Morgunblaðið - 17.07.2010, Blaðsíða 5
Fréttir 5INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Markmiðið með tilrauninni er að
bjóða almenningi í fyrsta skipti að
prófa svona bíla. Við viljum heyra
væntingar fólks og svo hvort þær
rætast eftir að það er búið að
reynsluaka bílunum,“ segir Jón
Björn Skúlason,
framkvæmda-
stjóri Íslenskrar
Nýorku, um
rannsóknarverk-
efni sem er aug-
lýst um helgina
en það stendur
yfir frá og með
ágúst og fram í
maí 2011.
Að sögn Jóns
Björns átti Íslensk Nýorka hug-
myndina að verkefninu en það nýtur
stuðnings Orkuveitu Reykjavíkur,
Landsvirkjunar, Orkuseturs, Nor-
rænu Atlantsnefndarinnar, NORA,
Háskólans í Reykjavík og fleiri aðila.
Fá vetnis- og rafbíl til umráða
Almenningi stendur til boða að
taka þátt í verkefninu en Íslensk Ný-
orka auglýsir eftir átta fjölskyldum á
höfuðborgarsvæðinu til að taka þátt
í rannsókn og leigu á nýorkubílum,
það er að segja á rafbíl og vetnis-
rafbíl, hvorum í einn mánuð.
Óskað er eftir 2-4 manna fjöl-
skyldum sem hafa áhuga á um-
hverfismálum en ökumenn verða
að hafa náð 22 ára aldri. Þá þykir
æskilegt að fjölskyldurnar hafi bíl-
skúr til umráða, en aðgangur að raf-
magnsinnstungu er skilyrði.
Reksturinn er ódýr og má nefna
að akstur rafbíls kostar aðeins rétt
ríflega 2 krónur á kílómetrann.
Njóta mikils velvilja
Jón Björn segir Íslenska Nýorku
hvarvetna hafa verið tekið með opn-
um örmum, innanlands sem utan,
allsstaðar hafi hugmyndin fengið
mikinn hljómgrunn.
Nú sé enda rétti tíminn.
„Við erum kannski ekki komnir á
það stig að bílarnir séu tilbúnir fyrir
almenning. Þeir eru enn þá í þróun.
Við ákváðum samt sem áður að prufa
og gera litla samanburðarkönnun.“
Rafbílarnir í samband
Íslensk Nýorka leitar að átta fjölskyldum til að reynsluaka raf- og vetnisbílum
Gæti orðið vísir að umfangsmeira verkefni Rafbíllinn kostar 2 krónur á km
Mitsubishi MIEV Í boði verða Mitsubishi rafbílar og Ford Focus vetnis-
rafbílar. Drægni rafbílsins er 70-100 km en 200 km hjá vetnisrafbílunum.
Jón Björn Skúlason
Að sögn Jóns Björns sýna erlendir aðilar tilrauninni áhuga
enda hafi þeir í hyggju að framkvæma viðameiri tilraun er-
lendis með tugum ef ekki hundruðum bíla.
Hann sjái fyrir sér að slík tilraun geti orðið uppistaðan í
samvinnuverkefni Evrópusambandsríkja á næstu árum.
Aðspurður hvort 8 bílar veiti fullnægjandi upplýsingar
um hvernig bílarnir reynist á Íslandi svarar Jón Björn neit-
andi. Heildstæð niðurstaða kalli á viðameira verkefni.
Engu að síður muni tilraunin framundan veita dýrmætar
vísbendingar.
Áhugi utan frá
INNLEIÐINGIN KALLAR Á VIÐAMIKLAR TILRAUNIR
25.000
Kostnaðurinn í krónum við að hlaða
rafbíl á ári fyrir 12.000 km akstur.
20%
Hlutfall rafbíla af seldum nýjum bíl-
um á Íslandi 2020, gangi spár eftir.
‹ FRAMTÍÐIN ›
»
Héraðsdómur
Reykjaness hefur
dæmt karlmann
á fertugsaldri í
sex mánaða
fangelsi, þar af
fjóra mánuði
skilorðsbundið,
fyrir manndráp
af gáleysi. Þá
hefur maðurinn
verið sviptur
ökuréttindum ævilangt. Maðurinn
játaði sök og mun una dómnum.
Honum er jafnframt gert að
greiða tæpa eina og hálfa milljón
kr. í sakarkostnað.
Maðurinn var valdur að umferð-
arslysi á Grindavíkurvegi í maí í
fyrra, með þeim afleiðingum að
karlmaður á fimmtugsaldri lést.
Fram kemur í dómi héraðsdóms
að maðurinn hafi þrívegis verið
sviptur ökuréttindum vegna um-
ferðarlagabrota.
Ölvaður ökumaður
dæmdur fyrir
manndráp af gáleysi
Héraðsdómur
Reykjaness
Verð fyrir rétt til einkamerkis á
bifreið mun hækka úr 25 þúsund
krónum í 50 þúsund krónur verði
nýtt frumvarp til umferðarlaga að
lögum. Frumvarpið er nú í meðferð
hjá samgöngunefnd.
Réttur til einkamerkis mun
áfram gilda í átta ár líkt og núver-
andi ákvæði í lögum kveður á um.
Verð fyrir réttindi til einkamerkis
hefur verið óbreytt frá árinu 1996
þegar þau voru lögleidd.
Ráðherra verður áfram heimilt
að setja nánari reglur um einka-
merki samkvæmt frumvarpinu.
Verð á einkamerki
hækkar í 50 þúsund
Það er800 7000 • siminn.is
Facebook, YouTube, Google, tölvupóstur og
fréttamiðlarnir fylgja þér á ferðalaginu á
stærsta 3G dreifikerfi landsins.
Stuð á 3G netinu
í símanum á ferð
um landið