Morgunblaðið - 17.07.2010, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 17.07.2010, Qupperneq 20
20 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 Þær eru ástleitnar stjórnmálakon- urnar tékknesku þar sem þær sitja fyrir hjá ljósmyndara, léttklæddar og í stellingum sem einhverjum kynni að þykja óviðeigandi fyrir lýð- ræðiskjörna fulltrúa. En það er ein- mitt mergurinn málsins. Stjórnmálakonurnar, sem tilheyra hægriflokknum Almannahagur, sem svo má þýða, vilja hrista það slyðru- orð af konum í stétt sinni að þær séu ráðsett dauðyfli sem deili fáu með fjöldanum. Þvert á móti séu þær full- ar af lífsgleði og með auga fyrir því sem er í tísku hverju sinni. Konur rétta hlut sinn Vegur tékkneskra stjórnmála- kvenna óx í síðustu þingkosningum þegar 44 þingkonur náðu kjöri til neðri deildar þingsins í maí. Höfðu þá aldrei jafn margar konur komist á þing og er markmiðið með myndatökunum að rétta hlut kvenna á tékkneska þinginu enn frekar. „Við viljum draga athyglina að því að konur taka þátt í stjórnmálum,“ sagði þingkonan Lenka Andrysova, liðsmaður Almannahags. Flokkssystir hennar, borgar- fulltrúinn Marketa Reedova, tekur í sama streng en hún býður sig fram í embætti borgarstjóra í Prag. „Áhrif kvenna í stjórnmálum eru að aukast. Hvers vegna ekki að sýna fram á að við séum konur sem eru óhræddar við að láta í ljós kynþokka okkar?“ sagði Reedova sem er 42 ára. Myndirnar birtast á dagatali og rennur ágóðinn til góðgerða. Eggjandi og í stjórnmálum  Tékkneskar stjórnmálakonur fara óvenjulega leið í kvennabaráttu sinni Næsti borgarstjóri? Marketa Ree- dova (efsta mynd). Þingkonan Ka- terina Klasnova er fyrir neðan. Fé- lagsfræðingurinn Jana Parizkova er neðst en hún er sérfræðingur flokksins í skoðanakönnunum. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nýliðinn júnímánuður var sá hlýj- asti frá því mælingar hófust á 19. öld og var jafnframt fjórði mán- uðurinn í röð þar sem samanlagður hiti lands og sjávar sló fyrri met. Þetta kemur fram í umfjöllun breska dagblaðsins Guardian um nýjar tölur bandarísku veðurstof- unnar (NOAA). Þykja þær benda til að árið verði það hlýjasta síðan mælingar hófust. Bendir stofnunin jafnframt á að júní hafi verið 304. mánuðurinn í röð þar sem samanlagt hitastig lands og sjávar hafi verið yfir með- alhita 20. aldar, syrpa sem nái allt aftur til febrúarmánaðar 1985. Sumarísinn hopar Blaðið bendir jafnframt á að ný gögn bandarísku ís- og snjórann- sóknarstofnunarinnar (NSIDC) sýni fram á að útbreiðsla sumaríss á norðurskautinu hafi ekki verið jafn lítil að sumri síðan árið 1979, þegar gervihnattamælingar á út- breiðslu íssins hófust. Fram kemur á vef NOAA að samanlagður meðalhiti lands og sjávar í ár sé 16,2 gráður á Celsíus sem sé 0,68 gráðum yfir meðaltal- inu á 20. öldinni. Þar af hafi hitinn í júní verið 14,37 gráður sem hafi verið 1,07 gráðum yfir sama meðaltali. Þá bendi gögn ástr- ölsku veðurstofunnar til að júní- mánuður hafi verið sá fjórði þurrasti í Ástralíu síðan mæl- ingar hófust. NOAA er ein af stærstu og öflugustu veðurstofum heims. Allt stefnir í að hitametið falli í ár  Ef fram heldur sem horfir verður árið 2010 það hlýjasta síðan samræmdar mælingar hófust  Síðustu fjórir mánuðir hafa allir slegið hitamet  Sumarísinn á norðurslóðum hopar hratt hægri fótar. Hún er að mála. Stúlkan, eða réttara sagt konan, heitir Angie de Ramos en hún er þrítug. Hagn- aður af sölunni fer til heimilislausra á Filippseyjum. Við fyrstu sýn er eins og stúlkan sé að virða fyrir sér málverkin. Svo kemur í ljós að hún er handalaus. Þegar betur er að gáð sést að öll athygli hennar er á stóru tá Reuters Listagyðjan finnur ávallt leið Fyrir þremur áratugum eða svo lögðu tveir menn, Bill Gates og Paul Allen, grunninn að einu mesta fyrir- tækjaveldi sögunnar, tölvurisanum Microsoft, einu stærsta og áhrifa- mesta fyrirtæki síðustu ára. Ótrúleg velgengni fyrirtækisins gerði tvímenninganna vellauðuga og var Gates um hríð álitinn auðugasti maður heims, með eignasafn sem metið var á við margfalda þjóðar- framleiðslu Íslands. Rúm þjóðarframleiðsla Íslands Allen á einnig fyrir salti í graut- inn sem væri ekki í frásögur fær- andi nema fyrir þá sök að hann hyggst arfleiða góðgerðasamtök að stærstum hluta auðæfa sinna, en þau eru áætluð á sem svarar 1.650 milljarða króna. Það er rífleg þjóðarfram- leiðsla Íslands en hún var áætluð um 1.500 milljarðar króna í fyrra. Fylgir Allen þar með í fótspor milljarðamæringsins Warrens Buff- ett, forstjóra fjárfestingasjóðsins Berkshire Hathaway, sem hefur einsett sér að gefa auð sinn, alls um 5.740 milljarða króna, að því er tímaritið Forbes áætlar á vefsíðu sinni. Fyrir tveimur áratugum setti All- en á stofn góðgerðasamtök sem var- ið hafa tæpum 49 milljörðum króna í ýmis málefni. Þá hefur Allen sjálf- ur varið yfir 130 milljörðum til góð- gerðamála og hyggst nú gera betur. Efnalitlum rétt hjálparhönd Félagi hans, Gates, hefur ásamt konu sinni, Melindu, einnig varið miklu fé til stofnunar sem ber nafn þeirra hjóna en markmið hennar er að tryggja efnalitlu fólki aðgang að heilsugæslu og menntun. Gefur auðæfin í góðgerðir Paul Allen  Annar stofnenda Microsoft arfleiðir góðgerðastofnun að stærstum hluta auðæfa sinna  Fetar í fótspor Buffetts Spurður um niðurstöður NOAA segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veður- stofu Íslands, að þær séu ekki endilega samhljóma mælingum annarra lykil- stofnana í loftslags- fræðum. Óvissan liggi í því hvort árið 2010 verði eitt hlýjasta árið frá því mælingar hófust eða það hlýjasta. Trausti bendir á að skýr- ari mynd af hitafari jarðar í ár fáist ekki fyrr en lengra er liðið á árið. Því borgi sig að bíða og sjá. Of snemmt að fullyrða nokkuð SÍÐARI HELMINGUR ÁRSINS ER EFTIR Trausti Jónsson Grafík: Estudio R. Carrera HJÓNABÖND SAMKYNHNEIGÐRA Argentína er tíunda landið sem heimilar hjónabönd samkynhneigðra Argentína (2010) Suður-Afríka (2006) Ísland (2010) Spánn (2005) Portúgal (2010) Holland (2001) Belgía (2003) Noregur (2009) Svíþjóð (2009) Kanada (2005) Athugasemd: Í Bandaríkjunummega samkynhneigð pör ganga að altarinu í fimm sambandsríkjum og höfuðborginniWashington. Í Mexíkó eru hjónabönd samkynhneigðra aðeins leyfð í höfuðborginni. Borgaralegt hjónaband eða önnur viðurkenning Hjónab. samkynhneigðra (árið sem það var samþykkt)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.