Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 36

Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 36
36 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 Hlynur Hallsson og Jóna Hlíf vinna áfram að þríleiknum Áfram með smjörlíkið! en hann fer fram í Reykjavík, á Djúpa- vík, og í Berlín í sumar og haust. Fyrsta sýningin í röð- inni var í Listasafni ASÍ með undirtitlinum „Innantóm slag- orð“ og nú er komið að Verk- smiðjunni á Djúpavík. „… og tilbiður guð sinn sem deyr“ er undirtitill sýningarinnar en þar eru rýmisbundnar innsetningar í fyrirrúmi. Sýn- ingin verður opnuð í dag kl. kl. 14 en þriðja sýn- ingin verður opnuð 3. september í 111 – a space for contemporary art í Berlín. Undirtitill hennar er „Byltingin er rétt að byrja“. Myndlist Áfram skal haldið með smjörlíkið! Jóna Hlíf Halldórsdóttir Gunnhildur Daðadóttir fiðlu- leikari og Guðríður St. Sigurð- ardóttir píanóleikari halda tón- leika á Gljúfrasteini á morgun kl. 16. Á efnisskránni eru Æv- intýrasvíta Bjarne Brustads og Sónata fyrir fiðlu og píanó í G-dúr op. 87 eftir Johannes Brahms. Gunnhildur hefur verið meðlimur í Sinfón- íuhljómsveit Íslands, Kamm- ersveit Reykjavíkur, Strengja- kvartettinum Loka og Melakvartettinum. Guðríður hefur víða komið fram, ýmist sem ein- leikari eða með öðrum tónlistarmönnum, bæði hljóðfæraleikurum og söngvurum, hér á landi sem erlendis. Tónleikar Brustad og Brahms á Gljúfrasteini Gunnhildur Daðadóttir Winfried Bönig, dómorgan- istinn í Köln, heldur tónleika í hádeginu í dag á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju. Bönig hefur starfað bæði sem orgelleikari og hljómsveit- arstjóri og kennir auk þess við Tónlistarháskólann í Köln. Á tónleikunum mun Bönig leika Prelúdíu og fúgu í D-dúr eftir Bach og verk eftir Pachelbel, Mozart og Widor. Á morgun heldur hann svo aðra tónleika, kl. 17, og mun á þeim leika orgelumritanir á hljómsveitarverk- unum Funérailles eftir Liszt og Plánetunum eftir Holst. Miðaverð á fyrri tónleikana er 1.000 kr. og á þá seinni 1.500 kr. Tónlist Dómorganisti Köln í Hallgrímskirkju Winifred Bönig Ingunn Eyþórsdóttir ingunn@mbl.is Ný plata blússveitarinnar Klassart frá Sand- gerði hefur litið dagsins ljós og nefnist hún Bréf frá París. „Um er að ræða rólega og kósí plötu. Þetta er ekki óður til Parísar eins og nafnið gefur til kynna heldur ákveðið tilfinn- ingauppgjör,“ segir söngkona sveitarinnar, Fríða Dís Guðmundsdóttir. Spurð um titil plöt- unnar, Bréf frá París, segir hún hann vera kominn úr smiðju Vigdísar Grímsdóttur rithöf- undar sem samdi tvo texta á plötunni. „Platan hefur að geyma fjögur „cover“ lög en Smári Guðmundsson, bróðir minn og gítarleik- ari Klassart á heiðurinn að flestum lögunum. Öll lögin eru í nýjum textabúningi að und- anskildu „Heyr mína bæn“ sem er óbreytt í klassískri þýðingu Ólafs Gauks.“ Semja lög við ljóð Hallgríms Péturssonar Fríða Dís samdi sjálf fjóra texta á plötunni og eitt lag en hún hefur samið ljóð og texta í hjáverkum frá unga aldri. Að hennar sögn fólst mikil áskorun í því að semja á íslensku. „Við lögðum mikla vinnu í að hafa plötuna á íslensku en fyrri platan var á ensku. Okkur fannst móð- urmálið eiga meira upp á pallborðið hjá land- anum nú og hljóta fyrir vikið verðskuldaða eft- irtekt. Við vorum hrædd um að týnast í einhverju „plötukviksyndi“ ef við hefðum text- ana á ensku.“ Hún segir þó ekki útilokað að endurgera plötuna á ensku ef vel gengur og að sveitin fái tækifæri á að koma sér á framfæri erlendis. Ný plata er í smíðum hjá sveitinni og inni- heldur hún frumsamin lög við ljóð Hallgríms Péturssonar sálmaskálds. „Síðasta vetur fórum við í allar kirkjur á Suðurnesjum og spiluðum fyrir skólakrakka við góðar undirtektir.“ Sveitin skipuð systkinum Frumraun sveitarinnar, platan Bottle of Blu- es kom út árið 2007, og fékk einróma lof gagn- rýnenda. Blúsbandið skipa systkinin Fríða Dís, Smári og Pálmar Guðmundarbörn en Smári leikur á gítar, Pálmar á bassa og kontrabassa og Fríða Dís þenur raddböndin. Auk þeirra fær sveitin liðsinni úr ýmsum áttum, Fríða Dís syngur dúett ásamt Sigurði Guðmundssyni og þekktir hljóðfæraleikarar koma við sögu, m.a. Davíð Þór Jónsson, sem leikur á píanó og Helgi Svavar Helgason sem spilar á slagverk. Platan er gefin út af Geimsteini, hljómplötuútgáfu Rúnars Júlíussonar og fjölskyldu, en fyrirtækið hefur löngum verið í fararbroddi í að veita ungu tónlistarfólki brautargengi. Guðmundur Kristinn Jónsson, betur þekktur sem Kiddi úr reggísveitinni Hjálmum stjórnaði upptökum plötunnar en hljóð- blöndun var einnig í hans höndum. Barna- barn Rúnars Júlíussonar, Björgvin Ívar Baldursson, sá um upptökustjórn og hljóðblöndun á ítölsku dægurlagaperlunni „No ho l’eta“ eða „Heyr mína bæn“ sem er lokalag plötunnar. Útgáfutónleikar Klassart eru fyrirhugaðir í byrjun ágúst og verða auglýstir nánar síðar. Ljósmynd/Guðmundur Vigfússon Klassi Söngkona Klassart í hljóðveri. „Þetta er ekki óður til Parísar eins og nafnið gefur til kynna heldur ákveðið tilfinningauppgjör,“ segir hún m.a. Kósí frá Klassart  Bréf frá París heitir önnur plata sveitarinnar Klassart  Áskorun að semja á íslensku  Plata í smíðum með nýjum lögum við ljóð Hallgríms Péturssonar Kanadíski rithöfundurinn Douglas Coupland, höfundur skáldsagnanna Generation X og Girlfriend in a Coma, hefur vent sínu kvæði í kross og ákveðið að ljá fatalínu nafn sitt. Hann er ekki fyrsti listamaðurinn sem tekur upp á slíku, tónlist- armennirnir Madonna, Kate Moss og Liam Gallagher hafa m.a. tekið upp á því sama. Fata- og fylgi- hlutalínan hefur hlotið nafnið „Ro- ots x Douglas Coupland“ og segir Coupland að með henni sé veitt ný sýn á kanadíska menningu og ein- kenni hennar fjarri hinum dæmi- gerðu táknmyndum landsins. „Mér hefur aldrei fundist mikill munur á því að skrifa bækur, vinna að myndlist eða hanna húsgögn og föt. Þetta er enn heilabúið í mér – ég nota bara ólíka hluta þess til ólíkra verkefna,“ segir Coupland á vef fatamerkisins Roots. Hann seg- ist í verkum sínum hafa kannað hvernig hægt væri að sjá Kanada í nýju ljósi og samstarfið við Roots sé framhald á þeirri vinnu. Hann vilji með verkum sínum sýna þá fjöl- breytni sem Kanada búi yfir, ævin- týragirni Kanadamanna og ein- lægni. Fyrsta bók Couplands kom út ár- ið 1991 en hann hefur sent frá sér 13 skáldsögur, smásagnasafn og skrifað fyrir kvikmyndir og sjón- varp, svo fátt eitt sé nefnt. Coupland snýr sér að tísku Fatalínan Roots x Douglas Coupland Fjölhæfur Rithöfundurinn Douglas Coupland á hönnunarnám að baki. Ég hef náttúrulega verið mikil skóm- anneskja frá upphafi og þeir hafa eiginlega bara átt hug minn allan. 37 » Þau leiðu mistök voru gerð í blaði gærdagsins að sagt var frá því að opnun myndlistarsýningar á olíu- málverkum Sigurðar Ben Jóhanns- sonar á Listatorgi, sal lista- og menningarfélags Sandgerðisbæjar, hæfist klukkan 17, en rétt er að hún hefst klukkan 13 og stendur til 17. Sýning Sigurðar Ben hefst klukkan 13 Verk eftir Sigurð Ben. LEIÐRÉTT Eins og fram kemur í viðtali við Fríðu Dís Guð- mundsdóttur samdi hún fjölda lagatexta á nýju plötunni. Auk hennar er þar að finna ýmsa texta eftir þekkta íslenska rithöfunda og skáld. Vigdís Grímsdóttir rithöfundur samdi tvo texta fyrir Klassart, þ. á m. textann við tit- illag plötunnar, „Bréf frá París“. Vigdísi þarf vart að kynna en hún hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, smásagnasafna og skáldsagna. Þekktust er hún fyrir verðlaunabókina Grandavegur 7, sem kom út árið 1994. Baggalútsmeðlimurinn Bragi Valdimar Skúlason á einnig tvo texta á plötunni. Bragi hefur verið ötull við textasmíðar undanfarin ár og sendi m.a. frá sér barnaplötuna vinsælu Gilli Gill árið 2008. Texti við lagið „Bálför gamals unnustu- bréfs“ er gamalt kvæði eftir síðróm- antíska skáldið Kristján Jónsson Fjalla- skáld en ljóðið „Þorraþræll“ er meðal þekktari verka hans. Lokalagið á plötunni, „Heyr mína bæn“ er sem fyrr sagði í þýðingu Ólafs Gauks Sím- onarsonar tónlistarmanns. Lagatextar eftir þekkta listamenn TEXTAHÖFUNDAR myspace.com/fridaklassart Bragi Valdimar Skúlason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.