fálm, 5 erfið, 6 kon-
ur, 10 eykur, 12 gæs, 13 æra, 15 hólks, 16 ólyst, 18
labba, 19 annar, 20 átta, 21 aurs.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur S. Hermannsson | ritstjorn@mbl.is
Passið upp á trompið
Norður
♠7542
♥543
♦ÁK65
♣74
Vestur Austur
♠ÁKG106 ♠D983
♥7 ♥10982
♦G7 ♦D10942
♣108653 ♣–
Suður
♠–
♥AKDG6
♦83
♣ÁKDG92
Suður spilar 6♥. Vestur spilar út ♠Á.
Varnarmaður sem á lengd í tromplit
andstæðinganna þarf að fara vel með
þessa eign og eyða ekki og spenna að
óþörfu.
Suður spilaði slemmu eftir að hafa
sýnt lauf og hjarta og AV sagt spaða.
Sagnhafi trompaði útspilið og tók ♥ÁK
og legan kom í ljós. Næst spilaði hann
tígli á ás og laufi úr borði. Austur henti
tígli og suður drap, fór inn í borð á ♦K
og spilaði enn laufi og aftur henti aust-
ur, nú spaða. Suður átti slaginn og spil-
aði nú laufi og trompaði í borði.
Einhverjir hefðu freistast til að yf-
irtrompa en austur var sparsamur og
henti spaða. Nú varð sagnhafi að
trompa sig heim og þá var austur orð-
inn lengri í trompinu og slemman tap-
aðist.
Sagnhafi hefði betur tekið aðeins einu
sinni tromp áður en hann fór í laufið.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er ekki gaman að deila við vini
eða vandamenn. Kannski að möguleikar
þínir liggi nú víðar og verði mun áhuga-
verðari.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ekki treysta loforðum sem vinir
þínir hafa gefið þér í dag. Best er að
skipuleggja framtíðina með öðrum, þá
mun allt fara vel.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú hefur fengið aukna ábyrgð og
þarft því að endurmeta stöðuna ef allt á
að ganga upp hjá þér. Hafðu bjartsýni
ávallt að leiðarljósi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert undir smásjánni hjá öðrum
svo þú skalt haga gjörðum þínum svo að
þú gefir engan höggstað á þér. Stundir í
einrúmi færa þér frið og ró.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér er yfirleitt óhætt að treysta til-
finningum þínum, þegar um viðskipti er
að ræða. Vertu viðbúin/n skemmtilegum
fréttum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú færð fréttir langt að, sem koma
þér á óvart. Kannski reynir þú að hrekkja
einhvern eða láta einhvern ganga í vatnið.
Stundum er maður í hlutverki kennarans,
stundum í hlutverki nemandans.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er oft gaman að kynnast nýju
fólki sérstaklega þegar það getur kynnt
manni nýjar hugmyndir og framandi
lönd. Reyndu að gera velgengni þína að
velgengni fólksins í kringum þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er nánast ómögulegt að
sýna hlutleysi í skoðunum í dag, ekki síst
í ástamálum. Draumar svara spurningum
þínum og leysa flækjurnar. Vertu viss um
að allt fer vel.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Spenntu beltið og settu líka á
þig axlabönd. Ekki láta undan löngun og
eyða um efni fram þótt þig langi til að
breyta íbúðinni í höll.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ástvinur sér bara þig. Frestaðu
því að ræða málin við lánardrottna ef þú
mögulega getur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert í góðum samböndum og
ættir að notfæra þér þau til að koma góð-
um málum á framfæri. Þig þyrstir í fróð-
leik og ný sannindi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Viltu skera þig úr? Sendu þá skila-
boð á pappír, ekki tölvupóst. Notaðu
tækifærið til að koma ár þinni vel fyrir
borð.
18. maí 1929
Lög um verkamannabústaði
voru samþykkt á Alþingi. „Er
hér með stigið stórt spor í átt-
ina að bættum húsnæðis-
kjörum verkalýðsins í kaup-
stöðum og kauptúnum,“ sagði
Alþýðublaðið.
18. maí 1985
Dagur ljóðsins var haldinn há-
tíðlegur í fyrsta sinn, að frum-
kvæði Rithöfundasambands
Íslands. Í leiðara Morg-
unblaðsins stóð: „Ljóðlistin er
ræktandi afl. Engin önnur list-
grein varðveitir jafn vel ís-
lenska tungu og hún.“
18. maí 1989
Rúmlega sex vikna verkfalli
Bandalags háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna lauk. Það
hafði valdið mikilli röskun í
þjóðfélaginu, m.a. á skóla-
starfi.
18. maí 2000
Nýtt hafrannsóknaskip, Árni
Friðriksson, kom til landsins.
Skipið var smíðað í Chile og er
70 metra langt.
18. maí 2005
Icelandair hóf beint áætl-
unarflug til San Francisco, en
það tók um níu klukkustundir.
Boðið var upp á þetta flug í
tvö sumur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Álfheiður
Bjarnadóttir er
sjötug í dag, 18
maí. Hún og eig-
inmaður hennar
Sævar Guð-
mundsson verða
að heiman á af-
mælisdaginn.
70 ára
„Ég hélt upp á afmælið mitt sl. föstudag með
veislu í anddyri Háskólabíós,“ segir Þorgerður
Hafsteinsdóttir, sem verður fertug í dag. Um 80
gestum var boðið til veislunnar sem að sögn Þor-
gerðar heppnaðist mjög vel. „Haukur Heiðar úr
Diktu kom og söng fyrir mig og þeir Óskar og Óm-
ar Guðjónssynir spiluðu í veislunni. Þetta var ofsa-
lega gaman.“
Þorgerður, sem starfar bæði sem hársnyrtir og
dagmóðir, ætlar að taka sér frí frá vinnu í dag og
hafa það náðugt með fjölskyldunni. Hún segist yf-
irleitt hafa haldið upp á afmælisdaginn. Aðspurð
hvort einhver afmælisveislan standi upp úr, segir hún: „Þegar ég varð
tvítug bauð ég upp á bláa bollu en var með hvítt ullarteppi á gólfum.
Bollan sullaðist náttúrulega út um allt svo daginn eftir leigðum við vél
til að þrífa teppið. Þetta leit rosavel út um kvöldið eftir að við höfðum
farið með vélina yfir teppið, sem var orðið alveg tandurheint. En þeg-
ar við komum fram úr daginn eftir sáum við að teppið hafði skroppið
saman og voru endar þess alls staðar um fimm sentímetra frá veggj-
unum. Enda mátti greinilega ekki þvo teppið,“ segir Þorgerður og
hlær við tilhugsunina. „Þetta var að sjálfsögðu mjög eftirminnilegt.“
Þorgerður Hafsteinsdóttir fertug
Blá bollan eyðilagði teppið
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is