Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 17.07.2010, Page 16

Morgunblaðið - 17.07.2010, Page 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 FRÉTTASKÝRING Andri Karl andri@mbl.is Sitji viðhaldsvinna eða sambæri- legar framkvæmdir við íbúðarhús eða sumarhús á hakanum er rétti tíminn til að ráðast í verkin um þess- ar mundir. Stjórnvöld hleyptu ný- verið af stað átakinu Allir vinna til að vekja athygli á endurgreiðslu virðis- aukaskatts og skattafrádrætti vegna framkvæmda og einn banki, Íslands- banki, býður þegar upp á hagstæð framkvæmdalán. Framkvæmdalán Íslandsbanka voru kynnt á fimmtudag en þær upp- lýsingar bárust frá bankanum í gær, að fyrirspurnir hefðu verið fjölmarg- ar og fjölgað eftir því sem leið á dag- inn. Ljóst er því að margir hyggja á endubætur eða aðrar framkvæmdir. Þeir sem ráðast í framkvæmdir á heimilinu eða sumarhúsinu eiga rétt á 100% endurgreiðslu á virðisauka- skatti af vinnulaunum iðnaðarmanna og skattafrádrætti sem getur numið allt að 300.000 kr. Lánin sem bank- inn býður eru svo án lántökugjalda, með 5,75% óverðtryggðum vöxtum og til allt að fimm ára. Áhersla er lögð á það í tengslum við átakið, að öll viðskipti almenn- ings og fagmanna séu uppi á borðinu. Og af samtölum blaðamanns við bæði verkseljendur og -kaupendur virðist sem markmið stjórnvalda sé á góðri leið með að takast. Endur- greiðslan á virðisaukaskattinum og skattafrádrátturinn hefur það í för með sér að svört vinna er síður eftir- sóknarverð. Mest fækkun atvinnulausra Þó svo stærri verkefni vanti enn fyrir verktakafyrirtækin má líta til þess að mest fækkun atvinnulausra í síðasta mánuði var í mannvirkja- greinum. Og á meðan stjórnvöld hvetja landsmenn til þátttöku í stórum sem smáum verkum sem tengjast við- haldi sjá verktakar fram á frekari fjölgun smáverka. Því má gera ráð fyrir að þróunin haldi áfram í sömu átt – alla vega fram að hausti. Hins vegar ríkir enn svartsýni enda óvissa mikil um hvað gerist þegar líða tekur á árið. Meðal annars má benda á, að stór verktakafyrirtæki sögðu upp fjölda fólks um síðustu mánaðamót í varúðarskyni þar sem fyrirsjáanleg- ur er verkefnaskortur. Þeim sem eru að spá í endurbætur eða aðrar framkvæmdir er bent á vefsvæði átaksins, allirvinna.is. Þar má finna dæmi um endurgreiðslu virðisaukskatts og reikna eigin end- urgreiðslu. Góður tími til framkvæmda  Viðhaldsverkefnum fjölgar hjá verktökum sem sjá fram á frekari fjölgun með átaki stjórnvalda  Íslandsbanki reið á vaðið og býður upp á óverðtryggð framkvæmdalán og án lántökugjalds Morgunblaðið/Ernir Málað Helstu viðhaldsverkefnin í sumar eru múrverk og málningarverk. Þau fara svo stundum saman. Dæmi um endurgreiðslu •Þeir sem ráðast í framkvæmdir geta fengið frádrátt frá skattstofni semgetur numið allt að 300.000kr. Efniskostn. (í krónum) Vinna á staðnum án vsk: VSK (vinnuliður x 25,5%) Heildar- kostn. Endur- greiðslaDæmi 1 Húsfélag lætur múrhúða útveggi 2010 527.064 1.012.698 258.238 1.798.000 258.238 Dæmi 2 Einstaklingur lætur vinna trésmíðavinnu heima hjá sér 318.183 493.121 125.746 937.050 125.746 Dæmi 3 Einstaklingur fær tilboð í skipti á fimm gluggum heima hjá sér 350.000 350.000 89.250 789.250 89.250 „Þetta hafði staðið til í nokkurn tíma. Á síðasta ári þegar stjórnvöld hófu endur- greiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við slíkar framkvæmdir ýtti það við okkur og auðveldaði að ráðast í þetta,“ segir Matt- hías Ásgeirsson, forritari hjá Trackwell, en hann réðst ásamt nágrönnum sínum í endurbætur á raðhúsinu sem þau búa í. Fara þurfti í umfangsmiklar steypu- og múrviðgerðir á raðhúsinu og stóðu fram- kvæmdir í rétt rúman mánuð, en þeim lauk í gær við mikla gleði íbúanna. Þó svo ákveðið hafi verið að ráðast í framkvæmdirnar áður en stjórnvöld hleyptu af stað átakinu Allir vinna er óhætt að segja að Matthías sé ánægð- ur með framtakið. „Þetta er auðvitað heljarinnar vinna og stórframkvæmd á mælikvarða íbúðareiganda. En við fáum allan vaskinn endurgreiddan af vinnu iðnaðarmanna og svo einnig skattafrádráttinn þannig að þetta mun- ar heilmiklu fyrir okkur.“ Matthías telur að átakið verði klárlega til þess að fólk ráði iðnaðarmenn frekar til starfa og þá ekki svart. Hann tiltekur, að ekki aðeins hafi verið farið í múrverkið heldur hafi einnig beðið lítið verkefni fyrir pípara sem þau hafi látið verða af í kjölfar átaksins. „Það var kannski ekki nema fimm klukkustunda vinna en það munar um endurgreiðsluna. Það er á hreinu.“ Ýtti af stað og auðveldaði að ráðast í framkvæmdir Ljósmynd/Matthías Ásgeirsson Fyrirtækið Fagmenn býður upp á alhliða þjónustu vegna viðhaldsverkefna og hvort sem um er að ræða smá lagfæringar eða meiriháttar breytingar. Jóhann Einarsson, framkvæmdastjóri Fagmanna, segir að mikið hafi verið að gera í sumar og raunar stanslaust streymi viðhaldsverkefna. Eftir að átak stjórnvalda var kynnt hafi skattafrádrátturinn og endurgreiðsla virð- isaukaskattsins einmitt komið frekar í tal þegar fyrirspurnir berast. „Þannig að þetta virðist hreyfa við fólki.“ Spurður út í hvaða verkefni séu vinsælust segir Jóhann það helst múr- viðgerðir og málningarverk. „En verkin eru annars alls konar. Allt frá því að skipta um krana í vaski og í að gera upp heilu blokkirnar.“ Komi til þess að verkefnum fjölgi mikið með tilkomu átaks stjórnvalda segir Jóhann fyrirtækið vel í stakk búið hvað varðar mannskap. „Við neit- um aldrei verkefnum en bætum þá bara frekar við okkur fólki.“ „Þetta virðist hreyfa við fólki“ Almenn ánægja er með átak stjórnvalda meðal félagsmanna Samtaka iðn- aðarins, að sögn Friðriks Á. Ólafsson, forstöðumanns samtakanna. Hann seg- ir að aukning hafi orðið á óskum um endurgreiðslu á virðisaukaskatti og smáverkum fjölgar mikið þannig að ánægjulegar fréttir heyrast loksins úr verktakageiranum. En þrátt fyrir að hefðbundnum viðhaldsverkefnum fjölgi nær ánægjan ekki yfir allt sviðið. „Okkur vantar auðvitað enn stærri verkefni í gang. Það geta ekki allir iðnaðarmenn verið í litlum verkefnum,“ segir Friðrik en árétt- ar ánægju sína með átakið – sem raunar samtökin standa að ásamt fleiri sam- tökum og stjórnvöldum. Með tilkomu hagstæðra framkvæmdalána til viðhaldsverkefna telur Frið- rik allar forsendur til þess að enn eigi eftir að fjölga verkefnum. Þá segist hann virkilega ánægður með að heyra, að fólk hafni boðum um svarta vinnu iðnaðarmanna í kjölfar átaksins. „Við leggjum auðvitað mikla áherslu á, að umhverfið sé sanngjarnt og við viljum helst útrýma svartri vinnu.“ Smáverkum fjölgar en okkur væntar stærri verkefni í gang Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra er nú í heimsókn í Kína og hélt í gær til jarðskjálftasvæðanna í Sichuan, þar sem 300 þúsund manns létu lífið í hamförunum 2008. Á fundi utanríkisráðherra og landstjórans, sem fram fór í Chengdu, höfuðborg Sichuan, þakk- aði landstjórinn, Jiang Jufeng, Ís- lendingum sérstaklega fyrir lið- veislu þeirra við íbúa jarðskjálftasvæðanna á sama tíma og Ísland hefði verið að ganga í gegnum mjög erfiða efnahags- kreppu, að því er fram kemur í til- kynningu frá utan- ríkisráðuneytinu. Sagði Jiang að það hefði vakið athygli um ger- vallt Kína og Ís- lendingar myndu finna að Kínverj- ar myndu ekki gleyma þeirri hjálparhönd. Kínverjar þakka fyrir að- stoð vegna jarðskjálfta Össur Skarphéðinsson Ólafur Bernódusson Skagaströnd | Djásn og dúllerí er nafnið á nýju galleríi sem nú hefur verið opnað í kjallara gamla kaup- félagsins á Skagaströnd. Þar er til sýnis og sölu handverk og listmunir af margvíslegu tagi eftir 25 Skag- strendinga. Þar að auki er mál- verkasýning Jóns Ólafs Ívarssonar í sýningaraðstöðunni sem er í öðrum enda kjallarans. Djásn og dúllerí verður opið alla daga í sumar frá kl. 14 til 16. Fólkið sem að galleríinu stendur segir að mikil endurnýjun muni verða á því sem þar er sýnt þar sem einungis hluti af því sé komið í sýningu. Einn- ig er stefnt að því að hafa alltaf ein- hverjar listsýningar jafnan í gangi í sýningaraðstöðunni en það fer eftir áhuga listamanna hve títt verður skipt um sýningar. Sérstaða gallerísins er að sögn að- standenda að þar er hægt að fá keypt eingirni og margvísleg efni á hlægilegu verði en bæði efnin og eingirnið verða seld eftir vigt. Þann- ig er hægt að fá keypt handverk og listmuni í galleríinu og líka efnivið til að fara með heim og framleiða slíka hluti sjálfur. Þá er skemmtilegt lestrarhorn í galleríinu með hæg- indastólum og bókaskáp fullum af bókum ef fólk vill setjast niður í amstri dagsins og líta í bók. „Við vilj- um hafa þetta lifandi þannig að fólk geti komið aftur og aftur og alltaf fundið eitthvað nýtt að skoða. Okkur langar líka að fólk komi til að spjalla yfir kaffibolla – nú eða líti í bók og slappi af,“ sagði Signý Richter, ein af hvatamönnum þess að galleríinu var hleypt af stokkunum. Skagstrendingar sýna djásnin Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Djásn og dúllerí Handverk, efni og eingirni verða til sölu. www.gisting.dk/gisting.html sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer) Ódýr gisting í Kaupmannahöfn Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.