Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 29

Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010 Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, LÁRA BÖÐVARSDÓTTIR, frá Laugarvatni, Barmahlíð 54, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 12. júlí. Útför fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 29. júlí kl. 15.00. Eggert Hauksson, Ágústa Hauksdóttir, Jónas Ingimundarson, Ása Guðmundsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SONJA BJÖRG HELGASON, Bakkaseli 15, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 13. júlí. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 26. júlí kl. 11.00. Helgi Þór Axelsson, Guðfinna Helgadóttir, Erla Björk Axelsdóttir, Guðfinnur R. Kjartansson, Ósk Axelsdóttir, Sigurjón Sigurðsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, afi, bróðir og sonur, TÓMAS RAGNARSSON, er látinn. Alfa Regína Jóhannsdóttir, Ellý Tómasdóttir, Ragnar Tómasson, Rúna Tómasdóttir, Ragnar Arnórsson, Svanhildur Steinarrsdóttir, Ólafur Jóhann Steinarrsson, Ragna Þóra Ragnarsdóttir, Dagný Ragnarsdóttir, Arnar Ragnarsson, Dagný Gísladóttir, Ragnar Tómasson. ✝ Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ FINNSDÓTTIR, frá Hrauni, Ingjaldssandi, áður til heimilis að Skólavegi 5, Hnífsdal, er lést föstudaginn 9. júlí, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju þriðjudaginn 20. júlí kl. 14.00. Guðrún Þórðardóttir, Friðrik Antonsson, Guðný Sigríður Þórðardóttir, Jens Kristmannsson, Guðmundur Gunnar Þórðarson, Erna Jónsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS JAKOBS HELGASONAR, Hrafnistu í Reykjavík, áður til heimilis á Patreksfirði. Veronika Pétursdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Pétur Ólafsson, Bjarki Ólafsson, Sigþrúður Ólafsdóttir, Björn J. Hannesson, Guðrún Ólafsdóttir, Vignir Richardsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Systir okkar og frænka, GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR, lést mánudaginn 5. júlí á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, Reykjavík. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskylda og aðstandendur. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is 30 pör í sumarbrids í Reykjavík Mánudaginn 12. júlí var spilaður tvímenningur með þátttöku 31 para. Efstu pör voru: Þórður Jörundss. – Jörundur Þórðars. 92,8 Guðm. Skúlason – Bergur Reyniss. 72,5 Halldór Þorvaldss. – Hjálmar Pálsson 72,5 Miðvikudaginn 14. júlí mættu 28 pör til spilamennsku og voru efstu pör: Garðar V. Jónss. – Björn Arnarson 106,6 Alda Guðnad. – Kristján Snorrason 64,6 Erla Sigurjónsd. – Guðni Ingvarsson 63,5 Bronsstigastaða Sumarbrids 2010 hefur sjaldan verið meira spennandi því aðeins munar 1 stigi á efstu 2 mönnunum. Bronsstigahæstu spilarar sumars- ins eru: 1. Halldór Þorvaldsson 158 2. Magnús Sverrisson 157 3. Jörundur Þórðarson 117 4. Ísak Örn Sigurðsson 104 5. Þórður Jörundsson 97 6. Guðrún Jóhannesdóttir 96 Sumarbrids er spilað á mánudög- um og miðvikudögum í allt sumar. Spilamennska byrjar kl. 19:00 og er tekið við skráningu þegar spilarar mæta til leiks. Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar Eiríksson. Sumarbrids á Akureyri Spilað er á vegum Bridsfélags Ak- ureyrar á þriðjudagskvöldum í Skipagötu 14, 4. hæð. Spilamennska hefst kl. 19.30 og að sjálfsögðu eru allir velkomnir. Kaffi er á könnunni, létt er yfir spilurum og veitir ýmsum betur. Úrslit 13. júlí: Pétur Guðjónsson – Una Sveinsd. 60,4% Reynir Helgas. – Hermann Huijbens 59,1% Sveinbj. Sigurðs.– Sigurður Marteins. 54,2% Grétar og Örlygur Örlygssynir 54,2% Eldri úrslit: (22. júní.) Frímann Stefánss. – Reynir Helgas. 68,5% Stefán Vilhjálmss. – Örlygur Örlygss. 59,5% Víðir Jónsson – Stefán Sveinbjörnss. 50,6% Ragnh. Haraldsd. – Ólína Sigurjónsd. 50,6% 29. júní Valmar Väljaots – Hermann Huijbens 66,1% Pétur Guðjónsson – Una Sveinsdóttir 57,1% Reynir Helgason – Vilhelm Adolfsson 55,4% 6. júlí Ragnheiður Haraldsd. – Ólína Sigurjónsd. 31 Þórhallur Hermannss. – Gissur Jónass. 19 Stefán Vilhjálmss. – Vilhelm Adolfss. 10 Ég heyri enn fóta- tak þitt í mölinni við innkeyrsluna hér á Ægisíðunni. Og ég ætla að halda áfram að heyra það. Þið Elvar áttuð einstakt vinasam- band sem ég hélt að væri ekki til hjá strákum. Þú studdir Elvar í gegnum gleði, sigra og tár. Þú reyndist Elvari klettur sem hagg- aðist ekki, sama á hverju gekk. Þú fórst með honum í gegnum hans veikindi. Þegar Elvar missti föður sinn sviplega varstu kominn áður en við náðum andanum og varst hjá okkur allt sumarið. Þú studdir okk- ur, labbaðir með okkur, grést og þagðir með okkur. Ég hef aldrei upplifað neinn sýna eins mikið æðruleysi og þig, elsku Bjarni minn, hvort sem það var gagnvart Elvari eða í veikindum þínum. Á veikindum þínum tókstu á með húmorinn að vopni og leiddir vini þína í gegnum erfiðleikana. Þegar þú kvaddir varstu á þinn hátt búinn að undirbúa okkur. Í dag reyni ég að hugsa um hve þakklát ég sé að þú skyldir verða vinur hans Elvars. Við áttum svo margar skemmtileg- ar stundir, bæði hér heima og ekki síður erlendis. Þið voruð sem eitt, höfðuð ómældan áhuga á vopnum, stríðum, ferðalögum, tónlist, bíó- myndum og ég get haldið endalaust áfram. Það kemur varla sá dagur að ekki heyrist hér, ohhh Bjarni verð- ur að sjá þetta. Þú heldur áfram með okkur í gegnum lífið og ég held áfram að heyra fótatak þitt. „Vinur þinn er þér allt. Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur. Þú kemur til hans svangur og í leit að friði. Þegar vinur þinn talar, þá andmælir þú honum óttalaust eða ert honum samþykkur af heilum hug. Og þegar hann þegir, skiljið þið hvor annan. Því að í þögulli vináttu ykkar verða allar hugsanir, allar langanir og allar vonir ykkar til, og þeirra er notið í gleði, sem krefst einskis. Þú skalt Bjarni Páll Kristjánsson ✝ Bjarni Páll Krist-jánsson fæddist í Reykjavík 19. janúar 1988. Hann lést á krabbameinslækn- ingadeild Landspít- alans 15. júlí 2008. Útför Bjarna Páls var gerð frá Nes- kirkju 31. júlí 2008. ekki hryggjast, þegar þú skilur við vin þinn, því að það, sem þér þykir vænst um í fari hans, getur orðið þér ljósara í fjarveru hans, eins og fjall- göngumaður sér fjall- ið bezt af sléttunni.“ (Úr Spámann- inum.) Helga Elvars- mamma. Manstu Þegar við sigldum um höfin í kafbátum okkar á Tóm- asarhaga. Þegar við börðumst í gegnum regnskóga og drápum þyrnisk- rímslið, þó svo að gömlu konurnar hafi kallað það rósagerði. Þegar þú tókst ekki húfuna af þér í heilt ár. Þegar við stoppuðum alltaf bíó- myndir til að þú gætur séð hvers konar byssur bófarnir notuðu. Þegar við tókum upp okkar fyrsta spjallþátt sem hefur sem betur fer aldrei komið fyrir al- mennings sjónir. Þegar við héldum okkar fyrstu tónleika í sófanum hjá ömmu. Þegar ég lofaði að horfa ekki vegna þessa að baðherbergisvegg- urinn á hótelherberginu var gerður úr gleri og þú varst í sturtu. Þegar við börðumst í seinni heim- styrjöldinni, þó úr öruggri fjarlægð bakvið tölvuskjá. Þegar við opnuðum markað á miðöldum og hjálpuðu skátum við þrautalausnir. Þegar við urðum bestu vinir. Ég mun muna eftir þér og okkar frábæru heimsreisu, alltaf. Héðanaf allt til enda veraldar, Að ekki verði’ á oss minnzt, hina fáu, Oss fáa, því fer betur, bræðra- hópinn; því sá sem við mig blandar blóðin í dag, er bróðir minn; (Shakespeare, í þýðingu Helga Hálfdánarsonar.) Þinn vinur, Elvar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.