Morgunblaðið - 17.07.2010, Síða 34
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG VIL EKKI
TAKAST Á
VIÐ HLUTINA
ÞETTA ER MÍN
LÍFSSPEKI
BESTA LEIÐIN TIL AÐ
LEYSA VANDAMÁL ER
AÐ HUNSA ÞAU
EKKERT VANDAMÁL ER ÞAÐ
STÓRT AÐ ÉG GETI EKKI
HLAUPIÐ Í BURTU FRÁ ÞVÍ!
VELKOMIN HEIM TIL MÍN Á ÞESSA
TÓNLEIKA! ÉG VIL ÞAKKA HLJÓMSVEITINNI
„GRÁI FIÐRINGURINN“ FYRIR AÐ KOMA
ÉG VIL MINNA Á AÐ
ÞETTA ERU GÓÐGERÐA-
TÓNLEIKAR TIL AÐ
KOMA Í VEG FYRIR AÐ
VIÐ MISSUM HÚSIÐ
OKKAR. ENDILEGA GEFIÐ
SVO VIÐ GETUM HALDIÐ
FLEIRI TÓNLEIKA...
BÍLSKÚRINN
OKKAR ER
LAUS EF ÞIÐ
VILJIÐ!
AUK ÞESS SEM FJÖL-
SKYLDAN MÍN ÞARF EKKI
AÐ SOFA Á GÖTUNNI
EITT SÍMTAL TIL LÖGREGLUNNAR
OG HANN LEGGUR AF STAÐ...
ÉG GET ALVEG EINS
HJÁLPAÐ LÖGREGLUNNI
MEÐ ÞETTA BANKARÁN
...OG GRÆTT SMÁ
PENING MEÐ AÐ TAKA
MYNDIR AF MÉR FYRIR
DAILY BUGLE Í LEIÐINNI
ÓTRÚLEGT AÐ HANN
HÆTTI LÍFI SÍNU
ÁN ÞESS AÐ FÁ
NEIN LAUN FYRIR
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN ÆTLAR
AÐ HJÁLPA
LÖGGUNNI!
HÆ,
HÆ,
HÆ!
SÁ ÉG Í ALVÖR-
UNNI KÓNGULÓ
MEÐ HJÁLM?
ÉG HELD ÉG
ÞURFI AÐ FÁ
MÉR STÆRRA
DAGBLAÐ
ÉG ER AÐ LEITA AÐ MÖNNUM SEM ERU TILBÚNIR AÐ
VAÐA ÚT Í HÆTTURNAR OG HORFAST Í AUGU VIÐ
DAUÐANN FYRIR MJÖG LÍTINN PENING!
ÞETTA VAR VERSTA
RÆÐA SEM ÉG HEF NOKKURN
TÍMANN HEYRT!
GRÍMUR HELDUR
ÞVÍ FRAM AÐ
ÞETTA SÉ ÍÞRÓTT
34 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010
Farsími tapaðist
Farsími (Nokia, grár
að lit) týndist í Heið-
mörk hinn 15. júlí.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 565-2793.
Enn vegið í
sama knérunn
Ekki ætlar þessi
kommúnistastjórn að
gera það endasleppt
við almenning. Nú hef-
ur Steingrímur fengið
stjórn Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins til að
hjálpa sér að skatt-
leggja meira. Maður
bara spyr: Var ekki komið nóg af
skattpíningu? Ætla þessir kommar
aldrei að fá nóg af að mergsjúga
aldraða og öryrkja, auk annarra?
Þótt þeir þyrðu ekki að láta lánafyr-
irtækin greiða meira fyrir ólögleg
lán þorðu þeir þó að ráðast aftur á
lítilmagnann.
Það var ein af forsendum þeirra
sem lánuðu fólki kúlulán að vextirnir
yrðu þó alltaf lægri. Þetta er komm-
astjórnin sem ætlaði að láta breiðu
bökin blæða. Það er eins kristaltært
og dagur kemur á eftir nóttu að
þetta hlýtur að vera seinasta vinstri-
stjórnin sem hér kemst að. Það
bendir allt til þess.
Nú er rimman mikil innan flokk-
anna og á milli flokkanna sem eru að
arðræna þjóðina. Ég held að flestir
séu mér sammála um að fylgið af
þessum flokksnefnum hrynur eins
og vatn af gæs í hverri skoðanakönn-
uninni af annarri.
Nú er almenningur orðinn það
skattpíndur að hann er farinn að
fylgjast meira með og ekki þýðir
lengur að segja: „Þetta verður skoð-
að, þetta fer sjálfsagt að lagast eftir
nokkra mánuði.“ Allir kjarasamn-
ingar eru lausir í haust, svikin duga
ekki lengur.
Vinur minn, læknir,
sem var í Englandi öll
stríðsárin seinustu,
sagði mér að það hefði
ekki verið hræðslan
sem fólk dó úr, það var
hungur og kuldi.
Mér hefur oft dottið í
hug að kommarnir
væru svo vitlausir að
þeir væru að draga
framkvæmdir þar til
liði að næstu kosn-
ingum. En það getur
ekki verið því maður á
bágt með að trúa því að
stjórnin hangi það
lengi.
Með því að reka Svandísi Svav-
arsdóttur og aðra afturhaldssinna
gæti stjórnin hangið eitthvað.
Það er nefnilega það sem stjórnin
hræðist mest og forðast í lengstu
lög; kosningar.
Ég þekki marga sem eru flúnir af
landi brott og hafa ekki í hyggju að
koma fyrr en komin er frjálslynd
stjórn sem hægt er að treysta og vill
koma atvinnulífinu strax í gang.
Sjálfstæðisflokkurinn myndi aldr-
ei láta fólk ganga um götur í árarað-
ir og hafa ekki atvinnu.
Það er ekki hægt að segja annað
en þetta sé hrein kommúnistastjórn
sem vill ríkisvæða allt sem hún get-
ur. Væri maður eignamaður myndi
maður að sjálfsögðu kæra þessa
stjórn fyrir eignaupptöku því þetta
er ekkert annað. Ég vildi svo sann-
arlega að maður gæti skrifað ein-
hvern gleðiboðskap til þjóðarinnar,
en þá væri maður að skrökva, því ég
skrifa aðeins sannleikann eins og
hann birtist manni.
Karl Jóhann Ormsson,
Starengi 26, Reykjavík.
Ást er…
… að vera sjálfselsk, og
vilja hann út af fyrir þig.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Pálmi Jónsson á Sauðárkrókihringdi inn stöku í tilefni af
því að dóttir séra Hjálmars Jóns-
sonar var kölluð „Dómkirkjudótt-
ir“ á forsíðu Séð & heyrt.
Öllu getur andinn breytt
ást þó feti leiðir kunnar.
Hér bílasalinn brosir gleitt
við blíðri dóttur Dómkirkjunnar.
Hjálmar Freysteinsson heyrði
konu sína kvarta um að prjóna-
skapurinn gengi í basli. Þá kastaði
hann þessu fram:
Handavinna er hennar fag;
hefur líkt og endranær
aftur rakið upp í dag
allt sem prjónað var í gær.
Hann bætti við, stríðinn að
vanda: „Afskaplega held ég henni
hafi þótt vænt um þessa vísu, þótt
hún hefði ekki um það mörg orð.“
Stefáni Vilhjálmssyni fannst vísan
rómantísk og til eftirbreytni. Hann
segist hafa reynt að kveða til frú
Helgu a.m.k. einu sinni til tvisvar
á ári. „Við bjuggum í 10 ár frá
1988 í sama húsi og Pétur Jónsson
frá Hallgilsstöðum (1911-2000).
Með okkur tókst góð vinátta og
einhvern tíma orti ég um konu
mína:
Hún er eins og alþjóð veit
öðrum konum betri,
besta hnoss í bæ og sveit
og býr með okkur Pétri.“
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af handavinnu og hnossi
Til sölumeðferðar u.þ.b. 2,5
ha skógivaxið eignarland
með eldra húsi nefnt Lundur
í Kollafirði Reykjavík. Nú er
tækifæri fyrir þá sem kjósa
að búa nálægt borginni og
vilja jafnframt njóta kyrrðar
náttúrunnar, að eignast land
við Esjurætur. Mögulegur
byggingaréttur fyrir 2 hús.
TILBOÐ ÓSKAST.
Nánari upplýsingar á skrifstofu FM / Fasteignamidstodin.is. 110452
Lundur - Kollafirði