Fréttablaðið - 29.11.2011, Page 2
29. nóvember 2011 ÞRIÐJUDAGUR2
Jóhann, heldurðu að forsetinn
fái enga vasapeninga?
„Verðmætið er líklega meira en
vasafylli.“
Danskur nítjándu aldar vasi með mynd
af Bessastöðum er nú til sölu hjá upp-
boðshaldara í Kaupmannahöfn. Vasinn
er metinn á tvær milljónir króna. Jóhann
Hansen hjá Gallerí Fold telur vasann
myndu sóma sér vel í eigu forsetaemb-
ættisins en efast um að það geti keypt
hann og forsetaritari tekur undir það.
Kosið um sameiningu
Kosningar um sameiningu sveitar-
félaganna Bæjarhrepps og Húnaþings
vestra fara fram á laugardaginn.
Kjörstaðir verða á Hvammstanga og
Borðeyri.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas,
forseti Palestínu, hefur ákveðið
að kosningar fari fram í landinu
þann 4. maí næstkomandi.
Kosningarnar eiga að verða til
þess að ein stjórn verði yfir öllu
landinu á ný, en Palestínumenn
hafa verið undir stjórn bæði
Hamas og Fatah síðan Hamas
tóku yfir Gasa-ströndina árið
2007.
Abbas segir að mynda eigi
sameinaða ríkisstjórn embættis-
manna frá báðum hliðum til að
undirbúa kosningarnar. - þeb
Kosningar verða 4. maí:
Boðað til kosn-
inga í Palestínu
Einlæg
og ágeng
AFVIKNIR STAÐIR
Sigmundur Ernir tekst á við
dótturmissi en yrkir einnig um
dýrðardaga bernskunnar í sveit-
inni og fjarlæga staði þar sem
tónlistin liðast um loftið.
SPURNING DAGSINS
STJÓRNSÝSLA Tryggvi Harðarson,
sveitarstjóri Þingeyjarsveitar,
segir í aðsendri grein í Frétta-
blaðinu í dag að almenningur í
landinu eigi ekkert í Grímsstöðum
og ekkert í þeim réttindum sem
fylgja landinu. Ríkisvaldið þurfi
að sýna fram á ríka hagsmuni til
að standa gegn viðskiptum tveggja
einkaaðila. Um það snúist undan-
þágugrein laga um jarðarkaup.
Tryggvi segir að séu ekki mál-
efnalög rök fyrir því að hafna
slíkum viðskiptum gangi það aug-
ljóslega gegn stjórnarskránni.
Hann bendir jafnframt á að ekkert
hafi verið leitað eftir sjónarmiðum
kaupenda og seljenda.
- ibs / sjá síðu 18
Málefnaleg rök ekki til staðar:
Almenningur á
ekki Grímsstaði
MENNTAMÁL Fulltrúar frá mennta-
og menningarmálaráðuneytinu
ætla að gera ítarlega úttekt á starf-
semi Gerðaskóla í Garði. Var þetta
ákveðið eftir að svör bárust frá bæj-
arstjóra, skólanefnd og skólaráði í
Garði við fyrir-
spurn ráðuneyt-
isins í september
síðastliðnum.
Úttektin er gerð
að ósk heima-
manna í Garði.
Þeir þættir
sem kannaðir
verða eru líðan
nemenda og ein-
elti, skólabrag-
ur, námsárangur nemenda í lestri,
samstarf skólans við foreldra og
fleira, að því er fram kemur í bréfi
ráðuneytisins til Ásmundar Frið-
rikssonar, bæjarstjóra í Garði.
Ásmundur segir bæjarstjórnina
sérstaklega hafa óskað eftir stjórn-
sýsluúttekt á störfum skólans. Því
var þessi ákvörðun tekin og sam-
þykki menntamálaráðuneytisins
kom í kjölfarið.
„Það má alltaf gera gott betra,“
segir Ásmundur. „Það er vilji allra
til þess að þessi úttekt verði gerð.“
Einelti í Gerðaskóla hefur verið
mikið í umræðunni að undanförnu.
Fram hafa komið frásagnir for-
eldra sem hafa þurft að taka börn-
in sín úr skólanum sökum eineltis
og afskiptaleysis skólastjórnenda.
Í skoðanakönnun meðal nemenda
skólans sem gerð var fyrr á þessu
ári kom fram að 13,3 prósent nem-
enda segjast verða fyrir einelti
oftar en tvisvar til þrisvar sinn-
um í mánuði. Það er um helmingi
hærra hlutfall en meðaltal á lands-
vísu. Fram hefur komið að meiri-
hluti skólanefndar Gerðaskóla telji
eineltismál og líðan nemenda með
öllu óviðunandi.
Pétur Brynjarsson, skólastjóri
í Gerðaskóla, segir að mikið hafi
áunnist í eineltismálum innan skól-
ans að undanförnu. Olweusar-könn-
unin, sem leiddi í ljós 13,3 prósent
hlutfall nemenda sem verða fyrir
einelti, hafi verið gerð fyrir nær
ári, en önnur könnun sem gerð var
í september meðal starfsmanna
skólans hafi sýnt fram á mun lægra
hlutfall þolenda, eða um 4,1 prósent.
„Við tókum reyndar aðeins aðra
nálgun þá,“ segir Pétur. „Fyrri
könnunin var nafnlaus en sú síðari
fór fram í samtali með kennara, for-
eldra og nemanda.“
Spurður hvort hann hafi tölu á
því hversu margir nemendur hafi
hætt í skólanum sökum eineltis á
síðustu árum, segist Pétur ekki
hafa þá tölu. Hann segir þó að slíkt
hafi gerst.
„Hér er unnið vel og markvisst
að þessum málaflokki og ég fagna
því að ráðuneytið ætli að gera hér
ítarlega úttekt,“ segir Pétur.
sunna@frettabladid.is
Telja líðan nemenda
í Gerðaskóla ólíðandi
Mennta- og menningarmálaráðuneytið ætlar að gera ítarlega úttekt á starfsemi
Gerðaskóla í Garði. Skoða á líðan nemenda, eineltismál, námsárangur og fleira.
Um 13,3 prósent nemenda skólans segjast verða fyrir einelti oft í mánuði.
ÁSMUNDUR
FRIÐRIKSSON GERÐASKÓLI Óvenjumargir nemendur í Gerðaskóla telja sig verða fyrir einelti oftar
en tvisvar til þrisvar í mánuði. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skólanefnd Garðs bókaði á síðasta fundi
skólanefndar að niðurstöður samræmdra prófa og útkoma Gerðaskóla í
þeim væru vonbrigði fyrir alla og stefnan sett á að bæta árangur verulega.
Meirihluti D-lista stefni að því að nú þegar verði gengið frá samningum við
Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar.
Tillaga að samstarfssamningi verður lögð fyrir skólanefnd sem fyrst og
samningurinn lagður til samþykktar á bæjarstjórnarfundi 7. desember næst-
komandi.
Útkoma samræmdra prófa vonbrigði
SAMFÉLAGSMÁL Hjálparstarf kirkjunnar gerir ráð
fyrir því að umsóknir um aðstoð fyrir jólin verði
færri en að meira fé fari samt í úthlutun.
Hjálparstarfið afhendir nú inneignarkort og er
hætt beinni mataraðstoð. Sú leið er dýrari að sögn
Vilborgar Oddsdóttur félagsráðgjafa og því verður
jólaaðstoðin dýrari. „Kortaleiðin er dýrari en okkur
þykir hún bara manneskjulegri. Fólk getur þá valið
hvað það vill borða um jólin eins og aðra daga.“
Vilborg segir alltaf eitthvað um fólk sem aðeins
þurfi aðstoð fyrir jólin. Það fólk geti sótt um hjá
hjálparstarfinu. Þeir sem þegar eru með inneignar-
kort frá stofnuninni hafa verið duglegir að sækja
um fyrir jólin á netinu.
Hjálparstarf kirkjunnar er einnig í samstarfi við
Reykjavíkurdeild Rauða krossins og aðrar deildir,
til þess að fólk fari eingöngu á einn stað til að fá
aðstoð.
Mæðrastyrksnefnd er með matarúthlutun fyrir
jólin og verður opnað fyrir umsóknir í dag. Hjá Fjöl-
skylduhjálp Íslands er skráning fyrir jólaaðstoð
hafin og stendur hún til 9. desember. - þeb
Hjálparstarf kirkjunnar úthlutar aðstoð í gegnum inneignarkort fyrir jólin:
Færri umsóknir en meira fé
JÓL Jólablað Fréttablaðsins kemur
út í dag. Blaðið er 112 síður og
stútfullt af skemmtilegu efni.
Meðal annars
má nefna
grein þar sem
rifjaðar eru
upp jólaaug-
lýsingar frá
fyrri hluta
síðustu aldar,
á öðrum stað
í blaðinu
bæta þekkt
ljóðskáld
nokkrum
erindum
við þekkta jólavísu og enn ann-
ars staðar eru gefin góð ráð um
hvernig nýta megi matarafganga
frá jólum.
Þjóðþekktir matgæðingar gefa
uppskriftir að veisluréttum,
kökum, sætindum og smáréttum.
Rifjaður er upp ýmis fróðleikur
sem tengist jólahaldi auk þess
sem fjölmargt áhugavert fólk er
tekið tali. - sg
Jólablað Fréttablaðsins 2011:
Matur, viðtöl
og fróðleikur
HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR Gert er ráð fyrir færri umsóknum
um jólaaðstoð en úthlutunaraðferð kirkjunnar kostar meira en
bein matarúthlutun. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
LÖGREGLUMÁL Nauðgun var kærð
til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu nú eftir helgina.
Lögregla var kvödd að húsnæði
á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt
sunnudagsins vegna nauðgunar,
eftir því sem Fréttablaðið kemst
næst. Þar voru fyrir tveir karl-
menn um og yfir þrítugt og nít-
ján ára stúlka. Lögreglan hand-
tók mennina og voru þeir látnir
gista í fangageymslu í fyrrinótt.
Stúlkan fór á neyðarmóttöku
fyrir þolendur kynferðisofbeldis.
Mennirnir voru yfirheyrðir
í gær og fer lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu með rannsókn
málsins. - jss
Lögregla handtók tvo karla:
Tveir voru kærð-
ir fyrir nauðgun
STJÓRNSÝSLA Haraldur Johannes-
sen ríkislögreglustjóri neitar að
afhenda Ríkisendurskoðun upp-
lýsingar um viðskipti stofnunar-
innar við fyrirtækið RadíóRaf
nema Sveinn Arason ríkisendur-
skoðandi víki sæti í málinu. Þetta
kom fram í fréttum RÚV í gær.
Ríkisendurskoðun vill fá upp-
lýsingar um 165 milljóna króna
viðskipti ríkislögreglustjóra við
fyrirtækið. Ríkislögreglustjóri
segir að ekki ríki lengur trúnað-
ur milli stofnananna.
Trúnaðarbresturinn varð fyrir
tveimur mánuðum þegar ríkis-
endurskoðandi komst að þeirri
niðurstöðu að ríkislögreglustjóri
hefði farið á svig við reglur um
opinber innkaup í öðru máli. - bj
Ríkisstofnanir í hár saman:
Vill að endur-
skoðandi víki
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðherra
féll í gær frá fyrirhuguðu kolefn-
isgjaldi á rafskaut, koks og kol, en
gjaldið var að finna í bandormi
um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Ætlunin var að gjaldið skilaði 1,5
milljörðum króna í auknar tekjur
árið 2013.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra fundaði í gær með
embættismönnum úr fjármála- og
iðnaðarráðuneytinu og fulltrú-
um Samtaka atvinnulífsins og
fulltrúum fyrirtækjanna.
Að fundi loknum var gefið út
að ráðherra hefði fallið frá gjald-
inu, en saman
myndu stjórn-
völd og fyrir-
t æk i n e i ga
áfram samráð
um innleiðingu
evrópska við-
skiptakerfisins
með losunar-
heimildir.
Samkvæmt
heimildum
Fréttablaðsins úr þingflokki
Vinstri grænna ákvað Steingrím-
ur að taka ekki slag við Samfylk-
inguna um þetta mál núna, enda
hefur ríkisstjórnarsamstarfið
verið stirt undanfarið.
Forsvarsmenn stóriðjunnar
telja að með kolefnisgjaldinu hafi
átt að gera starfsumhverfi fyrir-
tækjanna lakara hér en í viðmið-
unarlöndum, þar sem fyrirtæki
þurfa ekki að greiða umrætt
gjald.
Þá töldu þeir að næg gjaldtaka
fælist í kaupum á kolefniskvóta,
en Ísland verður aðili að alþjóð-
legu viðskiptakerfi með losun
gróðurhúsalofttegunda í áföng-
um og að fullu árið 2013.
- kóp
Fjármálaráðherra hættir við fyrirhugað kolefnisgjald eftir fund með stóriðjunni:
Tekur ekki slag við Samfylkinguna
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON