Morgunblaðið - 31.05.2010, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2010
IÞ, Mbl
IÞ, Mbl
EB, FblEB, Fbl
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Gauragangur (Stóra svið)
Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00
Lau 5/6 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00
Eftir Ólaf Hauk Símonarson - tónlist Nýdönsk
Dúfurnar (Nýja sviðið)
Fim 3/6 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00 Lau 12/6 kl. 20:00
Fös 4/6 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00
Rómeó og Júlía Vesturports (Stóra svið )
Þri 1/6 kl. 20:00 aukas Mið 9/6 kl. 20:00 aukas Lau 19/6 kl. 20:00 Ný aukas
Mið 2/6 kl. 20:00 k.5. Sun 13/6 kl. 20:00 aukas Sun 20/6 kl. 20:00 Ný
aukas
Sun 6/6 kl. 20:00 k.6. Þri 15/6 kl. 20:00 aukas
Þri 8/6 kl. 20:00 aukas Fös 18/6 kl. 20:00 aukas
Í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports.
Rómeó og Júlía – magnaðir leikhústöfrar
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Fíasól (Kúlan)
Lau 12/6 kl. 13:00 Lau 4/9 kl. 15:00 Sun 12/9 kl. 15:00
Lau 12/6 kl. 15:00 Sun 5/9 kl. 15:00 Lau 18/9 kl. 13:00
Sun 13/6 kl. 13:00 Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 15:00
Sun 13/6 kl. 15:00 Lau 11/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 13:00
Lau 4/9 kl. 13:00 Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 15:00
Haustsýningar komnar í sölu!
Hænuungarnir (Kassinn)
Fös 10/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00
Lau 11/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00
Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00
Fim 16/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00
Haustsýningar komnar í sölu!
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Fim 3/6 kl. 19:00 Aukas. Lau 5/6 kl. 19:00 Fös 11/6 kl. 19:00 Aukas.
Fös 4/6 kl. 19:00 Fim 10/6 kl. 19:00 Aukas. Lau 12/6 kl. 19:00 Aukas.
Ath. sýningarnar hefjast kl. 19:00
Af ástum manns og hrærivélar (Kassinn)
Fim 3/6 kl. 20:00 Fös 4/6 kl. 20:00 Lau 5/6 kl. 20:00
Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Listahátíðar í Reykjavík
Herra Pottur og ungfrú Lok (Kúlan)
Fim 3/6 kl. 17:00 á frönsku Lau 5/6 kl. 15:00 Sun 6/6 kl. 15:00
Lau 5/6 kl. 13:00 Sun 6/6 kl. 13:00
Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík
Rokk (Kassinn)
Fim 10/6 kl. 20:00
Athyglisverðasta áhugasýning ársins!
Leikkonan Cynthia Nixon,
sem er væntanleg á bíótjöld
landsmanna í næstu viku í
Sex and the City 2, sagði í
viðtali við tímaritið People í
síðustu viku að hún ætlaði sér
alls ekki að breytast í brúð-
arskrímsli (bridezilla) þegar
hún gengur að eiga unnustu
sína, Christine Marinoni.
Parið hefur verið saman
frá því að Nixon skildi að
skiptum við ljósmyndarann
Danny Mozes árið 2004, og
hafa verið trúlofaðar í rúmt
ár. „Ég nýt þess mjög að vera
trúlofuð,“ sagði leikkonan.
„Og það skiptir mig ekki máli
þótt þetta verði löng trúlof-
un, en það lítur allt út fyrir
að hún verði það.“
Nixon og Marinoni vonast
til þess að geta gengið í
hjónaband í New York, en
þar er hjónaband samkynhneigðra
enn ólöglegt. Nixon segir tvennt
vera í stöðunni, annars vegar að
berjast eins og þær geti fyrir því að
það verði lögleitt og hins vegar að
skoða aðra kosti í stöðunni.
Nixon á tvö börn með Mozes, en
hún og Marinoni kynntust einmitt í
gegnum sameiginlegan áhuga
þeirra á bættu skólastarfi í ríkis-
reknum skólum. Hún sagði nýlega í
viðtali við The Advocate að hún
væri mjög glöð með það að börnin,
sem eru 13 og 7 ára, hefðu nýlega
farið að kalla Marinoni mömmu
líka. „Kannski er ég bara heppin,
en Christine er frábær með börnin
okkar - og þau eru börnin okkar.“
Trúlofaðar Christine Marinoni og Cynthia
Nixon vilja geta gift sig í New York.
Ekkert „brúðarskrímsli“
Hugrún Halldórsdóttir
hugrun@mbl.is
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna
sér nýja tónlist og vilja ekki láta út-
varpsstöðvar mata sig á svokallaðri
formúlutónlist ættu að heimsækja
vefsíðuna The Hype Machine.
Síðan er sannkölluð gullkista fyrir
tónlistaunnendur, sem endalaust er
hægt að grúska í. Þar er nánast
ógerningur að finna ekki eitthvað við
sitt hæfi.
Á The Hype Machine er auðvelt að
uppgötva nýja tónlist og fylgjast með
því sem er að gerast í tónlistarheim-
inum. Á síðunni má finna fjöldann all-
an af tónlistarumfjöllunum sem
skrifaðar eru af fólki hvaðanæva úr
heiminum. Notendum er svo gefinn
kostur á að segja sínar skoðanir á
skrifunum eða greina frá öðru sem
þeim liggur á hjarta í athugasemd-
um. Umfjallanirnar eru jafn ólíkar og
þær eru margar. Flestar eru þó stór-
skemmtilegar, enda skrifaðar af tón-
listargúrúum og kemur efnið þeirra
beint frá hjartanu. Þá er hægt að
hlusta á og jafnvel ná í þau lög sem
fjallað er um hverju sinni.
Hægt að deila með vinum
Síðan er vel skipulögð og tekur það
meðalmanninn nánast engan tíma að
læra inn á hana. Þegar leit hefst er
hægt að fara nokkrar leiðir. Til að
mynda er hægt að notast við sér-
stakan leitarreit. Þar er
flytjanda eða lagi slegið
inn sem maður vill lesa
sér til um eða hlusta á.
Þá er einnig hægt að
nýta þær flýtileiðir sem
upphafssíðan býður upp
á. Auðvelt er að komast
inn á lista yfir nýjustu umfjallanirnar
eða þær sem hafa átt mestum vin-
sældum að fagna síðustu daga.
Þá hefur síðan einnig að geyma
ýmsar upplýsingar á borð við tón-
leikahald og atburði á vegum The
Hype Machine. Síðuna er sífellt verið
að endurbæta og því verður gaman
að fylgjast með henni á komandi
mánuðum.
Líkt og allar nútíma-
vefsíður gerir The Hype
Machine notendum sín-
um kleift að deila inni-
haldi síðunnar á sam-
skiptavefi á borð við
Facebook og Twitter.
Þar gefst kjörið tæki-
færi til að kynna vini og ættingja
fyrir þeirri tónlist sem leitin skilaði.
Tónlistaunnendur mega alls ekki
láta hypem.com fram hjá sér fara.
Þó er rétt að benda á að síðan er
ekki ætluð þeim sem eru í mikilli
tímaþröng því auðvelt er að ánetjast
og gleyma sér tímunum saman í
undursamlegum nýuppgötvuðum
tónum.
Gullkista fyrir tónlistarunnendur
Kanye West Tónlist rapparans má finna á vefnum hypem.com.
VEFSÍÐA VIKUNNAR» www.hypem.com
Síðastliðinn föstudag voru fyrstu
tónleikarnir í sumartónleikaröð 12
Tóna haldnir í versluninni við
Skólavörðustíg. Þar tróð upp tón-
listarmaðurinn Marc Francis, sem
kallar sig Taperecorder, en hann
hefur verið áberandi á tónlistarsen-
unni í Brooklyn í New York.
Taperecorder
í 12 Tónum
Taperecorder Tónlistarmaðurinn Marc Francis er þekktur listamaður í Brooklyn í New York.
Morgunblaðið/Golli
Stemning Það má láta fara vel um sig á gólfinu upp við smekkfullar geisladiskahillurnar.
Forsetar Veggir verslunarinnar eru frumlega skreyttir.