Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 15

Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 Framsýn, stéttarfélag, hefur sent frá sér ályktun þar sem varað er við tillögum Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins sem miði að því að auka enn frekar á skattbyrði fólks á Ís- landi með hækkun tekjuskatts og virðisaukaskatts á matvæli. Tillög- urnar séu lagðar fram á sama tíma og atvinnuleysi, skattar, al- mennar álögur og verðlag er í sögulegu hámarki samfara því að kaupmáttur launa hefur hrunið hjá venjulegu verkafólki. Það sé því alveg ljóst að almenningur á Íslandi sem býr við kröpp kjör hefur ekki burði til að taka á sig frekari byrðar. Framsýn á móti skattahækkunum Veitingastaðurinn Thai Reykjavík í Lækjargötu hefur ákveðið að bregðast við lokun Fjölskylduhjálp- ar Íslands. Mun staðurinn gefa öll- um sem þess leita að taka með sér matarskammt heim, segir í tilkynn- ingu. Skammturinn mun innihalda djúpsteikta ýsu, eggjanúðlur með grænmeti og hrísgrjón. Matarbakkinn stendur til boða næstkomandi þriðjudag kl. 16-18. Tai matstofa gefur matarpakka Um helgina mun Landhelgisgæslan aðstoða lögregluna á Blönduósi við umferðareftirlit á þjóðvegum og hálendi umdæmisins. Fylgst verður úr lofti með ökuhraða og aksturs- lagi ökumanna og akstri vélknú- inna farartækja um hálendið. Land- helgisgæslan mun einnig halda björgunaræfingu með björgunar- sveitum Landsbjargar við höfnina á Blönduósi ásamt björgunarskipinu Húnabjörg. Morgunblaðið/Júlíus Eftirlit úr lofti Umferðarstofa og Slysavarna- félagið Landsbjörg gerðu könnun í maí sl. á öryggi leikskólabarna í bílum. Könnunin var gerð við 75 leikskóla víða um land og var ör- yggisbúnaður 2.660 barna skoð- aður. Í ljós kom að 3% barna voru í engum búnaði og tæplega 8% voru einungis í öryggisbelti. Þetta er nokkru betri niðurstaða en í fyrra þegar 3% barna voru í engum búnaði og 10% voru ein- ungis í öryggisbelti. Til sam- anburðar má geta þess að fyrir 10 árum voru u.þ.b. 25% barna í engum búnaði eða einungis með öryggisbelti. Umferðarstofa kannar öryggi barna í umferðinni Fram kom í leiðangri rannsókn- arskipsins Árna Friðrikssonar fyrir sunnan land að kóralsvæði í mynni Skeiðarárdjúps er mun stærra en áður var talið. Notaður var svonefndur lágtíðnidýptar- mælir til að kortleggja land- grunnið. Tækið var sett í skipið í fyrra. Rannsóknirnar eru liður í verk- efni Hafrannsóknastofnunar sem hefur m.a. að markmiði að kort- leggja viðkvæm svæði og veiði- slóðir á utanverðu landgrunninu og í landgrunnshlíðum umhverfis landið. Var tækið prófað á meira en 2.000 metra sjávardýpi á Kötlu- hryggjum suður af Kötlugrunni og reyndist vel, að sögn Hafrann- sóknastofnunar. Í Háfadjúpi sýndi það m.a. hvernig umhorfs er und- ir miklu holusvæði sem þar er að finna. Upptökin að uppstreyminu, sem myndar holurnar, eru oft nokkra tugi metra undir sjávar- botninum. Í utanverðu Skaftár- og Skeiðarárdjúpi og í landgrunns- hlíðinni suður af þeim var kort- lagt niður á 1000–1300 metra dýpi. Í Skaftárdjúpi eru áberandi jökulgarðar eftir jökla ísaldar. Stór kóralsvæði fundust við mynni Skeiðarárdjúps Morgunblaðið/Þorkell Farkostur vísindamannanna Kórallasvæðið við Suðurland fannst í leiðangri hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar. hefur opið umhverfis landið Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is Verið velkomin til okkar í sumar: Blanda í Húnavatnssýslu: Dimmir hratt á draugaslóð – málverkasýning Baska Búrfell í Þjórsárdal: Gengið að verki – ljósmyndasýning Jakobs Jakobssonar Andlit Þjórsdæla – líf í Þjórsárdal í 1100 ár Þjóðveldisbærinn – Lifandi vitni um húsakynni á þjóðveldisöld Krafla í Mývatnssveit: Kröflueldar – kvikmynd og fræðsla um orku í iðrum jarðar Laxá í Aðaldal: Hvað er með Ásum? – goðafræði og höggmyndir Hallsteins Sigurðssonar Ljósifoss við Sog: Náttúran í hönnun – samstarfsverkefni með Hönnunarmiðstöð Íslands Végarður í Fljótsdal: Framkvæmdin við Kárahnjúka í máli og myndum. Ferðir inn í Fljótsdalsstöð Allar stöðvar: Raunveruleikatékk – hringferð um landið í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík Landsvirkjun býður alla velkomna í stöðvar sínar í sumar. Í stöðvum Landsvirkjunar umhverfis landið má kynna sér orkuvinnslu úr vatnsafli og jarðvarma. Samhliða orkufræðslu er boðið upp á sýningar af ýmsum toga, meðal annars í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Hönnunarmiðstöð Íslands. Komdu í heimsókn í sumar Við tökum vel á móti þér Opið alla eftirmiðdaga í sumar. Aðgangur ókeypis. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 10 16 39

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.