Morgunblaðið - 17.07.2010, Page 44
LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 198. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Ökumaður jeppans handtekinn
2. Andlát: Sonja B. Helgason
3. Andlát: Gunnar Levy Gissurarson
4. Liggur á gjörgæslu
Juliana Espana Keller, einn stofn-
enda eldhúskabarettsins Women
with kitchen appliances, hefur fengið
nokkrar íslenskar konur til liðs við sig
til að spila á eldhúsáhöld. »40
Eldhúskabarett með
eldhúsáhöldunum
Hinn 13. júlí síð-
astliðinn sendi
Björk Guðmunds-
dóttir tónlistar-
kona, ásamt fleir-
um, áskorun til
umboðsmanns Al-
þingis um að
samningurinn um
kaup Magma
Energy á HS Orku yrði endurskoð-
aður. Þau hafa nú boðað til blaða-
mannafundar mánudaginn 19. júlí kl.
16, þar sem undirskriftasöfnun verð-
ur hrundið af stað við tónlist Bjarkar.
Björk boðar til
blaðamannafundar
Viðar Hreinsson bókmenntafræð-
ingur hefur verið ráðinn af Þjóðlaga-
setrinu á Siglufirði til að rita ævisögu
Bjarna Þorsteinssonar, prests á Siglu-
firði, sem einnig var þjóðlagasafnari
og tónskáld. Ættingjar séra Bjarna,
Fjallabyggð, Sparisjóður
Siglufjarðar, Siglfirð-
ingafélagið og fleiri
ætla að styðja við rit-
unina, en stefnt er að
því að bókin komi út á
150 ára afmæli
Bjarna, 14. október
2011.
Viðar skrifar ævisögu
séra Bjarna
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 3-8 m/s og dálítil væta á N- og A-landi en annars yfirleitt
léttskýjað. Hiti 15 til 20 stig SV-lands, en 10 til 15 stig í öðrum landshlutum.
Á sunnudag Norðlæg átt, 3-8 m/s og dálítil væta NA-lands, en annars bjart með köflum
og stöku síðdegisskúrir. Hiti 15 til 20 stig SV-lands, en annars 10 til 15 stig.
Á mánudag Hægviðri og skýjað með köflum, en stöku síðdegisskúrir S-lands. Hiti 15 til
20 stig V-til, en heldur svalara fyrir austan.
Þeir Rúrik Gíslason og Arnór Smára-
son voru keppinautar í úrslitaleik á
Shellmóti 6. flokks drengja í fótbolta
fyrir tíu árum. Í dag eru þeir lands-
liðsmenn og atvinnumenn, auk þess
að vera góðir vinir, og mætast í fyrstu
umferð dönsku úrvalsdeildarinnar
þegar OB tekur á móti Esbjerg. Rúrik
kveðst hlakka mikið til að mæta
Arnóri í dag. »3
Keppinautar 10 ára og
mætast í stórleik í dag
Gamlir risar í íslenskri
kvennaknattspyrnu, Breiða-
blik og KR, mættust á Kópa-
vogsvelli í Pepsi-deild
kvenna í gærkvöldi. Leik-
urinn varð aldrei spennandi
því Breiðablik tók foryst-
una strax á 5. mínútu
og sigraði 4:0. Fann-
dís Friðriksdóttir
skoraði tvívegis fyr-
ir Breiðablik í síð-
ari hálfleik. »4
Fanndís skoraði
tvö gegn KR
Lítt þekktur kylfingur frá Suður-
Afríku, Louis Oosthuizen að nafni, er
með gott forskot eftir tvo hringi á
Opna breska meistaramótinu í golfi.
Oosthuizen hefur leikið á 12 höggum
undir pari samtals og hefur fimm
högga forskot á gömlu kempuna
Mark Calcavecchia. Heims-
byggðin mun fylgjast með
Oosthuizen um
helgina og þá
skýrist hvort
hann stenst
álagið og sigrar í
þessu gamal-
gróna móti. »2
27 ára gamall Suður-
Afríkubúi með forystu
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„Við lögðum af stað frá Flórída í maí
og höfum farið víða síðan þá. Við
sigldum til Nova Scotia og þaðan til
Nýfundnalands. Við vorum að hugsa
um að fara þaðan beint til Íslands en
komum við á Grænlandi í leiðinni,“
segir Rhea Smith, bandarísk kona
sem kom til hafnar í Hafnarfirði á
sunnudag með manni sínum, Pétri
Hauki Péturssyni, og bandarískum
syni sínum.
Rhea og Pétur hafa siglt mikið
um á báti hans, Dagnýju, en í þetta
sinn komu þau á öðrum báti sem
kallast Jandavina og er 13 metra
langur.
Þau eru búsett í Green Cove
Springs í Flórídaríki í Bandaríkj-
unum. Rhea segir að ferðin hafi ver-
ið afskaplega ánægjuleg. „Ferðin
var alveg frábær. Grænland er ótrú-
legur staður og ísjakarnir magnaðir.
Það ættu fleiri að sigla þangað.“
Þegar þau héldu frá Nýfundna-
landi hafði Pétur samband við Land-
helgisgæsluna og lét vita að þau
væru væntanleg til Íslands. Af ein-
hverjum ástæðum spurðist út að
þau hefðu lent í vandræðum á leið-
inni og fréttamiðlar birtu fréttir
þess efnis. „Ég skil ekki hvernig
þetta gerðist því við lentum aldrei í
neinum vandræðum. Vissulega var
vont veður á leiðinni en það var aldr-
ei neitt vandamál. Ættingjar okkar
og vinir voru í uppnámi og reyndu
að hafa samband við okkur þegar
þeir heyrðu þetta.“ Rhea er nú
stödd hér á landi í þriðja skipti. „Ég
elska Ísland en það er samt eitthvað
að ljósinu hérna, er það ekki?“ segir
hún og hlær. Hún segir jafnframt að
hún sé farin að skilja örlítið í málinu.
„Ég er farin að venjast hljómfallinu
betur. Áður fyrr hljómaði íslenska
eins og kínverska fyrir mér en núna
er ég farin að þekkja hana betur.“
Siglt um höfin frá því í maí
Rhea Smith og Pétur Haukur Pétursson sigldu frá Flórída til Íslands með
staldri í Nýfundnalandi og Grænlandi Vandræðalaus ferð þrátt fyrir vont veður
Kát Hjónin Rhea Smith og Pétur Haukur Pétursson kynntust í Flórída. Þau
hafa siglt um höfin frá því í maí og fljúga aftur til Bandaríkjanna á mánudag.
Sigurður Bjark-
lind hefur lyft
grettistaki á
landareign sinni í
Kaldakinn á síð-
ustu tveimur ára-
tugum; ræktað
upp myndarlegan
skóg þar sem áð-
ur var ónýtt tún
en engin planta,
breytt gömlu, illa förnu samkomu-
húsi, sem lengi hafði verið notað sem
geymsla, í glæsilegan bústað og að
auki byggt nokkur hús í fornum stíl
með eigin handafli! Sigurður leigði
landið 1991 en eignaðist það hálfum
öðrum áratug síðar. „Ég heillaðist
gjörsamlega af þessum stað,“ segir
Sigurður í Sunnudagsmogganum.
Grettistak
Sigurðar í
Kaldakinn
Sigurður Bjarklind
Heillaðist af staðnum
Hið ódauðlega slagorð „Flatus lifir!“ hefur enn á ný
skotið upp kollinum við Kollafjörð. Sjö manna hópur
heldur nafni hans á lofti í góðri sátt við lögreglu og
íbúa, en vill þó ekki hafa hátt um tilganginn. Verkið
hófst á miðvikudaginn og er stefnt að því að Flatus hafi
yfirtekið vegginn allan í næstu viku. onundur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dauðinn lýtur í lægra haldi fyrir Flatusi