Morgunblaðið - 31.05.2010, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010
Úrslit sveitarstjórnarkosninga
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Góðar líkur eru á að Samfylkingin,
VG, Listi Kópavogsbúa og Næst
besti flokkurinn gangi til samstarfs
og myndi meirihluta í bæjarstjórn
Kópavogs. Þessir flokkar, sem eru
samtals með sex bæjarfulltrúa,
hittust á tveimur formlegum fund-
um í gær og ganga viðræður vel að
sögn Guðríðar Arnardóttur, odd-
vita Samfylkingarinnar.
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur mynduðu fyrst meiri-
hluta í Kópavogi árið 1990 og hann
hefur haldið síðan. Það urðu því
mikil tímamót í Kópavogi í þessum
kosningum. Þó að stöðugleiki hafi
lengst af ríkt í stjórnmálum í bæn-
um verður ekki annað sagt en að
síðasta kjörtímabil hafi einkennst
af átökum. Ekki var full samstaða
innan Framsóknarflokks árið 2006
um að halda áfram samstarfi við
Sjálfstæðisflokk.
Óeining í Sjálfstæðisflokki
Í Sjálfstæðisflokknum hafa verið
miklar væringar. Gunnar I. Birg-
isson hætti sem bæjarstjóri eftir að
bornar voru fram ásakanir um að
hann hefði hyglað fyrirtæki dóttur
sinnar. Gunnar var búinn að vera
áberandi og sterkur foringi sjálf-
stæðismanna í Kópavogi um árabil.
Ekki skapaðist eining í flokknum
eftir að Gunnar vék tímabundið úr
bæjarstjórn. Hann og Ármann Kr.
Ólafsson tókust á í prófkjöri í vetur
þar sem Ármann sigraði. Afleið-
ingar þessara átaka eiga án efa ein-
hvern þátt í því að Sjálfstæð-
isflokkurinn tapaði 14
prósentustigum frá síðustu kosn-
ingum og einum bæjarfulltrúa.
Framsóknarflokkurinn hélt naum-
lega sínum fulltrúa, Ómari Stef-
ánssyni.
Bæði Samfylking og VG
töpuðu fylgi í Kópavogi
miðað við kosningarnar
árið 2006 og Samfylk-
ingin tapar raunar einum
fulltrúa. Það eru hins
vegar nýju fram-
boðin, Næst besti
flokkurinn og Listi Kópavogsbúa,
sem fella meirihlutann. Næst besti
flokkurinn var nálægt því að fá tvo
menn kjörna.
Samfylking, VG, Listi Kópavogs-
búa og Næst besti flokkurinn áttu í
gær tvo formlega fundi um mynd-
un meirihluta. Guðríður Arn-
ardóttir sagði að viðræður gengju
vel. „Ég skynja einlægan vilja allra
til að lenda þessu og mér sýnist að
það sé lítið sem ber í milli.“ Guð-
ríður segir að það séu mörg mál
sem flokkarnir þurfi að ræða og því
á hún ekki von á því að viðræðum
ljúki í dag. Hún segir ekkert farið
að ræða um hver verði bæjarstjóri.
Málefnin séu aðalatriðið. Ljóst sé
að stefnubreyting verði í bæj-
arstjórn í mörgum málum með nýj-
um meirihluta.
Morgunblaðið/hag
Kosninganótt Rannveig H. Ásgeirsdóttir, oddviti Lista Kópavogsbúa, Hjálmar Hjálmarsson, oddviti Næst besta
flokksins og Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, takast í hendur á kosninganótt.
Nýr meirihluti í fæðingu
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks féll eftir 20 ára samstarf
Fjórir framboðslistar ræða um myndun nýs meirihluta í Kópavogi
Framsóknarflokkur (1)
Sjálfstæðisflokkur (5)
Samfylking (4)
Vinstri græn (1)
Næst besti flokkurinn
Listi Kópavogsbúa
(1)=sæti
2006
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Um 45% kjósenda í Hafnarfirði
annað hvort sátu heima eða skiluðu
auðu eða ógildum atkvæðum. Þetta
sýnir að djúpstæð óánægja er í
bænum með þá flokka sem buðu
fram. Óformlegar viðræður um
myndun nýs meirihluta hófust í
gær.
Samfylkingin hefur farið með
meirihluta í Hafnarfirði frá árinu
2002. Flokkurinn vann á í kosning-
unum 2006, en nú tapaði hann
næstum 14% prósentustigum. Lúð-
vík Geirsson bæjarstjóri lagði allt
undir í kosningunum og settist í 6.
sætið, sem var baráttusæti. Hann
náði ekki kjöri í bæjarstjórn. Lúð-
vík sagði að landsmálin hefðu spil-
að stóra rullu í kosningunum. „Það
er sorg og erfiðleikar á mörgum
heimilum og það hversu erfiðlega
hefur gengið að leysa úr þessum
vanda hafði áhrif í kosningunum,“
sagði Lúðvík.
Valdimar Svavarsson, oddviti
Sjálfstæðisflokksins, er ánægður
með árangur flokksins, en hann
bætti við sig 10 prósentustiga fylgi
og 2 mönnum.Valdimar segir líkt
og Guðrún Ágústa Guðmunds-
dóttir, oddviti VG, að taka verði
fjármál bæjarfélagsins föstum tök-
um.
Guðrún átti í gær í óformlegum
viðræðum við fulltrúa bæði Sam-
fylkingar og Sjálfstæðisflokks. Hún
segir að menn ætli að taka sér ein-
hvern tíma í að skoða málin. „Það
þarf að hugsa málin upp á nýtt,“
sagði Guðrún. Hún segir að það sé
„allt opið“ þegar hún er spurð
hvort VG myndi fara fram á að fá
bæjarstjórastólinn í Hafnarfirði.
Þó að Samfylkingin hafi fengið
41% atkvæða er ljóst að úrslitin
eru mikið áfall fyrir flokkinn. Lúð-
vík Geirsson lagði allt undir í kosn-
ingunum og færði sig úr fyrsta
sætinu í baráttusætið. Honum mis-
tókst að vinna það sæti. Spurn-
ingin er hvort hann hafi ekki þar
með tapað bæjarstjórastólnum,
jafnvel þó að niðurstaðan verði sú
að Samfylkingin og VG myndi
meirihluta. Guðrún Ágústa segir
alveg ljóst að „það verði breytingar
í Hafnarfirði“. Samfylkingin hefur
óskað eftir viðræðum við VG.
Valdimar telur eðlilegast að allir
flokkar ræði saman. Úrslit
kosninganna og þau verk-
efni sem menn standi
frammi fyrir kalli á að
menn vinni náið saman.
45% kusu engan flokk
Úrslitin í Hafnarfirði endurspegla mikið vantraust á flokkunum sem buðu fram
Bæjarstjórinn náði ekki kjöri í bæjarstjórn Fulltrúi VG er í lykilstöðu
Morgunblaðið/hag
Talning „Það munar litlu,“ sagði Lúðvík Geirsson bæjarstjóri þegar hann fylgdist með tölunum í Hafnarfirði.
Aðeins munaði 15 atkvæðum að
Valdimar Sigurjónsson, efsti
maður á lista Framsókn-
arflokks, næði kjöri í
bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar. Hann hefði þá
fellt fjórða mann Sjálf-
stæðisflokks. Framsókn-
arflokkurinn jók fylgi
sitt frá síðustu
kosningum en
það dugði ekki.
Munaði litlu
FRAMSÓKNARFLOKKUR
Valdimar
Sigur-
jónsson
Sjálfstæðisflokkur (3)
Samfylking (7)
Vinstri græn (1)(1)=sæti
2006
Næst besti flokkurinn í Kópavogi
kom fram stuttu áður en fram-
boðsfrestur rann út. Hugmyndin
um framboð kviknaði á Facebook
og ákvað hópur undir forystu
Hjálmars Hjálmarssonar leikara að
hrinda henni í framkvæmd. Flokk-
urinn eyddi ekki krónu í auglýs-
ingar í kosningabaráttunni. Árang-
ur flokksins varð hins vegar góður
því hann fékk 1.901 atkvæði og var
nálægt því að ná tveimur mönnum.
Flokkurinn er núna þriðji stærsti
flokkurinn í Kópavogi.
Þriðji stærsti
NÆST BESTI FLOKKURINN
Kosningastiklur
Söguleg úrslit urðu í Fjarðabyggð á
laugardaginn þegar Sjálfstæð-
isflokkurinn varð stærsti flokkur
sveitarfélagsins.
Margir sjálfstæðismenn glöddust
mjög en enginn þó meira en Reynir
Zoëga í Neskaupstað. Reynir, sem
er fæddur 1920, hefur verið sjálf-
stæðismaður alla sína tíð og upplifir
nú í fyrsta sinn að flokkurinn hans
er orðinn stærsta stjórnmálaaflið.
Reynir var bæjarfulltrúi fyrir
sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar í 30 ár – frá 1954 til
1984 og alltaf í minnihluta. Hann
sagðist í gamansömum tón hafa
mesta reynslu af því að vera í
minnihluta en að gaman yrði að sjá
flokkinn í meirihluta.
Við sameininguna fyrir nokkrum
árum varð Neskaupstaður hluti
Fjarðabyggðar. Fyrir sameiningu
var Alþýðubandalagið leiðandi afl í
Neskaupstað, áratugum saman.
Hefur 30 ára
reynslu af því að
vera í minnihluta
Reynir Segir að gaman yrði að sjá
flokkinn spreyta sig í meirihluta.
Hjálmar Sveins-
son, fjórði maður
á lista Samfylk-
ingarinnar í
Reykjavík, ætlar
að gefa það út í
dag hvort hann
hyggist taka sæti
varaborgarfull-
trúa á komandi
kjörtímabili.
Samfylkingin náði þremur mönnum
inn í borgarstjórn.
„Ég er bara venjulegur borgari
og þarf að velta fyrir mér í hverju
starf varaborgarfulltrúa felst,“
sagði Hjálmar í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. Hann sagðist
ekki hafa náð þeim árangri sem
hann stefndi að og því spyrði hann
sig hvort þetta væru ekki ákveðin
skilaboð frá kjósendum. „Á hinn
bóginn ber ég líka ábyrgð, það var
fólk sem kaus mig. Ég ætla að leyfa
kvöldinu að líða áður en ég tek
ákvörðun.“ kjartan@mbl.is
Ákveður sig í dag
Hjálmar Sveinsson
Trúnaðarmenn
J-listans á Dalvík
sendu frá sér eft-
irfarandi til-
kynningu í gær:
„Vegna mis-
skilnings sem
fram hefur kom-
ið hjá Jóhönnu
Sigurðardóttur,
formanni Sam-
fylkingarinnar, í
umfjöllun um kosningaúrslit viljum
við að eftirfarandi komi fram: J-
listinn – óháð framboð í Dalvík-
urbyggð, er ekki borinn fram af
neinum stjórnmálaflokki. Að listan-
um standa eingöngu einstaklingar
sem eiga það sameiginlegt að vilja
vinna sem best að hagsmunum Dal-
víkurbyggðar hvar í flokki sem þeir
standa. Trúnaður listans er því ein-
göngu við íbúa Dalvíkurbyggðar.
J-listinn – óháð framboð í Dalvík-
urbyggð vill eiga gott samstarf við
alla þá sem hafa sömu markmið og
listinn, sem er vöxtur og viðgangur
Dalvíkurbyggðar,“ segir í tilkynn-
ingunni sem þeir Þorsteinn Már Að-
alsteinsson og Ásgeir Páll Matthías-
son, umboðsmenn J-listans í
Dalvíkurbyggð, sendu frá sér.
J-listi leiðréttir mis-
skilning ráðherra
Jóhanna
Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Kristín
Hjálmar
Hjálmarsson