Morgunblaðið - 19.07.2010, Side 1
M Á N U D A G U R 1 9. J Ú L Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 166. tölublað 98. árgangur
MIKIÐ LISTALÍF VIÐ
HAFNARGÖTUNA Í
REYKJANESBÆ
NÍUNDA LJÓÐA-
BÓKIN Á ÁTT-
RÆÐISAFMÆLI
VÆNGJASLÁTTUR
Í RÁÐHÚSI
REYKJAVÍKUR
SÍÐDEGI VILBORGAR 24 LOKAHÁTÍÐ LISTHÓPA 29NÍU KONUR Í GALLERÝ 8 10
Sveitarstjórnin í Vesturbyggð hefur
sett í sölu fjörutíu íbúðir í bænum, sem
eru í eign sveitarfélagsins. Íbúðirnar
voru upphaflega byggðar í félagslega
kerfinu, en fráfarandi sveitarstjóri,
Ragnar Jörundsson, segir að m.a.
vegna fólksflutninga frá sveitarfé-
laginu sé lítil eftirspurn eftir eða þörf á
slíku húsnæði í bænum. „Þessar íbúðir
hafa verið afar þungur baggi á sveitar-
félaginu, en það skuldar Íbúðalánasjóði um 300 milljónir
vegna íbúðanna. Þegar haft er í huga að heildarskuldir
Vesturbyggðar eru í kringum 1,2 milljarðar króna sést
hve stór hluti skuldanna þetta er.“
Ólafur B. Blöndal fasteignasali fer með sölu íbúðanna
og hefur hann sett fermetraverðið á
um 50.000-60.000 krónur. Heildarsölu-
virði eignanna fjörutíu segir hann á
bilinu 150 til 200 milljónir króna. „Við-
brögðin hafa verið góð og ég hef fengið
fjölda fyrirspurna, bæði frá einstak-
lingum og félögum. Reyndar á ég von
á því að fá á þriðjudaginn tilboð í allar
eignirnar í einum pakka.“
Íbúðirnar sem um ræðir eru bæði
íbúðir í fjölbýli, tveggja til fjögurra herbergja, sem og
nokkur sérbýli og raðhús. Ekki liggja fyrir opinberar
upplýsingar um fermetraverð á íbúðarhúsnæði á Pat-
reksfirði, en á Ísafirði hefur fermetraverðið verið á bilinu
50.000-75.000 í fjölbýli. bjarni@mbl.is
Selja félagslegar íbúðir
Rökkur Kvöld á Patreksfirði.
Íbúðirnar þungur baggi á sveitarsjóði Vesturbyggðar
Það var mikið um að vera í Kópavogi um helgina
þegar Símamótið í knattspyrnu, fyrir 5.-7. flokk
kvenna, fór fram.
Mótið fór af stað með heljarinnar skrúðgöngu á
fimmtudagskvöldið sem lauk með setningarhátíð á
Kópavogsvelli. Á föstudeginum hófust leikar og var
ekkert gefið eftir. Einbeitingin skein úr augum
stúlknanna og keppnisskapið duldist engum. Dag-
arnir snerust þó ekki eingöngu um knattspyrnu því
á laugardagskvöldið var heljarinnar skemmtun í
Smáranum þar sem Lalli töframaður sýndi listir
sínar og Ingó Veðurguð söng af hjartans lyst.
Morgunblaðið/Ómar
Öflugar og einbeittar
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Landsamband slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna á í kjaradeilu við sveitarfélögin
og hyggst grípa til dagsverkfalla næstu vik-
urnar, það fyrsta verður á föstudag. Eitt af
því sem gæti komið
upp er að ekki verði
hægt að bregðast
nægilega hratt og
vel við sinueldum.
Eldur varð laus í
sinu við Straum,
sunnan Hafnar-
fjarðar á laugardag
en Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins
náði að slökkva
hann með aðstoð
þyrlu Landhelg-
isgæslunnar.
„Alls tóku um 20
manns þátt í
slökkvistarfinu en
að jafnaði eru rúm-
lega 20 manns á
vakt,“ segir Jón
Viðar Matthíasson,
yfirmaður Slökkvi-
liðs höfuðborg-
arsvæðisins, SHS.
„Sinubrunar eru
mjög mannkrefj-
andi og þetta var
úti í hrauni, erfitt
að komast að þessu.
Nú er mesta hættan hvað allt er orðið þurrt.
Umfangið getur allt í einu snaraukist.“
Ákveðinn lágmarksfjöldi verður tiltækur í
verkfallinu til að sinna neyðartilfellum. En
ekki er hægt að senda mikinn hluta liðsins
langt út fyrir þéttbýlið til að slökkva sinuelda
sem ekki ógna mannslífi. Og hætt er við að
dýrmætur tími fari til spillis ef ná þarf í
menn sem eru í verkfalli. »4
Sinueld-
ar ekki
slökktir?
Náttúruperlur gætu
brunnið vegna verkfalls
Sinueldar
» Samkvæmt
nútímaskilgrein-
ingum ber
slökkviliðs-
mönnum að
sinna neyð-
arþjónustu við
fólk, umhverfi og
mannvirki í þess-
ari röð.
» Sinueldar
geta valdið
geysimiklu tjóni,
náttúran er oft
mörg ár að bæta
það.
» Verði fram-
hald á þurrki
gætu vinsælar
útivistarperlur á
höfuðborgar-
svæðinu verið í
hættu.
Fyrirtæki Ruperts Murdochs,
News Corporation, hóf fyrir fáein-
um mánuðum að krefjast greiðslu
af fólki fyrir að mega lesa net-
útgáfu The Times í London. Ár-
angurinn er algert hrun í lestr-
inum, segir í frétt Financial Times.
Ekki einu sinni áskrifendur
pappírsútgáfu blaðsins lesa lengur
netútgáfuna þó að hún sé ókeypis
fyrir þá. En mesta breytingin varð
nokkru áður en byrjað var að
krefjast greiðslu, þegar lesendur
voru beðnir um að skrá sig sér-
staklega til að fá aðgang að efn-
inu. Þá minnkaði lesturinn um
58%.
Lesendur netmiðla vilji því ekki
aðeins fá að lesa þá frítt. Þeir vilja
líka að auðvelt sé að nálgast frétt-
irnar. kjon@mbl.is
Harðneita að borga
fyrir netfréttir
Ósáttur Lesandi skoðar Times-vefinn.
Nýr vegur um
Lyngdalsheiði og
brú yfir Hvítá
verður opnuð í
haust en unnið
hefur verið að
framgangi þess-
ara verkefna um
árabil. Þetta þýð-
ir byltingu í
vegamálum í Ár-
nessýslu og getur skilað svæðinu
miklu. „Við væntum mikils af þess-
um framkvæmdum, Leiðir styttast
og það styrkir ferðaþjónustuna hér
á svæðinu,“ segir Ásborg Arnþórs-
dóttir ferðamálafulltrúi. Heild-
arkostnaður framkvæmdanna er
talinn vera 2,4 milljarðar króna. »6
Samgöngubót
styrkir ferðaiðnað
Við Hvítá
Margítrekaðar björgunaraðgerðir
Bandaríkjastjórnar á bönkum og
fjármálafyrirtækjum þar í landi hafa
skekkt allt hvatakerfi fjármálakerf-
isins þar í landi, að mati hagfræði-
prófessorsins Russel Roberts. Í ný-
legri ritgerð, sem ber heitið
„Gambling With Other People’s Mo-
ney“, eða „Spilað með fé annarra“,
fjallar Roberts um sögu slíkra björg-
unaraðgerða og áhrif þeirra á mark-
aði.
Segir hann að í slíkum björgunar-
aðgerðum hafi hluthafar vissulega
tapað sínu hlutafé, en gengið hafi
verið úr skugga um að lánardrottn-
ar, innstæðueigendur og aðrir kröfu-
hafar, hafi fengið hvern dal aftur til
baka. Í slíku umhverfi hafi lánar-
drottnar ekki hvata til að sýna eðli-
lega aðgætni í lánveitingum og taki
óheppilega mikla áhættu í þeirri trú
að ef allt fari á versta veg muni ríkið
koma þeim til bjargar.
Þetta er að mati Roberts stærsta
ástæðan fyrir því hvernig fjármála-
bólan varð til fyrir hrun. Allir hafi
einblínt á mögulegan gróða, en eng-
inn hafi haft augun á hugsanlegu
tapi. Við slíkar aðstæður sé ekki von
á skynsamlegri fjárstýringu í bönk-
um. »12
Spiluðu fjárhættuspil með
annarra manna peninga