Morgunblaðið - 17.07.2010, Side 11

Morgunblaðið - 17.07.2010, Side 11
Leiðbeiningar Nemendur fylgdu hreyfingum kennarans eftir í hinum ýmsu æfingum á gólfinu. dreifðum við okkur um gólfið og við tóku æfingar sem báru ýmis frönsk nöfn. Ég stillti mér upp útskeif með ímyndaðan bolta í fanginu og reyndi að fylgja leiðbeiningum kennarans. Sjaldan hef ég horft jafn mikið á fætur ann- arra og í þess- um balletttíma á meðan ég reyndi að læra sporin og halda jafnvægi við framkvæmd þeirra. Brak í beinum Æfingarnar fólu í sér ákveðnar fóta- hreyfingar, hringi og hopp og það kom mér strax á óvart hve mikið ég reyndi á mig, að því er mér sýndist, við ein- földustu æf- ingar. Svita- perlurnar spruttu fram þegar ég horfði á samnemendur mína framkvæma „plié“ og „piqué“ og færa sig úr einni „position“ í aðra en í ballett eru þær alls fimm. Allir lögðu sig fram við að gera sitt besta og brak í beinum og harkaleg hopp stórbættu stemninguna í saln- um. Stundum einbeitti ég mér um of að fótahreyfingunum sem varð til þess að ég gleymdi að halda hand- leggjunum einnig glæsilegum. Fyrir mér snerust þessi fyrstu spor því að- allega um tækni og samhæfingu en hugmyndir um fágun í hreyfingum varð ég að geyma þar til síðar. Hvatning og húmor Næst á dagskrá voru æfingar framkvæmdar þvert yfir gólfið, úr einu horni yfir í annað. Ég háði bar- áttu við eigin líkama þegar ég reyndi við „pirouette“, eins konar snúning á öðrum fæti á meðan hinum er lyft upp. Til að verða ekki ringluð þurfti ég að finna ákveðinn punkt til að horfa á í hvert skipti sem ég sneri í hring en í því fólst snögg höfuðhreyf- ing (og þrælgóð jafnvægisæfing) sem heppnaðist misvel. Við gerðum fleiri dansspor yfir gólfið sem voru mörg hver skrautleg, sérstaklega þegar æfingar voru endurteknar frá vinstri hlið. Í lok tímans slöppuðum við af og teygðum á í rólegheitum. Ef ekki hefði verið fyrir endalaus hvatn- ingarorð kennarans og húmorinn hjá krökkunum hefði upplifun mín af tímanum eflaust verið öðruvísi. Ég má til með að nefna að á námskeið- inu voru ekki einungis stelpur held- ur einnig nokkrir strákar sem röð- uðu sér í fremstu línu af miklu öryggi. Ég skemmti mér kon- unglega þrátt fyrir eigin klaufa- skap en miðað við harðsperrurnar daginn eftir hef ég vonandi gert eitt- hvað af viti. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 Daglegt líf 11 „Ég ætla að ganga upp á fjallið Högn- höfða í Biskupstungum í dag ásamt Hjalta kærastanum mínum og Maríu frænku hans,“ segir Áslaug Rut Krist- insdóttir þroskaþjálfi. Við byrjum daginn klukkan sjö, smyrjum nesti og brunum svo upp í sveit. Við ætlum að fara upp norðan við Högnhöfða en þar er göngustígur. Þegar við höfum sigrað þetta fallega fjall og gengið upp á hæsta tind hans í norðri, þá brunum við aftur suður og förum í afmæliskvöldverð í Kópa- vogi hjá tengdamóður minni.“ Áslaug segir Högnhöfða vera mikið fjall, tíu þúsund ára gamall móbergs- hryggur sem er 1,002 metra hátt og aflangt frá norðaustri til suðvesturs. Högnhöfði er brattur og klettóttur nánast allt í kring. Hvað ætlar þú að gera í dag? Gengur á Högnhöfða Ballett er ein tegund dansforms og á upphaf sitt að rekja í umrót ítölsku endurreisnarinnar. Ballettinn þróaðist síðar enn frekar í Frakklandi og Rússlandi og hefur haft mikil áhrif á aðrar tegundir af dansi. Ballett er oftar en ekki sýndur við undirspil klassískrar tónlistar en ballettverk eru samin og sýnd af listamönnum og dönsurum sem jafnvel þurfa að beita leiklist á sviðinu. Fremstu ball- ettdansarar heimsins helga líf sitt dansinum og æfa stíft í ströngu námi til að ná tækninni óaðfinn- anlega. Dansarar æfa stíft ÓAÐFINNANLEG TÆKNI Verkefnið styrkja Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun, NORA, Orkusetur, HR og fleiri Upplýsingar veitir Guðrún Lilja Kristinsdóttir , glk@newenergy.is 588-0316 Viltu taka þátt í rafmagnaðri tilraun? Við leitum að átta fjölskyldum á höfuðborgarsvæðinu til að taka þátt í rannsókn og leigja nýorkubíla (rafgeymabíl og vetnisrafbíl, hvorn í einn mánuð). Við viljum um- sóknir frá 2-4 manna heimilum sem hafa áhuga á umhverfismálum. Ökumenn verða að hafa náð 22 ára aldri. Æskilegt er að hafa bílskúr til umráða, en aðgangur að raf- magnsinnstungu fyrir bílinn er nauðsynlegur. Notendur greiða fyrir áfyllingu sjálfir og leigan er 25.000kr á mánuði, trygging er innifalin. Sendið okkur fjölskyldulýs- ingu og stutta umsókn sem svarar spurn- ingunni: „Hvers vegna ættum einmitt VIÐ að fá leigðan rafbíl?“ Umsóknin sendist á glk@newenergy.is fyrir 29. júlí næstkomandi. Rannsóknarverkefnið hefst í ágúst 2010 og lýkur í maí 2011. Þátt- takendur verða að svara spurninga- könnunum og halda skráningu yfir akstur bílanna á leigutímanum. Vinsælu Yoohoo tuskudýrin í miklu úrvali Dreifingaraðili Danco

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.