Morgunblaðið - 17.07.2010, Page 35
Menning 35FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2010
Dúettkvöldið á Múlanum,kryddað strengjum, varljúf upplifun, því tónlistinvar einlæg og leikin beint
frá hjartanu. Það er að sjálfsögðu
reginmunur á flutningi ungra tón-
listarmanna, sem eru að stíga sín
fyrstu skref, eins og Ara Braga,
Daníels og félaga og þrautreyndra
atvinnumanna á borð við Kristjönu
og Agnar Má. Samt er ekki víst að
jafnvel hefði kviknað á Kristjönu og
Agnari ef ungviðið hefði ekki riðið á
vaðið.
Fyrsta verkið á efnisskrá Ara og
Daníels „Skilaboð-strengir“ eftir
þann fyrrnefnda, var fautavel blásið
í trompet af höfundi. Þarna var
Daníel í meðleikarahlutverkinu eins
og í efnisskránni allri. Enginn skyldi
vanmeta það mikilvæga hlutverk,
heldur sleppa minnimáttarkennd-
inni sem „meðleikaranafnið“ ber í
sér. Strengjakvartettinn sem lék í
nokkrum verkum Ara og Daníels
virtist vera lítt æfður, en vonir
standa til að heyra megi þessi verk á
djasshátíð, og þá er tími til æfinga
og fyrsti fiðlari, Laufey Jensdóttir,
hefur fautafínan tón. Heyrið þá tón-
leika því melódíur þeirra félaga eru
margar gípandi. Þar gerist þó ekk-
ert óvænt og þríhljómurinn trónir í
hásæti sínu. Dálítið krúttleg. Flyg-
ilhornleikur Ara Braga var ekki jafn
grípandi og ég hafði búist við, en
trompetleikurinn fínni; hann stefnir
á nýjar slóðir í leik sínum og kannar
möguleika hljóðfærisins eins og
saxófónleikari – fulltrúi mannsradd-
arinnar.
Plássið leyfir ekki frekari umfjöll-
un um Ara Braga og Daníel því
Kristjana og Agnar Már voru mætt
til leiks. Samstarf þeirra mátti fyrst
heyra á diski árið 2001. Þar hljómaði
„Sweet Lorraine“ sem Nat „King“
Cole hafði slegið í gegn með. Lallið
hennar Kristjönu á plötunni fór dá-
lítið fyrir brjóstið á manni þá, en nú
söng hún baba í staðinn og úr varð
heilsteypt listaverk í flutningi henn-
ar og Agnars. Ekki vegna þess að
„ba“ hefði komið í stað „la “ heldur
var túlkunin öll komin á æðra stig –
það sama má segja um flutning
þeirra á „Lush life“ Strayhorns,
óvenju skapheitur flutningur, og í
„The way you look tonight“ var
sveiflan í vinstri hendi Agnars og
skemmilegar tilvitnanir hans í klass-
íkina toppurinn.
Það voru ekki bara söngdansar á
efnisskrá þeirra Kristjönu og Agn-
ars Más. Popplög nútímans áttu sinn
sess, en þau eru heldur óþjálli til fra-
seringa en söngdansarnir. Frábær
var þó frumflutningur útsetningar
dúettsins á lagi Lennons og McCart-
neys: „Lucy in the sky with dia-
monds“.
Police varð eftirrétturinn; mig
hefði langað í blús.
Reynsluboltar og ungliðar
Múlinn í Risinu við Hafnarstræti
Ari Bragi og Daníel Friðrik auk
strengja; Kristjana & Agnar Már
bbbnn
Ari Bragi Kárason trompet, flygilhorn
og píanó, Daníel Friðrik Böðvarsson gít-
ar; strengjakvartett skipaður Laufeyju
Jensdóttur og Guðnýju Hlín Guðmunds-
dóttur fiðlur, Bjarka Frímanni Bjarna-
syni víólu og Þorbjörgu Daphne Hall
selló. Kristjana Stefánsdóttir söngur og
Agnar Már Magnússon píanó.
Fimmtudagskvöldið 15. júlí 2010.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Tvö Kristjana söngkona og Agnar Már píanóleikari.
Álfasögur úr þjóðsögum Jóns Árna-
sonar eru nú komnar út á frönsku en
áður hafði komið út ensk og þýsk
þýðing bókarinnar. Bókaforlagið
Bjartur er útgefandinn.
Í bókinni eru endursagðar sjö
álfasögur en um myndskreytingar
sá Florence Helga Thibault. Anna
Kristín Ásbjörnsdóttir endursegir
sögurnar og þýðir yfir á frönsku.
Victoria Cribb sá um að snara henni
yfir á ensku og Betty Wahl á þýsku.
Álfar Frönsk útgáfa Álfasagna
úr þjóðsögum Jóns Árnasonar.
Álfasögur
á frönsku
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
Rúgakur - Útsýnisíbúð Stórglæsileg
og vel hönnuð 158 fm íbúð á frábærum stað
á Arnarneshæðinni. Í íbúðinni eru stór og björt
rými. Svefnherbergið er með innbyggðu fata-
herbergi og sér baðherbergi.Húsið eru aðeins
tveggja hæða en þó með lyftu. V. 38,9 m.
8117
Marargrund 10 - mjög gott hús -
frábært verð Glæsilegt og vel staðsett
184,2 fm einbýlishús ásamt 51,6 fm bílskúr,
samtals 235,8 fm Húsið er mikið endurnýjað
að innan og með góða tengingu við skjólgóð-
an og gróinn suðurgarð með timburverönd og
heitum potti. V. 44,5 m. 5836
Valhúsabraut - laus strax
Velstaðsett einlyft 117,3 fm einbýlishús
ásamt 37,6 fm bílskúr á mjög góðum stað við
Valhúsabraut á Seltjarnarnesi. Húsið skiptist í
forstofu, hol, góðar stodu, eldhús, þvottahús,
þrjú svefnherbergi, baðherbergi og fl. 5849
Kópavogsbakki 10 - nýtt glæsilegt
hús á sjávarlóð Einbýlishús 283,0 fm á
einni hæð. Húsið er á sjávarlóð til suðurs. Ein-
stök staðsetning. Húsið er allt hið glæsileg-
asta. Húsið skiptist í: forstofugang, 4 her-
bergi, fataherbergi, tvö baðherbergi, þvotta-
herbergi, stofu með arin, eldhús og sjón-
varpshol. Innbyggður 34,6 fm bílskúr. Ver-
önd er til suðurs. V. 125,0 m. 5794
Laugarásvegur - einstök eign Stór-
glæsilegt og vel staðsett 667 fm einbýli í
Laugarásnum. Húsið er byggt árið 1987 og er
teiknað af Kjartani Sveinssyni. Einstakt útsýni
er yfir Laugardalinn. Húsið er allt hið vandað-
asta bæði að innan og utan. V. 150 m. 4836
Bleykjukvísl Fallegt og vel byggt 335,1 fm
tvílyft einbýlishús með innbyggðum 42,6 fm
bílskúr við Bleikjukvísl í Reykjavík. Húsið er
einstaklega bjart og með rúmgóðum vistar-
verum og stendur efst í botnlanga með útsýni
til norðurs og útgangi í glæsilegan garð til
suðurs. V. 74,9 m. 3749
Sandakur 4-20 - aðeins 3 hús eftir
Sérlega vel skipulögð og falleg raðhús á skjól-
sælum stað á miðri Arnarneshæðinni. Tvílyft
húsin eru glæsileg ásýndum þar sem þau eru
ýmist klætt áli eða viði. Húsin snúa á móti
suð- suðvestri þannig að þau njóta sólar allan
daginn. Húsin eru seld tilbúin til innréttingar -
lóð fullfrágengin. V. 37,5 m. 8070
Glæsileg íbúð á tveimur hæðum með sérinngang og stæði í lokaðri bílageymslu. Úr íbúð-
inni er einstaklega fallegt útsýni til vesturs út á sjó og til austurs yfir Elliðavatn. Mikið er lagt
í innréttingar og tæki. Einstaklega vönduð og góð sérhæð sem vert er að skoða.
45,5 m. 5802
KLETTAKÓR 1 B - GLÆSILEG SÉRHÆÐ
Gott 171 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á rólegum og skjólsömum
stað við Dverghamra. Hellulagt plan er við bílskúr. Garðurinn er mjög gróinn. V. 44,0 m.
5834
DVERGHAMRAR - Á EINNI HÆÐ
Falleg 248,9 fm 2ja hæða funkis raðhús sem byggð eru á skjólsælum stað á Arnarneshæð-
inni. Húsið er klætt flísum og báraðri álklæðningu sem gefa þeim nútímalegt útlit. Allur frá-
gangur að utan tryggir lágmarksviðhald. Húsið er tilbúið til innréttingar að innan.
V. 38,9 og 39,9 m. 7850
ÁRAKUR 25 OG 29 - AÐEINS 2 HÚS EFTIR
Nýkomið í sölu fallegt 59,1 fm sumarhús í Landi Nesja við Þingvallavatn. Húsið skiptist í for-
stofu, baðherbergi, þrjú herbergi, svefnloft, stofur og eldhús. Verandir, heitur nuddpottur og
glæsilegt útsýni. Eignarland. V. 35,0 m. 5865
SUMARHÚS VIÐ ÞINGVALLAVATN
Falleg og björt 151,7 fm efri sérhæð með frábæru útsýni fyrir Kópavoginn. Hæðin skiptist í
forstofu, hol, snyrtingu, tvær samliggjandi stofur, eldhús, þvottahús, 3 svefnherb. (4 skv.
teikningu), baðherbergi og fataherbergi. Húsið er í mjög góðu ástandi. V. 33,0 m. 5596
MELGERÐI 37 - EFRI SÉRHÆÐ
Fallegt og mikið endurnýjað 194,5 fm einbýli á einni hæð með innbyggðum bílskúr og grón-
um afgirtum garði með hellulögðum stéttum. 5870
OPIÐ HÚS MÁNUDAG FRÁ KL. 17-18
STULASEL 8 - OPIÐ HÚS
Einstaklega vandað og glæsilegt 306 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er innst í
botnlangagötu. Ekkert var til sparað í innréttingar og tæki. Mikið útsýni er frá báðum hæð-
um til vesturs yfir borgina. 2,8 metra lofthæð er á neðri hæð og 3,3 metrar á efri hæð. Eign
í algjörum sérflokki. V. 146,0 m. 5832
GNITAKÓR - EINBÝLI Í SÉRFLOKKI
OPIÐ HÚS