Morgunblaðið - 31.05.2010, Síða 8
Eldur Slökkvilið Fljótsdalshéraðs réð niðurlögum eldsins í Fellabakaríi í gær.
Eldur kviknaði í Fellabakaríi
snemma í gærmorgun og var slökkvi-
liðið á Egilsstöðum kallað út um sjö-
leytið. Það náði fljótt tökum á eldinum
og engin slys urðu á fólki.
Slökkvistarf tók um tvo klukku-
tíma. Að sögn Baldurs Pálssonar
slökkviliðsstjóra er talið að kviknað
hafi í út frá einhverju rafmagnstæki á
efri hæð hússins, þar sem eru kaffi-
stofa og skrifstofa, mögulega frá
kaffivél, en annars eru eldsupptökin í
nánari rannsókn.
Er húsið mikið brunnið á efri hæð-
inni. Þar brann flest sem brunnið gat
og logaði um tíma upp úr fjórum þak-
gluggum sem eru á skrifstofuhlutan-
um. Aðrar skemmdir af völdum elds
voru litlar, nema gólfið á efri hæðinni.
Ekki komst eldur í vinnslusal bak-
arísins, þar sem eldvarnarveggur
milli efri hæðarinnar og salarins hélt.
Kaffivélin í bak-
arínu undir grun
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010
Skordýr
í Elliða-
árdal
Orkuveitan efnir til göngu- og
fræðsluferðar í Elliðaárdal undir
leiðsögn Guðmundar Halldórssonar
skordýrafræðings, þriðjudags-
kvöldið 1. júní kl. 19.30. Gengið
verður um dalinn og hugað að þeim
smádýrum sem þar búa. Þátttakendur
eru hvattir til að hafa með sér
stækkunargler. Gangan hefst við
Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur í
Elliðaárdal.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
05
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af ýmsum ástæðum og er
því bent á að nánari upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.
Jón Gnarr sagðist í sjónvarpinuhafa stofnað Besta flokkinn af því
að stjórnmálin hafi orðið leiðinlegri
og leiðinlegri á síðustu árum.
Menn flyttu sömu frasana oglanghundana og hann héldi
ekki þræði nema örstutta stund.
Var þetta fram-bærilegt? Var
þetta boðlegt?
Dagur B. Egg-ertsson sat
við hliðina á hon-
um. Skömmu síð-
ar kom Jóhanna
Sigurðardóttir í
settið.
Skýringar Gnarr eru líklega skot-heldari en virtust í fyrstu.
En dugir þetta sem skýring á fylgi-shruni stjórnarflokkanna? Er
það ekki eitthvað fleira sem fylgir
leiðindunum sem er alla lifandi að
drepa?
Hvað með Evrópusambands-vitleysuna?
Hvað með Icesave-harmleikinn?
Hvað með öll heilögustu málin semVinstri grænir hafa svikið
iðrunarlaust?
Hvað með skjaldborgina?
Hvað með það sem æpir á alla aðformaður Samfylkingar fer með
forystu í landinu án þess að veita
hana?
Skýringarnar eru fleiri en leið-indin ein. En þau gera sitt.
Jón Gnarr
G(ott)narr
Veður víða um heim 30.5., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 9 heiðskírt
Egilsstaðir 11 skýjað
Kirkjubæjarkl. 13 léttskýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjað
Ósló 16 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skúrir
Stokkhólmur 17 heiðskírt
Helsinki 14 heiðskírt
Lúxemborg 14 skýjað
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 15 skýjað
London 18 heiðskírt
París 15 skúrir
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 15 þrumuveður
Berlín 18 skýjað
Vín 17 alskýjað
Moskva 21 skýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 30 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 28 skýjað
Winnipeg 11 skúrir
Montreal 19 skýjað
New York 27 heiðskírt
Chicago 29 heiðskírt
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
31. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:25 23:27
ÍSAFJÖRÐUR 2:45 24:17
SIGLUFJÖRÐUR 2:26 24:02
DJÚPIVOGUR 2:45 23:06
Fjölmargir heimsóttu Bílabúð
Benna á laugardag, en verslunin
hélt upp á 35 ára afmæli með fjöl-
skylduskemmtun og frumsýningu á
tveimur bílum frá Chevrolet og
Porsche.
Saga fyrirtækisins er rakin til
ársins 1975 þegar stofnandinn,
Benedikt Eyjólfsson, hóf viðgerðir
á mótorhjólum við frumstæðar að-
stæður í litlum skúr á Vagnhöfða
23. 1976 fékk fyrirtækið nafnið
Vagnhjólið og starfsmenn voru
fjórir. Fyrirtækið varð snemma
brautryðjandi í jeppabreytingum
og nafnið breyttist í Bílabúð Benna.
Um það leyti hófst jafnframt inn-
flutningur á varahlutum og
skömmu síðar nýjum bílum. Núna
er Bílabúð Benna umboðsaðili
Chevrolet, SsangYong og Porsche
á Íslandi.
Benni vinsæll á
35 ára afmælinu
Morgunblaðið/hag