Fréttablaðið - 31.10.2011, Page 11
MÁNUDAGUR 31. október 2011 11
BRETLAND Dómstóll í London mun
taka ákvörðun um það á mið-
vikudaginn kemur hvort Julian
Assange, stofn-
andi Wikileaks,
verður fram-
seldur til Sví-
þjóðar.
Assange var
handtekinn í
London í des-
ember síðast-
liðnum og er nú
laus gegn trygg-
ingu. Hann er ákærður fyrir
kynferðisbrot gegn tveimur
konum í Svíþjóð og því hafa
Svíar viljað hafa hendur í hári
hans. Hann neitar alfarið sök og
segir málið vera pólitískt.
Nú hefur verið greint frá því
að 2. nóvember klukkan 9.45
verði kveðinn upp úrskurður í
framsalsmálinu. - þeb
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
1
1-
23
71
Íslandsbanki er aðalstyrktaraðili Hvað ef? skemmtifræðslu
og býður grunnskólanemum á sýningar í vetur.
Um er að ræða uppistand og skemmtifræðslu fyrir unglinga, foreldra og
kennara um málefni sem ungt fólk stendur frammi fyrir þegar það er að
vaxa úr grasi. Með húmorinn og einlægnina að vopni er opnuð umræða um
áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál.
Hvað ef? hefur hlotið fádæma góðar viðtökur og lof áhorfenda og þeirra
sem vinna við forvarnir og fræðslu. Nú þegar hafa á þriðja þúsund
nemendur og foreldrar séð þetta frábæra verk í boði Íslandsbanka. Verkið er
sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
„Ein áhrifamesta forvarnarfræðsla sem
ég hef upplifað. Frábær rússíbani og
Stefán Helgi
Guðrún
„Þetta var mjög skemmtilegt og held að
Magdalena
Myndskreyting: Kristján Þór / FÍT / dagsverk.is
„Ein áhrifamesta forvarnarfræðsla
JULIAN ASSANGE
Dómstóll í London:
Ræðst hvort
Assange verður
framseldur
AIRWAVES 2005 Tónlistarhátíðin Iceland
Airwaves var fyrst haldin 1999 og hefur
eflst um allan helming síðan.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
BORGARMÁL Reykjavíkurborg
hefur hlotið sérstakan heiðurs-
titil sem Hátíða- og viðburðaborg.
Þetta var tilkynnt á árlegri ráð-
stefnu IFEA (International Festi-
vals & Events Association). Verð-
launin eru veitt til að vekja athygli
á þeim borgum sem skara fram úr
við að styðja viðburði og hátíðir og
þykja hafa góða innviði til að halda
utan um slíkt starf.
Titillinn telst mikilvægur sem
markaðssetningartól til að laða
bæði stóra og smáa alþjóðlega við-
burði til Reykjavíkur. Í fyrra hlaut
Edinborg í Skotlandi titilinn. - shá
Höfuðborgin fær heiðurstitil:
Reykjavík góð
til hátíðahalda
FÓLK Samtökin KFUM og KFUK
standa í áttunda sinn fyrir verk-
efninu Jól í skókassa. Í því er
nokkrum jólagjöfum pakkað ofan
í skókassa sem síðan eru sendir til
þurfandi barna í Úkraínu. Markmið-
ið er að gleðja þurfandi börn í anda
jólanna.
Um 50 milljónir búa í Úkraínu
en þar er mikið atvinnuleysi. Skó-
kössunum er dreift á svæði þar
sem er allt að 80 prósenta atvinnu-
leysi. Kassarnir fara meðal annars
á munaðarleysingjahæli, barnaspít-
ala og til barna fátækra einstæðra
foreldra.
Tekið er á móti skókössum í aðal-
stöðvum KFUM og KFUK, Holta-
vegi 28, alla virka daga frá klukk-
an 9 til 17, en síðasti skiladagur
er 12. nóvember. Frekari upplýs-
ingar um verkefnið er að finna á
heimasíðunni skokassar.net. - kóp
KFUM og KFUK færa úkraínskum börnum jólagjöf í áttunda sinn:
Jólin flutt í kössum til Úkraínu
KÍKT Í KASSANN Gjafirnar hafa kætt
krakkana í Úkraínu undanfarin jól.
Ritföng, föt, leikföng, hreinlætisvörur,
sælgæti og margt fleira hefur leynst í
kössunum.
FLÓRÍDA, AP Baráttan um yfir-
höndina á flatbökumarkaðnum í
Flórída er komin á nýtt stig. Tveir
yfirmenn Dominos veitinga-
staða hafa verið ákærðir fyrir að
kveikja í húsnæði keppinautarins,
Papa John´s, í Lake City.
Mennirnir, sem eru 22 ára og
23 ára, sögðu lögreglunni ástæð-
una vera þá að viðskiptavinum
myndi fjölga á Dominos við það
að koma keppinautnum á kné.
Báðir mennirnir hafa verið
kærðir fyrir íkveikju og eru í
haldi lögreglu. - rat
Kveiktu í Papa John´s pizza:
Ætluðu að ná
viðskiptavinum
RÍAD, AP Konungsfjölskyldan í
Sádi-Arabíu hefur lofað hverjum
þeim sem tekur ísraelskan her-
mann höndum til að skipta fyrir
palestínskan fanga, einni milljón
dala.
Áður hafði sjeikinn Awadh al-
Qarani boðið 100.000 Bandaríkja-
dali fyrir hvern ísraelskan her-
mann. Khaled bin Talal prins bætti
við 900.000 dölum við nú á laugar-
dag. Hann sagðist í yfirlýsingu
gera þetta vegna líflátshótana sem
Ísraelar eiga að hafa haft uppi við
al-Qarani. - rat
Skipti fyrir palestínska fanga:
Bjóða milljón
fyrir hermann