Morgunblaðið - 17.07.2010, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010
Árleg sameiginleg messa ná-
grannasóknanna þriggja, Árbæjar,
Grafarholts og Grafarvogs verður
haldin á morgun, sunnudag. Messan
er haldin á Nónholti innst í Graf-
arvoginum kl. 11, en Nónholt er á
mörkum sóknanna þriggja.
Hægt verður að halda til mess-
unnar í pílagrímsgöngu úr kirkj-
unum þremur fyrir þá sem vilja
hjóla eða ganga til messu. Lagt er
af stað kl. 10 frá Árbæjarkirkju og
Grafarvogskirkju og kl. 10.15 frá
Guðríðarkirkju.
Að messunni lokinni verður
drukkið kaffi og grillaðar pylsur í
boði Grafarholtssóknar.
Messa og grill í
Nónholti
Lionsklúbbarnir í Snæfellsbæ gáfu fyrir nokkru Heilsugæslustöðinni í
Ólafsvík búnað að andvirði einnar milljónar króna. Búnaðurinn sam-
anstendur af stólum, borðum og skoðunartækjum sem auðvelda læknum
vinnuna þegar þeir skoða og lækna sjúklinga sem eiga við háls-, nef- og
eyrnamein að stríða.
Lionsklúbbarnir í Snæfellsbæ eru fjórir og allir kynskiptir. Karla-
klúbbarnir eru Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbbur Nesþinga, en
kvennaklúbbarnir eru Lionsklúbburinn Þernan á Hellissandi og Lions-
klúbburinn Rán í Ólafsvík. Rúmlega 110 manns eru í Lionsklúbbunum fjór-
um í Snæfellsbæ og er starfið blómlegt.
Morgunblaðið/Alfons
Fulltrúar Berit Arnfjörð frá Rán, Sigrún Baldursd., Þernunni, Ari Bjarna-
son, Lionsklúbbi Ólafsvíkur og Pétur Jóhannss. frá Lionsklúbbi Nesþinga.
Lionsklúbbar gefa heilsugæslu tæki
STUTT
Fjórir einstaklingar munu synda
frá Árskógssandi að Hrísey klukk-
an tíu í dag. Hópsundið er liður í
fullveldis- og skeljahátíð í Hrísey
sem fram fer nú um helgina. Sundið
er 3,4 km að lengd.
Þetta er annað árið í röð sem
Hríseyjarsundið er þreytt en sex
manns syntu í fyrra. Þeir fljótustu
syntu vegalengdina á rúmum
klukkutíma.
Á hátíðinni fer einnig fram Ís-
landsmeistaramót í skeljakappáti.
Þess má geta að í fyrra kepptu þeir
Hallgrímur Helgason rithöfundur
og Stefán Eiríksson lögreglustjóri
til úrslita.
Synda til Hríseyjar
frá Árskógssandi
Bankastrætið verður, ásamt hluta Laugavegar og Skóla-
vörðustígs, helgað gangandi og hjólandi vegfarendum
fram yfir helgina vegna veðurblíðu. Laugavegurinn
verður göngugata frá gatnamótum við Vatnsstíg og
Skólavörðustígur frá Bergstaðastræti.
Einstöku blíðviðri er spáð í höfuðborginni um helgina
og hafa því borgaryfirvöld í samráði við samtökin Mið-
borgin okkar tekið þá ákvörðun að gefa fólki aukið rými
til að njóta þess.
Bankastræti verður göngugata um helgina
Bankastræti
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsala
40% afsláttur
af öllum fatnaði og skóm
Aukatónleikar Basil kórsins frá
Moskvu í Langholtskirkju laugardaginn
24. júlí kl. 20.00.
Miðasala á midi.is og við innganginn.
Útimessa á Nónholti í Reykjavík
Guð, gróður og grill
Sameiginleg útimessa Árbæjar, Grafarholts og
Grafarvogssafnaða á Nónholti við Grafarvog sunnudag kl. 11.
Ganga fer frá kirkjunum kl. 10. Einnig má aka malarveginn
við sjúkrastöðina Vog við Stórhöfða. Grillpylsur og
kirkjukaffi í góða veðrinu.
Prestar og sóknarnefndir í nyrstu byggðum Reykjavíkur
Árbók Ferðafélags Íslands
er komin út!
Árbók Ferðafélags Íslands fjallar að
þessu sinni um eitt fegursta svæði
Íslands, Friðland að Fjallabaki.
Bókin fæst á skrifstofu félagsins,
Mörkinni 6 og kostar 7900 kr.
Félagsmenn fá bókina senda,
sér að kostnaðarlausu, um leið
og heimsendir gíróseðlar vegna
félagsgjalda hafa verið greiddir.
Kynnið ykkur kosti félagsaðildar
og þau fjölmörgu fríðindi sem
henni fylgja á heimasíðu félagsins.
www.fi.is