Morgunblaðið - 31.05.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010
Í FYRIRTÆKJAVIÐSKIPTUM
H
a
u
ku
r
0
4
.1
0
Guðni Halldórsson
viðskiptalögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Arnór H. Arnórsson
rekstrarhagfræðingur,
arnor@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hdl.
sigurdur@kontakt.is
Leit að heppilegum fyrirtækjum eða kaupendum.
Verðmat fyrirtækja.
Viðræðu- og samningaferli.
Gerð kaupsamninga og tengdra samninga.
Fjármögnun fyrirtækjaviðskipta.
Við teljum að eftirfarandi fyrirtæki geti
verið fáanleg:
•
•
•
•
•
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
SÉRFRÆÐINGAR
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og
skráning á www.kontakt.is.
• Gamalgróin heildverslun sem selur þekktar vörur í verslanir um land allt.
Ársvelta 75 mkr. EBITDA 6 mkr. Eigið húsnæði. Litlar skuldir.
• Tvö iðnfyrirtæki sem henta vel til sameiningar. Sameinuð ársvelta um 150 mkr.
og EBITDA um 25 mkr. Viðkomandi kaupandi þyrfti að leggja fram um 20
mkr. í peningum og um 20 mkr. fasteignaveð til að ná meirihluta í báðum
fyrirtækjunum.
• Meirihluti í rótgrónu iðnfyrirtæki. Ársvelta 90 mkr. EBITDA 10 mkr. Litlar
skuldir.
• Fyrirtæki á heilbrigðissviði með langtímasamninga. EBITDA 12 mkr.
• Verslun með heilsuvörur í góðum rekstri. Eigin innflutningur.
• Helmingshlutur í stóru og arðbæru iðnfyrirtæki með langtímasamninga.
Viðkomandi þarf að leggja fram 100 mkr. og getur fengið starf sem
fjármálastjóri.
• Rótgróið verslunarfyrirtæki með eigin framleiðslu í Kína á alþjóðlegu vörumerki
óskar eftir meðeiganda-fjárfesti til að auka framleiðslu og sölu erlendis.
• Heildverslun með ráðandi stöðu á sérhæfðu sviði. Ársvelta 270 mkr. EBITDA
34 mkr. Góð tækifæri til vaxtar.
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Full verslun
af sumri...
Þrjár líkamsárásir voru kærðar til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu í fyrrinótt en áverkar voru
minniháttar. Þær voru allar í mið-
borginni. Nokkuð var um slagsmál
og ólæti þar þegar líða tók á morg-
uninn. Mikill mannfjöldi var í mið-
borginni þegar leið á nóttina og
segir lögreglan að nóttin hafi verið
tíðindalítil miðað við mannfjöldann.
Tvö umferðaróhöpp urðu þar
sem ökumenn voru grunaðir um að
hafa ekið undir áhrifum áfengis.
Annað óhappið varð í Garðabæ þar
sem maður tók bifhjól traustataki.
Hjólið féll á endanum á götuna og
var ökumaðurinn fluttur á slysa-
deild til aðhlynningar. Í hinu tilvik-
inu voru afskipti höfð af ökumanni
á Bústaðavegi vegna ölvunar, en
bíllinn, sem maðurinn ók, var
skemmdur eftir óhapp.
Mannfjöldi í mið-
bænum og talsvert
um slagsmál og ólæti
Flugsveit frá þýska flughernum
sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafs-
bandalagsins hér á landi frá 7. júní
til 25. júní. Sveitin verður hér stödd
í boði íslenskra stjórnvalda og
starfar í samræmi við loftrým-
isgæsluáætlun Atlantshafs-
bandalagsins fyrir Ísland. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
Varnarmálastofnun verða um 140
liðsmenn þýska flughersins á Ís-
landi vegna verkefnisins, sem að
þessu sinni verður sinnt með sex
F-4 Phantom orrustuþotum. Þetta
er í fyrsta sinn sem Þjóðverjar
sinna loftrýmisgæslu hér á landi.
Orrustuþotur þýska flughersins
lenda á Keflavíkurflugvelli á morg-
un, þriðjudag.
Þjóðverjar gæta
loftrýmis Íslands
Morgunblaðið/RAX
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæð-
inu stöðvaði
kannabisræktun
og lagði hald á
tilbúin kannabis-
efni á fimm stöð-
um í austurborg-
inni um helgina.
Um var að ræða
samtals 400 kannabisplöntur á
lokastigi ræktunar og vel á annað
kíló af tilbúnum kannabisefnum en
verðmæti þess síðarnefnda er hátt í
10 milljónir króna. Sex karlar á þrí-
tugs- og fertugsaldri voru hand-
teknir í tengslum við þessi mál sem
öll teljast upplýst. Um var að ræða
góðkunningja lögreglunnar.
Haldlagt kannabis
metið á 10 milljónir
Sigursteinn H. Her-
sveinsson raf-
eindavirkjameistari og
kennari lést fimmtu-
daginn 27. maí sl.,
áttatíu og eins árs að
aldri.
Sigursteinn fæddist
í Reykjavík 13. des-
ember 1928. Hann var
útvarpsvirkjameistari
frá Iðnskólanum í
Reykjavík. Hann rak
Radíóverkstæðið
Hljóm í Skipholti 9 í
Reykjavík í samstarfi
við félaga sinn í 25 ár,
til ársins 1980. Sigursteinn var
einn stofnenda Meistarafélags
rafeindavirkja (útvarpsvirkja) ár-
ið 1964 og var formaður 1967-69
og 1971-81. Hann varð heið-
ursfélagi félagsins 1985. Sig-
ursteinn var brautryðjandi í end-
urmenntun rafeindavirkja og var
fulltrúi á Iðnþingi um árabil.
Hann var kennari við Iðnskólann
í Reykjavík í tvo áratugi og
deildarstjóri í rafeindavirkjun.
Sigursteinn tók
virkan þátt í starfi
KFUM&K frá ung-
lingsaldri. Hann var
forystumaður og
stofnandi barna- og
unglingastarfs
KFUM í Kópavogi
og starfaði þar í
áratugi. Hann var
gerður að heið-
ursfélaga
KFUM&K á Íslandi
á 110 ára afmæli fé-
laganna árið 2009.
Sigursteinn samdi
nokkrar kennslu-
bækur í rafmagnsfræði og raf-
eindatækni. Hann lét sig íslenskt
mál varða á opinberum vettvangi
og er höfundur margra tækni-
orða sem hafa fest í sessi í mál-
inu.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Ingibjörg Kolbeinsdóttir. Þau
eignuðust þrjú börn, Margréti
Árnýju aðstoðarskólastjóra, Þóri
trésmið og Gunnar Hersvein rit-
höfund.
Sigursteinn H.
Hersveinsson
Andlát
Um 95% HR-inga voru þegar komin
í vinnu eða fengu vinnu á innan við
fjórum mánuðum frá útskrift úr Há-
skólanum í Reykjavík en um 1,5%
hefur ekki tekist að finna vinnu.
Þetta kemur fram í Alumni-könnun
sem skólinn lét nýverið gera meðal
útskrifaðra HR-inga.
Þar kemur einnig fram að um 90%
HR-inga voru þegar komin í vinnu
eða fengu vinnu á innan við tveimur
mánuðum frá útskrift.
Könnunin var send til þeirra sem
útskrifast hafa frá Háskólanum í
Reykjavík frá árinu 1999, Tæknihá-
skóla Íslands (THÍ), Tækniskóla Ís-
lands (TÍ) og Viðskiptaháskólanum í
Reykjavík (VHR). Könnunin var
gerð í gegnum tölvupóst dagana 21.
apríl til 10. maí 2010. Tæplega 41%
þeirra sem brautskráðust á um-
ræddu tímabili svöruðu könnuninni,
eða alls 1.429.
Í könnuninni kemur m.a. fram að
um 24% útskrifaðra HR-inga á
vinnumarkaði starfa sem stjórn-
endur með mannaforráð og um 61%
sem sérfræðingar.
Þá kemur fram að um 16% út-
skrifaðra nemenda hafi stofnað eða
hafi átt þátt í stofnun nýs fyrirtækis,
annaðhvort meðan á námi stóð eða
eftir að því lauk.
Flestir svarenda sem eru í vinnu
starfa í einkageiranum, eða tæplega
68%.
HR-ingar
eru fljótir að
fá atvinnu
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Fram-
sóknarflokks og óháðra og Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs í
bæjarstjórn Akraness hófu í gær
vinnu við gerð málefnasamnings
vegna myndunar meirihluta flokk-
anna sem voru í minnihluta á síðasta
kjörtímabili. Þeir hafa nú sjö fulltrúa
af níu sem eiga sæti í bæjarstjórninni.
Samfylkingin vann mikið á, fékk
fjóra bæjarfulltrúa og bætti við sig
tveimur. Framsóknarflokkur sem
bauð fram með óháðum fékk tvo, ein-
um fleira en síðast, og VG fékk einn.
Samkvæmt
fulltrúatölunni
getur Samfylk-
ingin myndað
meirihluta með
hvaða flokki sem
er. Ákveðið var að
vinna með bæði
Framsókn og VG.
Sveinn Krist-
insson, oddviti
Samfylking-
arinnar, segir það skoðun sína að best
sé að sem flestir komi að myndun nýs
meirihluta. Hann á von á því að það
gangi fljótt og vel fyrir sig.
Nýr meirihluti mun auglýsa starf
bæjarstjóra laust til umsóknar.
„Hann verður ráðinn á faglegum for-
sendum sem framkvæmdastjóri alls
bæjarfélagsins en ekki sem sérstakur
vinnumaður fyrir meirihlutann,“ segir
hann. Sveinn vill að gerðar verði
breytingar á stjórnskipulagi bæj-
arins, fjölgað verði aftur nefndum.
Hann segir að íbúarnir kalli eftir opn-
ari vinnubrögðum fremur en lokuðum
fámennisstjórnum. helgi@mbl.is
Sjö saman í meirihluta
Samfylkingin á Akranesi ræðir við Framsóknarflokk og
VG um myndun nýs meirihluta Auglýst eftir bæjarstjóra
Sveinn
Kristinsson
Víða um land eru menn að þreifa
fyrir sér um myndum meirihluta.
Málin skýrast á næstu dögum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks í Ísafjarðarbæ
ræða saman um endurnýjun meiri-
hlutasamstarfs. Fram hefur komið
að oddviti Í-listans hefur einnig
óskað eftir viðræðum við Fram-
sóknarflokk.
Samfylkingin í Borgarbyggð
ræðir við Framsóknarflokk um
möguleika á myndun nýs meiri-
hluta. Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur hafa verið í sam-
starfi síðustu mánuði og hélt
meirihlutinn velli þótt Framsókn-
arflokkurinn missti einn fulltrúa.
Sjálfstæðismenn eru með þrjá.
Meirihluti Fjarðalistans og
Framsóknarflokksins í Fjarða-
byggð hélt. Sjálfstæðisflokkurinn
sem er í minnihluta vann á og er
orðinn stærsti flokkurinn í bæj-
arstjórn. Oddviti Fjarðalistans tel-
ur eðlilegt í því ljósi að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi frumkvæði að
myndun nýs meirihluta, að því er
fram kom á vef Austurgluggans í
gær.
Reynt að komast í sængina
VIÐRÆÐUR UM NÝJA MEIRIHLUTA HAFNAR