Morgunblaðið - 31.05.2010, Side 40
Reuters
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Íslenska framlagið í Evróvisjón í ár,
lagið „Je ne sais quoi“ eftir Heru
Björk og Örlyg Smára, lenti í 19.
sæti í úrslitakeppninni síðastliðið
laugardagskvöld.
Þetta var í 55. skiptið sem keppn-
in er haldin og fór hún fram í Tele-
nor-höllinni í Osló. Það var hin
þýska Lena Mayer-Landrut sem
bar sigur úr býtum með laginu „Sa-
tellite,“ en þetta er í annað skiptið
sem Þjóðverjar vinna keppnina.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, óskaði Lenu til hamingju
með árangurinn og sagði hana vera
góða fyrirmynd hins unga Þýska-
lands.
Úrslit keppninnar komu að
mörgu leyti á óvart og gengu að
sumu leyti þvert á spár bæði veð-
banka og Evróvisjón-spekúlanta.
Þannig hafði laginu frá Aserbaíd-
sjan gjarnan verið spáð sigri, en
lagið „Drip Drop“ náði aðeins
fimmta sæti. Stigagjöfin þótti enn-
fremur ekki eins fyrirsjáanleg og
oft áður, og vilja margir meina að
keppnin í ár gæti markað þáttaskil í
Evróvisjón hvað varðar klíkuskap
nágrannalanda sem hefur sett mark
sitt á stigagjöfina hingað til.
Var spáð
betra gengi
Bæði Hera Björk og Örlygur
Smári sögðust hafa fundið mikinn
meðbyr með íslenska laginu og var
því almennt spáð 7.-9. sætinu í veð-
bönkum. Það lenti í þriðja sæti í
fyrri undankeppninni og á opinberri
heimasíðu keppninnar fékk það 79%
atkvæða í skoðanakönnun um hvaða
land úr þeim riðli væri líklegast til
að lenda í fyrsta sæti í úrslitunum.
Á endanum fór það þó þannig að
lagið fékk aðeins 41 stig á loka-
kvöldinu, en til samanburðar þá
fékk sigurlagið 246 stig.
Þegar mbl.is náði sambandi við
Heru Björk eftir keppnina á laugar-
daginn, kunni hún engar skýringar
á því hvers vegna laginu farnaðist
ekki betur. „Það er voða erfitt að
segja til um hvað er að gerast
þarna, hvort þetta er pólitík eða
hvort við höfum verið að ofmeta
þetta,“ sagði söngkonan og bætti
því við að það
hefði ekki verið
annað að heyra á
salnum en að
lagið og
flutn-
ing-
urinn
hefði
fallið í
góðan
jarð-
veg.
Hera fórnarlamb öskunnar?
Hin 19 ára gamla Lena frá Þýskalandi sigraði Evróvisjón með laginu Satellite
Íslendingar fengu 41 stig í úrslitunum en urðu í þriðja sæti í undankeppninni
Je ne sais quoi Heru Björk var vel fagnað í Telenor-höllinni enda var flutningur hennar óaðfinnanlegur.
MÁNUDAGUR 31. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Smyglaði sér á sviðið
2. Andlát: Guðrún Elísa Ólafsdóttir
3. Besti flokkurinn í viðræðum
4. Sigur Besta flokksins
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Það var mikið um dýrðir á 55. Evró-
visjón söngvakeppninni í Telenor-
höllinni í Osló á laugardaginn. Þátt-
takendur voru hver öðrum skraut-
legri þegar þeir stigu á svið. »36
Reuters
Litrík og fjölbreytt
Evróvisjónatriði
Hera Björk og
Örlygur Smári
voru ekki þau einu
sem áttu íslenskt
lag sem hljómaði í
Telenor-höllinni á
laugardaginn.
Lagið Glow, sem
flutt var í hléinu
af hljómsveitinni
Madcon, er nefnilega eftir Norð-
manninn Kim Ofstad og Íslendinginn
Helga Má Hübner. Helgi hefur lengi
búið í Noregi og starfar þar undir
listamannsnafninu Hitesh Ceon.
Annar Íslendingur
í Evróvisjón
Bandaríski rithöfundurinn
Christina Sunley er í heimsókn á Ís-
landi um þessar mundir til að kynna
bók sína Freyjuginningu, eða The
Tricking of Freyja.
Christina er af íslensk-
um ættum og er sögu-
svið bókarinnar Ísland
og Íslendingaslóðir í
Kanada. Hún mun
kynna bókina í
Þjóðmenning-
arhúsinu kl.
16.30 í dag.
Christina Sunley
heimsækir Ísland
Á þriðjudag Austan og norðaustan 5-10 m/s og dálítil væta S- og A-lands, en úrkomulít-
ið annars staðar. Hiti 7 til 13 stig.
Á miðvikudag Norðlæg átt og súld eða rigning á NA- og A-landi, en léttir til S- og V-
lands. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast suðvestantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-13 m/s við suðvesturströndina, annars hægari vind-
ur. Dálítil væta á S- og V-landi þegar líður á daginn, en bjartviðri norðaustantil.
VEÐUR
Bjarki Gíslason og Sveinbjörg
Zophoníasdóttir urðu Íslands-
meistarar í tugþraut og sjö-
þraut en Meistaramóti Íslands í
þessum greinum lauk í gær.
Móðir Svein-
bjargar var
fremsti kúluvarp-
ari og kringlukast-
ari landsins um ára-
bil og hún á von á
nýju spjóti frá föður
sínum vegna árangurs hennar
um helgina. »7
Meistari fær nýtt
spjót frá pabba
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik leikur í fyrsta skipti í úr-
slitakeppni stórmóts í desember á
þessu ári. Liðið tryggði sér sæti í
lokakeppni EM í Noregi og
Danmörku með því að ná
öðru sæti í undanriðl-
inum. Austurríki vann
leik liðanna, 26:23, en
það nægði ís-
lenska liðinu
til að fara
áfram. »
4-5
Sögulegur áfangi
kvennalandsliðsins
Björgvin Sigurbergsson og Valdís
Þóra Jónsdóttir unnu fyrsta stigamót
sumarsins í golfi en því lauk í Vest-
mannaeyjum í gær. Sagan endurtók
sig svo sannarlega í Eyjum, Björgvin
lenti þar öðru sinni í bráðabana gegn
Kristjáni Þór Einarssyni og hafði bet-
ur í þetta sinn. Sextándi teigurinn er
oft sögulegur í Eyjum og var það líka í
þetta skiptið. »3
Bráðabani og end-
urtekið efni í Eyjum
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Í DAG
Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari og Evróvisjónspekingur,
hafði spáð því að Hera myndi verða í toppbaráttunni og
var augljóslega undrandi á úrslitunum. „Eigum við að trúa
því að Evrópa sé að refsa okkur fyrir eldgos og flugsam-
göngur? Þetta var ekki sanngjarnt. Maður til dæmis les
það úr Norðurlöndunum að þau séu bara í fýlu við okkur
fyrir að hafa misst af flugvélunum sínum. Og Bretar láta
okkur örugglega bara fara í taugarnar á sér útaf öllu, Ice-
save, flugsamgöngum og bara öllum pakkanum.“
Hann sagði þó ekkert þýða að fara í fýlu og tók undir með Heru Björk
að svona væri bara Evróvisjón. „Ég er
stoltur af Heru og hún á að vera stolt af
sér. Núna heldur lífið bara áfram.“
Vinaþjóðirnar (ösku)illar
EVRÓVISJÓNSPEKÚLANTINN
Lena Mayer-
Landrut
Páll Óskar
Hjálmtýsson